Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Side 34
 22. febrúar 2019KYNNINGARBLAÐ 22. febrúar 2019 Fermingar Þjóðbúningasilfur saman stendur af því sem fer á búningana. Það eru aðallega myllur, borðar og belti, beltispör og slíkt,“ segir Dóra Jónsdóttir, gullsmiður hjá Gullkistunni, en hún hannar með- al annars þá dýrgripi sem prýða íslensku þjóðbúningana. Margt af þessu skarti er með flóknu mynstri og vaknar sú spurning hvort þetta sé ekki mjög vandasöm hönnun. „Þetta er misjafnlega vandasamt, það eru svo mörg mismunandi mynstur en sum eru steypt; það er búið að gera steypuna einfaldari, áður fyrr var sandsteypt og vinnan við það mun seinlegri, en hún er orðin auðveldari með þessari nýju steypu- tækni sem komið hefur fram á seinni tímum,“ segir Dóra. „Í víravirkinu er allt mynstur handgert. Myllurnar minna á fiðrildi og hafa því verið kölluð fiðrildavirki,“ bætir Dóra við, en miklu meiri fróð- leik má lesa um þetta forna skart á vefsíðunni thjodbuningasilfur.is. Að sögn Dóru er þjóðbúningasilfur vinsæl fermingargjöf hjá þeim stúlk- um sem hafa áhuga á þjóð búningum og sumar stúlkur eru fermdar í íslenska þjóðbúningnum. Dóra hannar einnig margs konar aðra fallega skartgripi í ýmsum verðflokkum en hún býr yfir gífurlegri reynslu í faginu. Hún hóf að nema gullsmíði árið 1949, þá 18 ára gömul, og hefur ávallt síðan starfað í faginu, eða í 70 ár. Gullkistan er til húsa að Frakkastíg 10 og hefur verið þar síð- an árið 1976. Gullkistan á marga gamalgróna viðskiptavini, en að sögn Dóru eru margir viðskiptavinir hennar Íslendingar búsettir í Noregi. „Það er miklu meiri hefð fyrir notkun þjóð- búninga í Noregi og Íslendingar sem flytjast þangað kynnast þeirri hefð,“ segir Dóra. Þar sem Gullkistan er miðsvæðis koma margir erlendir ferðamann í verslunina. Að sögn Dóru kaupa þeir sjaldan þjóðbúningasilfur heldur fremur smærri og ódýrari skart- gripi. Hins vegar eru útlendingarnir forvitnir um þjóðbúningasilfrið og vilja fræðast um það. Sem fyrr segir er meiri fróð- leik er að finna á vefsíðunni thjodbuningasilfur.is en áhugasamir er hvattir til að kíkja í Gullkistuna, Frakkastíg 10, og finna fallega ferm- ingargjöf. Þjóðbúningasilfur og fleiri skartgripir GULLKISTAN:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.