Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Blaðsíða 34
22. febrúar 2019KYNNINGARBLAÐ 22. febrúar 2019 Fermingar
Þjóðbúningasilfur saman stendur af því sem fer á búningana. Það eru aðallega myllur,
borðar og belti, beltispör og slíkt,“
segir Dóra Jónsdóttir, gullsmiður hjá
Gullkistunni, en hún hannar með-
al annars þá dýrgripi sem prýða
íslensku þjóðbúningana. Margt af
þessu skarti er með flóknu mynstri
og vaknar sú spurning hvort þetta sé
ekki mjög vandasöm hönnun.
„Þetta er misjafnlega vandasamt,
það eru svo mörg mismunandi
mynstur en sum eru steypt; það er
búið að gera steypuna einfaldari,
áður fyrr var sandsteypt og vinnan
við það mun seinlegri, en hún er orðin
auðveldari með þessari nýju steypu-
tækni sem komið hefur fram á seinni
tímum,“ segir Dóra.
„Í víravirkinu er allt mynstur
handgert. Myllurnar minna á fiðrildi
og hafa því verið kölluð fiðrildavirki,“
bætir Dóra við, en miklu meiri fróð-
leik má lesa um þetta forna skart á
vefsíðunni thjodbuningasilfur.is.
Að sögn Dóru er þjóðbúningasilfur
vinsæl fermingargjöf hjá þeim stúlk-
um sem hafa áhuga á þjóð búningum
og sumar stúlkur eru fermdar í
íslenska þjóðbúningnum.
Dóra hannar einnig margs konar
aðra fallega skartgripi í ýmsum
verðflokkum en hún býr yfir gífurlegri
reynslu í faginu. Hún hóf að nema
gullsmíði árið 1949, þá 18 ára gömul,
og hefur ávallt síðan starfað í faginu,
eða í 70 ár. Gullkistan er til húsa að
Frakkastíg 10 og hefur verið þar síð-
an árið 1976.
Gullkistan á marga gamalgróna
viðskiptavini, en að sögn Dóru
eru margir viðskiptavinir hennar
Íslendingar búsettir í Noregi. „Það er
miklu meiri hefð fyrir notkun þjóð-
búninga í Noregi og Íslendingar sem
flytjast þangað kynnast þeirri hefð,“
segir Dóra.
Þar sem Gullkistan er miðsvæðis
koma margir erlendir ferðamann í
verslunina. Að sögn Dóru kaupa þeir
sjaldan þjóðbúningasilfur heldur
fremur smærri og ódýrari skart-
gripi. Hins vegar eru útlendingarnir
forvitnir um þjóðbúningasilfrið og
vilja fræðast um það.
Sem fyrr segir er meiri fróð-
leik er að finna á vefsíðunni
thjodbuningasilfur.is en áhugasamir
er hvattir til að kíkja í Gullkistuna,
Frakkastíg 10, og finna fallega ferm-
ingargjöf.
Þjóðbúningasilfur og fleiri skartgripir
GULLKISTAN: