Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Blaðsíða 27
 22. febrúar 2019 KYNNINGARBLAÐ Fermingar Vinsælast hjá okkur í dag er heilgrillað lambalæri og grillaður kjúklingur. Með þessu eru gjarnan ostagratín-kartöflur, salat með fetaosti, bearnaisesósa og rauðvínssósa, þetta er alveg tilvalið í fermingarveisluna,“ segir Svanur Hafsteinsson, eigandi Grillvagnsins, sem hefur boðið upp á veisluþjónustu síðan árið 1990. „Allur undirbúningur fer fram í stóreldhúsi okkar í Mosfellsbæ, ekið er á veislustaðinn og klárað að elda í bílunum sem búnir eru fullkomnu eldhúsi.“ Starfsemin hófst með einum grillvagni en í dag hefur fyrirtækið yfir að ráða sjö misstórum grillbílum og tveimur grillvögnum, og veitir ekki af. Alger snilld í fermingarveisluna Svanur segir marga eiga erfitt með að trúa því að Grillvagninn bruni í hlað um hávetur og menn taki til við að grilla lamb úti í kuldanum en þetta er í boði í öllum veðrum. „Síðan förum við inn í hús og setjum upp borð þar sem við afgreiðum matinn en við komum alltaf með kokka í veisluna. Það setur skemmti- legan brag á veisluna og fólk hefur líka gaman af að sjá grillbílinn fyrir utan og okkur að störfum þar,“ segir Svanur. Úrvals hamborgaraveisla Úrvalið er fjölbreytt en áherslan er lögð á kjötrétti. „Í seinni tíð eru hamborgaraveislur orðnar mjög vinsælar í fermingum. Það er líka í boði að bæta við kjúklingalundum á spjóti og sumir vilja líka grillaðar pylsur með.“ Grillvagninn kappkostar að hafa eingöngu úrvals hráefni í hamborgurunum og öllum öðrum mat. „Maður lærði það fljótt í þessum bransa, að það margborgar sig að hafa topphráefni.“ Lamb og purusteik fyrir austan fjall „Sumir kjósa að hafa nautalundir í veislunni sinni og það er auðvitað rosalega flott þó að það kosti sitt. Þá eru bakaðar kartöflur, bearnaisesósa og piparsósa. Eldra fólkið, þeir sem komnir eru yfir sjötugt, vill hins vegar oftar en ekki bara lamb.“ Grillvagn- inn býður líka upp á kalkún og margir velja saman lambalæri og kalkúna- bringur í veisluna sína. Grillvagninn þjónustar landsbyggð- ina líka og segir Svanur að matar- smekkur sé dálítið breytilegur eftir landsvæðum. „Ef við keyrum austur fyrir fjall er það yfirleitt alltaf lamb eða purusteik. Það er alveg magnað hvernig þetta breytist um leið og maður er kominn yfir Ölfusbrúna, þar er fólk lítið í fuglakjötinu.“ Við vöskum allt upp „Við komum með alla diska og hnífa- pör rúlluð inn í hvíta servíettu og tökum allt óhreint með okkur. Það er því ekkert uppvask eftir veisluna og mörgum þykir afskaplega þægilegt að losna við það,“ segir Svanur. Þjónusta Grillvagnsins hentar í alls konar veislur; brúðkaup, fermingar, stórafmæli og útskriftir. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni grillvagninn.is. Tekið er á móti fyrir- spurnum og pöntunum í síma 898- 3189 og á netfanginu grillvagninn@ grillvagninn.is. Grillað á staðnum og enginn þarf að vaska upp Lambið er alltaf vinsælt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.