Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Síða 27
22. febrúar 2019 KYNNINGARBLAÐ Fermingar
Vinsælast hjá okkur í dag er heilgrillað lambalæri og grillaður kjúklingur. Með þessu
eru gjarnan ostagratín-kartöflur,
salat með fetaosti, bearnaisesósa og
rauðvínssósa, þetta er alveg tilvalið
í fermingarveisluna,“ segir Svanur
Hafsteinsson, eigandi Grillvagnsins,
sem hefur boðið upp á veisluþjónustu
síðan árið 1990.
„Allur undirbúningur fer fram í
stóreldhúsi okkar í Mosfellsbæ, ekið
er á veislustaðinn og klárað að elda
í bílunum sem búnir eru fullkomnu
eldhúsi.“ Starfsemin hófst með einum
grillvagni en í dag hefur fyrirtækið yfir
að ráða sjö misstórum grillbílum og
tveimur grillvögnum, og veitir ekki af.
Alger snilld í fermingarveisluna
Svanur segir marga eiga erfitt með
að trúa því að Grillvagninn bruni í
hlað um hávetur og menn taki til við
að grilla lamb úti í kuldanum en þetta
er í boði í öllum veðrum.
„Síðan förum við inn í hús og setjum
upp borð þar sem við afgreiðum
matinn en við komum alltaf með
kokka í veisluna. Það setur skemmti-
legan brag á veisluna og fólk hefur
líka gaman af að sjá grillbílinn fyrir
utan og okkur að störfum þar,“ segir
Svanur.
Úrvals hamborgaraveisla
Úrvalið er fjölbreytt en áherslan
er lögð á kjötrétti. „Í seinni tíð eru
hamborgaraveislur orðnar mjög
vinsælar í fermingum. Það er líka í
boði að bæta við kjúklingalundum
á spjóti og sumir vilja líka grillaðar
pylsur með.“ Grillvagninn kappkostar
að hafa eingöngu úrvals hráefni í
hamborgurunum og öllum öðrum
mat. „Maður lærði það fljótt í þessum
bransa, að það margborgar sig að
hafa topphráefni.“
Lamb og purusteik fyrir austan fjall
„Sumir kjósa að hafa nautalundir í
veislunni sinni og það er auðvitað
rosalega flott þó að það kosti sitt. Þá
eru bakaðar kartöflur, bearnaisesósa
og piparsósa. Eldra fólkið, þeir sem
komnir eru yfir sjötugt, vill hins vegar
oftar en ekki bara lamb.“ Grillvagn-
inn býður líka upp á kalkún og margir
velja saman lambalæri og kalkúna-
bringur í veisluna sína.
Grillvagninn þjónustar landsbyggð-
ina líka og segir Svanur að matar-
smekkur sé dálítið breytilegur eftir
landsvæðum. „Ef við keyrum austur
fyrir fjall er það yfirleitt alltaf lamb
eða purusteik. Það er alveg magnað
hvernig þetta breytist um leið og
maður er kominn yfir Ölfusbrúna, þar
er fólk lítið í fuglakjötinu.“
Við vöskum allt upp
„Við komum með alla diska og hnífa-
pör rúlluð inn í hvíta servíettu og
tökum allt óhreint með okkur. Það er
því ekkert uppvask eftir veisluna og
mörgum þykir afskaplega þægilegt
að losna við það,“ segir Svanur.
Þjónusta Grillvagnsins hentar í alls
konar veislur; brúðkaup, fermingar,
stórafmæli og útskriftir.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni
grillvagninn.is. Tekið er á móti fyrir-
spurnum og pöntunum í síma 898-
3189 og á netfanginu grillvagninn@
grillvagninn.is.
Grillað á staðnum
og enginn þarf
að vaska upp
Lambið er alltaf vinsælt.