Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 72
72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 Lífrænar mjólkurvörur • Engin aukaefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra www.biobu.is Mangó jógúrt Fimm góðar ástæður til að velja lífræna jógúrt VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta verður líklega minn svana- söngur sem þýðandi,“ segir Þórdís Bachmann um þýðingu sína á Tale of Two Cities eftir Charles Dickens sem Ugla útgáfa gefur út undir heitinu Saga tveggja borga. „Á næsta ári verða liðin 34 ár síðan ég byrjaði í faginu,“ segir Þórdís og miðar þar við fyrstu bókina sem hún þýddi og út kom 1985, en á síðustu áratugum hef- ur hún þýtt um 1.200 kvikmyndir og á fimmta tug bóka eftir höfunda á borð við Alan Bennett, George Or- well, Ray Bradbury og Agöthu Christie. „Ég held að það hljóti að vera þokkalegt ævistarf.“ Þórdís hafði ekki þýðingar í huga þegar hún fetaði sín fyrstu skref á vinnumarkaði, en aðeins 17 ára göm- ul var hún ráðin sem klippari hjá Sjónvarpinu. „Þrándur Thoroddsen, sem síðar þýddi Andrésar Andar- blöðin af stakri prýði, var yfirmaður kvikmyndadeildar RÚV þegar ég 17 ára sótti um vinnu sem klippari. Ég hafði ekkert fram að færa, enda ekki með stúdentspróf, en var hins vegar nýbúin að vera í Danmörku í eitt ár, fyrst í lýðháskóla á Fjóni og síðan í Kaupmannahöfn þar sem ég vann í Magasin du Nord og sótti bíósýn- ingar í Grand. Í vinnuviðtalinu minntist ég á myndir eftir Buñuel, Schlesinger og Polanski sem ég hafði séð í Grand, en svo skemmtilega vildi til að Þrándur hafði lært í sama skóla og Polanski og kvikmyndatökumaður Schlesinger,“ segir Þórdís og þakkar Þrándi ráðninguna. „Þetta var byrj- unin á klipparaferli mínum,“ segir Þórdís, sem vann fyrst hjá RÚV og síðan hjá Danmarks Radio í Kaup- mannahöfn, Cinecittà í Róm og ABC Network í New York. Meðan Þórdís bjó í Bandaríkjunum nam hún fjöl- miðlafræði. „Smám saman varð ég spenntari fyrir skrifum en filmum,“ segir Þórdís, sem um tíma vann sem blaðamaður áður en hún sneri sér að þýðingum. Lengi verið sáð fyrir byltingu Hvernig og hvenær kviknaði bók- menntaáhugi þinn? „Ég fæddist inn í leikhúsfjölskyldu í Skuggahverfinu og var frá sex ára aldri mikið til ein heima á kvöldin,“ segir Þórdís, sem er dóttir Helgu Bachmann leikkonu og barnabarn Hallgríms Bachmann, ljósameistara Leikfélags Reykjavíkur og Þjóðleik- hússins. „Ég var sex ára þegar ég var búin að lesa allar bækurnar sem fylltu fjórar hillur á bókasafninu á Laufásvegi,“ rifjar Þórdís upp og bendir á að meðal bóka þar hafi verið Oliver Twist, David Copperfield og Ævintýri Pickwicks – allar eftir Charles Dickens, auk Tarzans og bóka Jules Vernes. „Þegar barna- bókunum sleppti sneri ég mér að full- orðinsbókunum sem til voru á heim- ilinu, en þar á meðal voru leikrit Shakespeare. Ég var því aðeins lítil stelpa þegar ég las Rómeó og Júlíu, sem var fyrsta leikritið í bókinni. Enginn var búinn að setja mig inn í jambískan pentameter og textinn var svo þungur að ég þurfti að lesa þetta með fingrinum, sem mér þótti mikil niðurlæging enda orðin sex ára og hafði verið fluglæs í rúmt ár. Ég hef aldrei lesið neitt annað með fingr- inum hvorki fyrr né síðar,“ rifjar Þór- dís kímin upp og tekur fram að þetta eigi leikhúsið og bókmenntirnar sam- eiginlegt – að byggja á hinu skrifaða orði. „Leikarar koma og fara, en orðið er eilíft,“ segir Þórdís, sem var ekki há í loftinu þegar hún fór að leggja leið sína niður í Þjóðleikhús með mat- arbita handa afa sínum. „Þegar ég var búin að færa honum bitann gat ég verið í ljósastúkunni og horft á æfing- ar og sýningar. Leikhúsið varð mitt annað heimili og þar þekkti ég hvern krók og kima. Stundum lá ég á brúnni yfir sviðinu með lakkrís- karamellur í sellófani sem ég lét svífa niður á sýningum,“ segir Þórdís sposk og tekur fram að fljúgandi sæl- gætisbréfin hafi ekki vakið mikla lukku. „Þetta var auðvitað svakaleg ögrun hjá þessu krakkarassgati sem ég var.“ Kom aldrei til greina að þú fetaðir í fótspor móður þinnar? „Ég fór á svið, en gerði eins og Greta Garbo – hætti á toppnum,“ segir Þórdís og rifjar upp að hún hafi leikið barn í verki eftir Jökul Jakobs- son. „Ég efast stórlega um að ég hefði getað enst í starfi sem krefst þess að fólk sé stöðugt á útopnu,“ segir Þórdís og tekur fram að munks- tilvera þýðandans henti henni betur. „Einveran hentar mér ekki illa og reyndar er varla hægt að láta sér leiðast í leitinni að ipsissima verba,“ segir Þórdís. Hún tekur fram að sér þyki gaman hversu sýnilegir þýð- endur eru orðnir og nefnir viðtal við Áslaugu Agnarsdóttur í Kiljunni og að RÚV sé einnig duglegt að hampa þýðendum. „Við erum þýðingarmikill hópur. Það er mikið af góðum þýð- endum á Íslandi og hefur alla tíð ver- ið.“ Hvers vegna varð Saga tveggja borga fyrir valinu hjá þér? „Saga tveggja borga talar með sterkum hætti inn í daginn í dag. Ein lykilsena í bókinni er þegar Dickens fjallar um frönsku byltinguna eins og hún hafi verið fyrsta byltingin í ver- aldarsögunni sem ekki var sáð fyrir. Eða eins og Dickens orðar það: „Það var eins og ekkert hefði nokkurn tím- ann verið gert, eða ekki verið gert, sem hefði leitt til hennar. Það var eins og þeir sem höfðu fylgst með ör- væntingarfullum milljónum Frakka og öllum þeim misnotuðu og ónotuðu auðlindum sem hefðu getað skapað þeim velmegun hefðu aldrei séð hana fyrir, mörgum árum áður, og aldrei talað berum orðum um það sem þeir sáu.“ Það var búið að vera að sá fyrir frönsku byltingunni í áratugi með því að útpíska fólk, arðræna það, eyðileggja og brjóta niður með hroka og steigurlæti eins og aðlinum einum er eiginlegt. Dickens er að skrifa um mikla ólgutíma og Ógn- arstjórnina, en slíkar stjórnir spretta alltaf upp öðru hverju og við sjáum slíkar stjórnir í samtímanum. Þetta þekkja margir í dag, ekki bara hér á Íslandi heldur víðs vegar um heiminn. Þetta er ástand sem er stöðugt að versna,“ segir Þórdís og tekur fram að sér þyki skipta miklu máli að bækur sem hún þýði tali með sterkum hætti til samtímans auk þess sem hún verði sjálf að kveikja á bókinni. „Ég hef tíma og orku í að þýða um þrjú verk á ári, en ég verð að vera spennt fyrir bókinni, því í svona nánu sambandi gengur ekki að að- eins annar tveggja sé áhugasamur. Þetta verður að vera gagnkvæmt.“ Allt gott drama þarf skúrk Hvernig hefur glíman við Dickens verið? „Þetta er eins og að borða fíl, mað- ur tekur bara einn bita í einu,“ segir Þórdís og tekur fram að tíminn sem það hafi tekið hana að þýða Sögu tveggja borga yfir á íslensku sé á við eina meðgöngu. „Dickens er algjör fagmaður og lipur penni. Stíll hans einkennist af háði. Á sama tíma skrifar hann fallegt mál sem er al- gjört hunang fyrir lesendur eða ætti ég að segja jarðarber með rjóma. Hann skefur ekki utan af neinu, frekar en aðrir stórir höfundar. Dic- kens er sérfræðingur í mannlýs- ingum og hefur áhuga á og þykir vænt um fólk. Þó það standi fremst í bókinni að þetta sé saga um frönsku byltinguna þá er þetta ekki saga um frönsku byltinguna, heldur saga um fólk sem lendir í frönsku bylting- unni. Þetta er ekki sagnfræði og langt frá því að vera þurrt. Eitt af höfundareinkennum Dickens er að skapa eina ógeðfellda týpu í hverri bók sem lesendur elska að hata, hvort heldur það er Madame Def- arge í Sögu tveggja borga eða Fagin í Oliver Twist. Hann passar alltaf upp á að vera með skúrk, enda þarf allt gott drama að hafa skúrk.“ Nú býrð þú og starfar í Kaup- mannahöfn. Hefur þú alltaf haft sterk tengsl við Danmörku? „Já, ég bjó þar og starfaði á átt- unda áratugnum áður en ég fluttist til Bandaríkjanna, en síðan flutti ég heim til Íslands. Þegar einkason- urinn var níu ára flutti ég aftur til Danmerkur og hef búið þar síðan með tveimur hléum,“ segir Þórdís sem tileinkar nýju þýðinguna Helga, syni sínum. „Auðvitað sakna ég Íslands og fólksins hér. Að mörgu leyti líkar mér þó ágætlega að búa í Danmörku. Samgöngur eru góðar og því þarf maður ekki að eiga bíl, verðlagið er gott og matur ódýr. Veðrið er betra og það er gaman að fara í leikhús. Það hefur ríkt stöðugleiki í þjóð- félaginu, en ég skynja hins vegar ákveðna breytingu í afstöðu lands- manna á allra síðustu misserum. Það fer æ meira fyrir lýðskrumi og tor- tryggni gagnvart öllum útlend- ingum, sem bitnar líka á mér. Reyndar þykir mér vænna um íslenskuna, því betur sem ég kynnist dönskunni. Íslenskan er svo falleg, tær og sterk. Hún er dýrgripur og í raun mætti lýsa henni sem áttunda undri veraldar – nema hvað hún er ekki áþreifanleg. Það er engin til- viljun að íslenskan hefur verið nefnd latína norðursins, enda sagðist danski málfræðingurinn Rasmus Kristian Rask hafa lært íslensku til þess að geta hugsað eins og maður.“ „Algjört hunang fyrir lesendur“  Saga tveggja borga eftir Charles Dickens kemur út á íslensku í þýðingu Þórdísar Bachmann  Hefur á ferlinum þýtt bækur eftir Alan Bennett, Ray Bradbury, Agöthu Christie og George Orwell Morgunblaðið/RAX Dýrgripur „Íslenskan er svo falleg, tær og sterk. Hún er dýrgripur og í raun mætti lýsa henni sem áttunda undri veraldar – nema hvað hún er ekki áþreifanleg,“ segir Þórdís Bachmann þýðandi. Þetta voru bestu tímar, þetta voru verstu tímar, þetta var öld visku, þetta var öld heimsku, tiltrúin sat við háborðið, vantrúin sat við há- borðið, þetta var tímabil ljóss, þetta var tímabil myrkurs, þetta var vor vonarinnar, þetta var vetur vonleys- isins, allt var framundan, ekkert var framundan, við vorum öll að fara beina leið til himna, við vorum öll að fara rakleitt í hina áttina – í stuttu máli sagt var aldarfarið svo líkt okk- ar, að háværustu yfirvöld þess kunn- gjörðu að einungis mætti lýsa því með hástigum lýsingarorða. Kjálkabreiður konungur og ófríð drottning sátu á veldisstóli í Eng- landi, kjálkabreiður konungur og fríð drottning sátu á veldisstóli í Frakklandi. Í báðum löndunum var öllum þeim lávörðum sem sáu um ríkisfjármál það deginum ljósara að allt væri nú frágengið í eitt skipti fyrir öll. […] Eftir götum Parísar rúlla dauðakerrurnar, holhljóma og harkalega. Sex kerrur bera vín dagsins til frú Fallaxar. Öll hin gráð- ugu og óseðjandi skrímsli sem hægt hefur verið að ímynda sér síð- an ímyndunaraflið varð til, safnast nú saman í eina raunveru: Fallöxina. Þó er ekki að finna eitt einasta blað, lauf, kvist eða rót í Frakklandi, með sinn margbreytilega úrvals- jarðveg, sem mun þroskast við öruggari skilyrði en þau sem sköp- uðu þetta hroðalega tæki. Ef mann- kynið verður barið í klessu með svipuðum hamri einu sinni enn, mun það aftur taka á sig sömu skældu mynd. Ef fræjum hömlu- lausra gripdeilda og kúgunar verð- ur sáð aftur, munu þau tvímæla- laust bera sömu ávexti. Upphaf Sögu tveggja borga „ÞETTA VORU BESTU TÍMAR, ÞETTA VORU VERSTU TÍMAR“ Charles Dickens » Enski rithöfundurinn og sam- félagsrýnirinn Charles Dickens fæddist 7. febrúar 1812 og lést 9. júní 1870. » Á ferli sín- um skrifaði hann 15 skáldsögur, fimm nóvell- ur, hundruð smásagna og ritstýrði tíma- riti um 20 ára skeið. » Dickens barðist ötullega fyrir réttindum barna, réttinum til menntunar og öðrum sam- félagsumbótum. » Meðal bóka hans eru Oliver Twist og Jólaævintýri. » Sögulega skáldsagan Saga tveggja borga kom út 1859.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.