Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Blaðsíða 29
Fermingar 22. febrúar 2019 KYNNINGARBLAÐ
Hvetur konur um allan heim
Konur hafa alltaf verið mesti innblásturinn að gæðavörum Moroccanoil sem byggjast á
endingu og auðveldri notkun. Þar að
auki er það alltaf á bak við eyrað í
framleiðslunni á vörum Moroccanoil
að það þarf bara eitt augnablik til að
hvetja til jákvæðrar breytingar.
Moroccanoil® kynnir samstarf við
alþjóðatennissamband kvenna:
Inspired by Women™
Hár- og snyrtivörufyrirtækið
Moroccanoil, alþjóðlegur frum-
kvöðull í olíubættri fegurð, kynn-
ir stolt samstarf sitt og Women’s
Tennis Association (WTA), samtaka
sem standa hvað fremst í heimi
íþróttakvenna. Moroccanoil er ekki
eingöngu aðalstyrktaraðili WTA út
keppnistímabilið 2019, heldur mun
merkið einnig slást í för með WTA
til að stækka grundvöll INSPIRED
BY WOMEN™, sem var komið á fót
árið 2014 til að veita innblástur,
fagna og hvetja konur um allan heim.
Moroccanoil mun með stuttmynda-
seríunni INSPIRED veita íþróttakon-
um WTA grundvöll til að kynna fyrir
heiminum þau góðgerðarfélög sem
þær aðhyllast og þær breytingar sem
þau færa heiminum sem heild.
Betra stuðningsumhverfi fyrir
stúlkur
Fyrsta stuttmyndaröðin fjallar um
áhugaverða sýn tennisleikarans
Madison Key og það markmið hennar
að hafa áhrif í gegnum vinnuna
með FearlesslyGiRL, samtök sem
eru þekkt á heimsvísu og hvetja til
betra umhverfis og aukins stuðnings
fyrir ungar stúlkur. Stuttmyndaröðin
verður sýnd á meðan keppnistímabil-
ið í tennis stendur yfir og veitir þannig
nýjum leikmönnum athygli og sögum
sem hafa jákvæð áhrif.
Tímamótalausn gegn litadofnun í
lituðu hári
Ferðalag Moroccanoil hófst á
ákveðnum vendipunkti sem hvatti
Carmen Tal, stofnanda merkisins,
áfram að byltingu í fegurðar-
iðnaðinum með glænýrri nálgun á
olíublandaðar hárvörur. Moroccanoil
setti þá á markað nýja byltingar-
kennda línu sem kallast Color
Complete Collection. Vörunum er
ætlað að mæta daglegum þörf-
um litaðs hárs og sporna gegn
því að liturinn dofni eða breytist.
Línan er bæði ætluð til notkunar af
fagmönnum og heima fyrir. Þessi
tímamótalausn gegn litatapi vinnur á
móti öllum þeim daglegu ógnum sem
steðja að hárlitnum; hárskemmdum
af völdum efna og tækja, upplitun
eða hitaskemmdum. Allt hefur þetta
slæm áhrif á litað hár og gerir það
flatt og litinn daufan. Háriðnaðurinn
umbyltist gersamlega á tíu árum með
tilkomu Moroccanoil-hármeðferðar-
innar og hefur ástríða Moroccanoil
bara aukist síðan þá.
Því fór svo að fyrirtækið bætti
við nýjum vörulínum fyrir húðina;
Moroccanoil Body™ og Moroccanoil
Sun™. Um er að ræða gæðavörur
undir áhrifum Miðjarðarhafs-
ins sem mýkja húðina, gefa henni
náttúrulegan ljóma og ómótstæði-
lega fegurð.
Óaðfinnanlegur litur í fyrsta sinn
Moroccanoil er leiðandi þegar kemur
að notkun arganolíu í hárvörum en
kynnir nú í fyrsta sinn hina einstöku
ArganID™-tækni, sem finna má í
allri vörulínunni. Þessi háþróaða
tækni sér til þess að olían nær djúpt
í hársekkinn og hjálpar þannig til
við lagfæringu hársins svo liturinn
haldist óaðfinnanlegur. Í línunni má
finna tvær vörur sem notaðar eru af
fagmönnum í litaferlinu og þrjár vörur
sem vernda hárið til að nota heima
fyrir eftir litameðferð; sjampó, nær-
ingu og hársprey.
Í dag eru Moroccanoil-vörurnar
fáanlegar í yfir 65 löndum um allan
heim og markmiðið er enn það sama:
að hvetja til fallegrar umbreytingar
og að skapa vörur sem auka
sjálfstraust.
Til að nálgast upplýsingar um
Moroccanoil og sölustaði
www.regalo.is
Lyngháls 5, 110 Reykjavík
Sími: 512-7777
Facebook: Regalo fagmenn ,
Instagram: regalofagmenn
Snapchat: Regalofagmenn
MOROCCANOIL: