Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Blaðsíða 46
46 22. febrúar 2019TÍMAVÉLIN ROBERT JOHNSON VAR SENNILEGA MYRTUR AF AFBRÝÐISÖMUM EIGINMANNI n Seldi djöflinum sál sína fyrir gítarhæfileika n Uppgötvaðist áratugum eftir dauðann T ónlistarunnendur þekkja vel bölvunina við 27 ára aldurinn. Jimi Hendrix, Janis Joplin, Brian Jones, Jim Morrison, Kurt Cobain og nú síðast Amy Winehouse. Öll dóu þau 27 ára gömul eftir að hafa skotist upp á stjörnuhimin- inn og lifað hátt en illa. Í þessum fræga klúbbi gleymist oft sá sem var sennilega hæfileikaríkastur af þeim öllum, sem var Robert John- son. Johnson dó árið 1938 og er sennilega það ungstirni sem setti hvað mest mark á sína tegund tónlistar, blúsinn. Seldi sál sína djöflinum Robert Johnson var fæddur árið 1911 í bænum Hazlehurst. Það er lítið og fátækt krummaskuð í vesturhluta Mississippi, þar sem blökkumenn eru í miklum meirihluta. Johnson var hins vegar af nokkuð vel efnuðum landeigendum kominn. Það var illa séð af hvítum íbúum bæjarins að svartir gætu efnast og því var fjölskyldan hrakinn úr bænum. Um tíma bjó Johnson í borginni Memphis en flutti síðan aftur til Mississippi. Hann var óvana- lega vel læs og skrifandi miðað við önnur svört börn í dreifbýl- inu og fékk snemma áhuga á tón- list. Hann spilaði á munnhörpu og gítar og þótti hafa einstaka hæfileika. Almennt er þó lítið vit- að um æsku og unglingsár John- son. Hann giftist ungur sextán ára stúlku, Virginiu Travis, en strang- trúaðir foreldrar hennar voru ekki hrifnir af ráðahagnum. Johnson var þá farinn að spila tónlist, en ekki til heiðurs drottni. Þvert á móti trúðu þau því að hann hefði selt sál sína djöflinum. Skömmu síðar lést Virginia af barnsförum og fjölskylda hennar sagði að það hefði verið refsing frá guði sjálf- um. Hæfileikaríkur kvennaflagari Á þrítugsaldri var Johnson far- inn að ferðast um Suðurríkin og spila blús. Í dag er tónlistin köll- uð órafmagnaður blús eða Delta- blús, eftir svæðinu í Mississippi þar sem stefnan varð til. Sá kvittur um að Johnson hefði samið við myrkrahöfðingjann sjálfan til að öðlast hæfileikana varð sífellt há- værari. Johnson var einnig mikill kvennaflagari. Hann var ungur, hæfileikaríkur, myndarlegur, kurteis, heillandi og hættulegur. Hann ferðaðist einnig lengra, um öll Bandaríkin og alla leið norður til Kanada. Stundum not- aði hann ekki eigið nafn á ferða- lögum sínum. Hann drakk mik- ið og komst stundum í vandræði vegna kvennafars. Johnson var hins vegar engin stórstjarna og oft þurfti hann að spila vinsæl lög eft- ir aðra á götuhornum fyrir smá- peninga. Of flókin lög fyrir fjöldamarkað Þegar Johnson var 25 ára gamall, árið 1936, fór hann í hljóðver í fyrsta skipti. Plöturnar voru tekn- ar upp í borginni San Antonio í Texas en slógu ekki í gegn. Sú vin- sælasta, Terraplane Blues, seldist aðeins í 5.000 eintökum. Tónlist hans var metnaðarfull en senni- lega of flókin og óaðgengileg fyrir fjöldamarkað á þeim tíma. Hann var þó ekki af baki dott- inn og ári síðar ferðaðist hann til Dallas til að taka aftur upp tónlist. Ellefu plötur í það heila sem gefn- ar voru út árið 1938 með jöfnu millibili. En Johnson sjálfur átti ekki eftir að lifa það að sjá þær allar koma út. Sennilega myrtur af afbrýði­ sömum eiginmanni Margt er á huldu varðandi dauða Robert Johnson, þann 16. ágúst árið 1938. Johnson hafði verið að spila vikum saman á litlum skemmtistað nálægt borginni Greenwood í norðvesturhluta Mississippi. Samferðamaður hans, blúsar- inn Sonny Boy Williamson, sagði að Johnson hefði daðrað við gifta konu þar á dansleik. Hún hafi rétt Johnson viskíflösku en William- son slegið hana úr höndum hans. Hann ætti aldrei að drekka úr flösku sem hann hefði ekki séð opnaða. Seinna hafi Johnson drukkið úr annarri viskíflösku sem honum var rétt. Þetta sama kvöld veiktist John- son og það varð að hjálpa hon- um inn í herbergi hans seint um nóttina. Næstu þrjá daga versn- aði ástand hans en enginn læknir var kvaddur á staðinn. Hvíti land- eigandinn sem Johnson fékk leigt herbergi hjá taldi sig ekki skuld- bundinn til að kalla á lækni þar sem Johnson var ekki starfsmað- ur hans. Að lokum gaf Johnson upp andann, með miklum sársauka- veinum að sögn sjónarvotta. Talið var að striknín hefði verið sett í flöskuna en eiturefnafræðingar hafa slegið þá kenningu út af borðinu. Striknín sé of lyktarmikið til að fela í áfengi og Johnson hefði ekki getað lifað svona lengi. Dauði Johnson var ekki vel rannsakaður en landeigandinn sagði að hann hefði sennilega dáið úr sárasótt. Blúsáhuga- maðurinn Robert McCormick sagðist hafa fundið manninn sem eitraði innihald flöskunnar og fengið játninguna frá honum. McCormick vildi hins vegar ekki gefa upp hver sá maður var en flestir telja að það hafi verið eig- inmaður konunnar sem Johnson gaf sig á tal við. Uppgötvaðist á sjöunda áratugnum Áratugir liðu þar til almenningur áttaði sig á snilld Roberts John- son. Fyrst um sinn var hann næst- um gleymdur og tónlist hans hafði lítil áhrif á aðra blúsara. En í kringum 1960 varð mikil vakn- ing í bæði þjóðlagatónlist og blús. Áhugamenn þræddu smábæi í Suðurríkjunum og Appalachia- fjöllunum til að finna upptökur af týndum snillingum og ræða við eldra fólk sem hafði þekkt þá. Það var á þessum tíma sem fólk fór að veita Johnson eftirtekt og árið 1961 gaf útgáfufyrirtæk- ið Columbia út helstu verk hans á plötunni King of the Delta Blues Singers. Skyndilega varð hann frægur og sagan um að hann hefði selt sálu sína djöflinum var rifjuð upp. Fjöldi frægra tónlistarmanna, bæði í blús og rokki, varð fyrir áhrifum frá Johnson. Þar á meðal Bob Dylan, The Rolling Stones, Led Zeppelin, Eric Clapton og Fleetwood Mac. Margir fluttu sínar eigin útgáfur af verkum hans. n Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Robert Johnson Goðsagnakenndur blúsari sem dó aðeins 27 ára. O Brother, Where Art Thou? Persóna Chris Thomas King var að hluta til byggð á Robert Johnson. LEIÐANDI Í GREIÐSLULAUSNUM Greiðslulausnir tengdar helstu afgreiðslukerfum Allir posar frá Verifone taka við snertilausum greiðslum með farsímum Sjálfstandandi greiðslulausnir og handfrjálsir posar Hlíðasmára 12 201 Kópavogi verifone@verifone.is S: 544 5060 „Að lokum gaf John- son upp andann, með miklum sársaukaveinum samkvæmt sjónarvottum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.