Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is
Fækkaðu
hleðslu-
tækjunum
á heimilinu,
skrifstofunni
eða sumar-
bústaðnum.
Tengill með USB
Bernhard - Honda á Íslandi
Vatnagörðum 24 • 104 Reykjavík • Sími 520 1100 • www.honda.is
Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800 • Bílver, Akranesi, sími 431 1985
Höldur, Akureyri, sími 461 6020 • Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535
VERÐ KR. 1.690.000
4X4 • AFLSTÝRI • DCT SJÁLFSKIPT
SJÁLFSTÆÐ FJÖÐRUN • VATNSKÆLT
TRX420FA6
SVIÐSLJÓS
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fimm félagar á Seyðisfirði létu sig
ekki muna um það að aka í tæpan
sólarhring til þess að sjá Evrópu-
leik Vals og Benfica 18. september
1968. Ferðin gekk ekki áfallalaust
því nær 20 sinn-
um sprakk á
dekkjum rúss-
neska Mosans á
leiðinni til Ak-
ureyrar og síð-
asta spölinn
tróðu þeir heyi í
dekkin svo þeir
kæmust á
dekkjaverkstæði
til að kaupa ný
dekk áður en
haldið var áfram til Reykjavíkur.
Ferðalangarnir Þorvaldur Jó-
hannsson, bræðurnir Haraldur og
Sveinn Sigmarssynir, Andrés Ósk-
arsson, mágur þeirra, og Rúnar
Sigurbjörnsson á Bakka voru allir á
þrítugsaldri og þrír þeirra, Þorvald-
ur, Haraldur og Rúnar, spiluðu með
Hugin á Seyðisfirði.
Auglýsingarnar virkuðu
„Leikurinn var mikið auglýstur í
útvarpinu, stöðugt hljómaði „tekst
tannlæknanemanum frá Sauð-
árkróki að stöðva svarta pardus-
inn“, ég þekkti Pál Ragnarsson og
fleiri og það var Valshjarta í nokkr-
um hérna fyrir austan,“ rifjar Þor-
valdur upp. Hann segir að umræð-
an hafi kveikt í mönnum og margir
hafi spáð í að fara suður með rútu
en á endanum hafi aðeins fimm
ákveðið að taka slaginn. Sveinn hafi
átt nýlegan og lítið keyrðan Mosk-
vitch, sem hafði staðið ónotaður í
bílskúr í eitt og hálft ár, og þeir hafi
farið á honum. „Sveinn var bílstjór-
inn, ég var fararstjóri og sat við
hliðina á honum í framsætinu, en í
aftursætinu sátu Andrés, Rúnar og
Haraldur,“ segir Þorvaldur.
Tvö til vara en enginn tjakkur
Lagt var í hann um klukkan sex
að morgni daginn fyrir leik. Þor-
valdur segir að veðrið hafi verið
mjög gott og vel hafi gengið upp í
Egilsstaði.
„Svo gerist það að það springur á
Mosanum, rússneska kadílakknum
hans Svenna, bíl sem við treystum
til alls á þessum árum, þegar við
vorum komnir rétt norður fyrir
Fellabæinn. Við vorum með tvö
dekk til vara en tjakkur hafði
gleymst heima. Við skiptum því
með okkur verkum; ég skrúfaði
dekkið undan og þeir þrír sem sátu
í aftursætinu þrykktu bílnum upp
áður en við Svenni settum varadekk
undir. Við vorum fljótir að þessu en
til að gera langa sögu stutta þá
sprakk sennilega 16 til 18 sinnum
hjá okkur á leiðinni til Akureyrar,
þar af tvisvar á báðum afturdekkj-
unum í einu. Svo fúin voru dekkin.“
Þorvaldur segir að bætur hafi verið
í bílnum og í hvert sinn sem skipt
hafi verið um dekk hafi strákarnir í
aftursætinu rifið sprungnu slöng-
una úr og bætt hana. Þegar þeir
hafi verið komnir norður í Möðru-
dal hafi bæturnar verið búnar, en
þá hafi þeir mætt bónda á Willys-
jeppa á leið í Jökuldal. Hann hafi
lánað þeim tjakk og látið þá fá
nokkrar bætur. „Síðustu metrana
til Akureyrar komumst við með því
að troða heyi inn í dekkin,“ segir
Þorvaldur.
Nýju dekkin héldu það sem eftir
lifði ferðar og þeir komu til Reykja-
víkur um nóttina, tæplega sólar-
hring eftir að lagt var af stað. „Guð-
björn Jónsson, þjálfari hjá KR, var
mágur Halla og Svenna og hafði
keypt fyrir okkur miða. Við vorum í
góðu yfirlæti hjá honum áður en við
fórum á völlinn,“ segir Þorvaldur.
Leikurinn og sérstaklega úrslitin
voru mikil upplifun fyrir alla við-
stadda. „Valsarnir vörðust vel og
náðu tveimur eða þremur skotum
en mótherjarnir áttu 40 eða 50 skot
án þess að skora. Siggi tók allt sem
fór í gegnum vörnina.“
Árituðu tékkheftið
Þorvaldur segir að á óskiljan-
legan hátt hafi þeir komist í mót-
töku með liðunum á Loftleiðahót-
elinu eftir leik. „Við vildum hitta
erlendu goðin og eftir að mér tókst
að króa Eusébio, Coluna og Torres
af báðum við þá um eiginhand-
aráritanir. Við höfðum ekkert til að
skrifa á nema tékkhefti Andrésar
og ég fékk þá til þess að skrifa á
það. Mér er sérstaklega minn-
isstætt hvað Eusébio eða „Pardus-
inn“ hafði mikið langlundargeð og
nennti að standa í þessu.“
Upplifunin gleymist ekki. „Ferðin
er ógleymanleg, að horfa á leikinn
var stórkostlegt og gaman, og topp-
urinn var að hitta hetjurnar og fá
þær til þess að skrifa á tékkheftið,“
segir Þorvaldur. Hann bætir við að
því miður hafi tékkheftið glatast í
tiltekt eftir að Andrés dó. „En
minningin lifir.“
Fylltu dekkin af heyi á leið suður
Fimm Seyðfirðingar dóu ekki ráðalausir Sprakk nær 20 sinnum á Mosanum fyrir Benfica-leikinn
Morgunblaðið/Hari
Safngripir Halldór Einarsson lék í vörninni í leiknum fræga. Hér er hann með munina sem hann safnaði í sambandi við leikinn og lét ramma inn.
Umfjöllun Morgunblaðið gerði leiknum að sjálfsögðu góð skil.
Auglýsingastjórinn Baldvin Jóns-
son skoðar úrklippur frá leiknum.
Þorvaldur
Jóhannsson