Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 64
K
ristín Bjarnadóttir
fæddist í Ólafsvík
20.9. 1943 en ólst upp
í Reykjavík: „Ég var
fimm ára þegar for-
eldrar mínir festu kaup á íbúð í
Hlíðunum þar sem ég var næstu 25
árin, bjó síðan erlendis, í Stykk-
ishólmi og í Garðabæ en er nú aft-
ur komin á slóðir bernskunnar.“
Kristín dvaldi tvö sumur hjá
frændfólki á Djúpavogi, gekk í
Austurbæjarskóla og Kvennaskól-
ann, lauk stúdentsprófi frá MR
1963, BA-prófi í eðlisfræði og
stærðfræði frá HÍ 1968 og prófi í
uppeldis- og kennslufræðum frá
HÍ 1971, lauk M.Sc.-gráðu í stærð-
fræði frá Háskólanum í Oregon í
Eugene 1983 og PhD-gráðu í
stærðfræðimenntun frá Háskól-
anum í Hróarskeldu 2006.
Kristín kenndi stærðfræði og
eðlisfræði við Vogaskóla, Kvenna-
skólann og Grunnskólann í Stykk-
ishólmi til 1981, og við FG 1983-
2003, lengst af sem áfangastjóri.
Hún varð lektor við KHÍ 2003 og
síðan dósent og prófessor við HÍ.
Þá sinnti hún námsefnisgerð og
endurskoðun á námskrám í stærð-
fræði í hlutastörfum.
Kristín varð skáti 10 ára, sat í
mótstjórnum skátamóta og stjórn
Bandalags íslenskra skáta sem að-
stoðarskátahöfðingi, sat í Evrópu-
stjórn kvenskáta, vann við útgáfu-
störf, t.d. útgáfu Skátahandbók-
arinnar 1993: „Skátastarfið var þá
mjög öflugt og veigamikið. Í skáta-
heimilinu við Snorrabraut var allt-
af eitthvað á döfinni. Þetta starf
vakti áhuga minn á landinu, ferð-
um, fjallgöngum og skógrækt sem
fjölskyldan hefur stundað í tvo
áratugi í Stafholtstungum þar sem
hún á bústað og landskika. Hvað
segir ekki í skátalaginu:
„Komdu út því sólskinið vill sjá þig
sveifla haka’ og rækta nýjan skóg.““
Kristín Bjarnadóttir, prófessor emeritus – 75 ára
Fjölskyldan Kristín og Halldór með börnum, tengdabörnum og barnabörn-
um á ferðalagi í Frakklandi árið 2014.
Hún vill „sveifla haka’
og rækta nýjan skóg“
Kristín og Halldór nýstúdentar 1963. Kennedy var enn á lífi, unglingar í
Ameríku sungu gullfallegt japanskt lag, Sukiyaki með Kyu Sakamoto, en í
Bretlandi voru Bítlarnir að bylta dægurlagaheiminum með She Loves you.
64 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
Ég er í afmælisferð í Grikklandi ásamt fjölskyldunni, á eyjunniMýkonos. Ég var hérna í afmæli fyrir ári og ákvað þá að hérmyndi ég halda upp á sextugsafmælið mitt,“ segir Leifur
Hallgrímsson, framkvæmdastjóri og eigandi Mýflugs, en hann fagnar
einmitt 60 ára afmælinu í dag.
„Þetta er líka stór dagur því Ríkiskaup verða með útboð á sjúkra-
flugi og verða tilboðin opnuð klukkan 14.00 að íslenskum tíma í dag.
Það fer því dálítið eftir því hvernig útboðið fer hvað maður gerir en
það verður klárlega skálað á hvorn veginn sem verður.“
Mýflug sér einmitt um sjúkraflug á landinu alveg frá Bíldudal og
austur um að Vestmannaeyjum. „Flugvélarnar okkar eru á Akureyri
og þar erum við með skýli og aðstöðu fyrir flugmenn, sjúkraflutn-
ingamenn og lækna.“
Mýflug er einnig með útsýnisflug og gerir það flug út frá Reykja-
hlíðarflugvelli í Mývatnssveit. „Sumarið var frekar erfitt hjá okkur í
útsýnisfluginu, sterkt gengi krónunnar hefur gert það að verkum.
Okkar kúnnahópur er aðallega miðaldra fólk frá Mið-Evrópu og það
vita allir að komum þessa hóps hefur fækkað til landsins. En við höf-
um verið með útsýnisflugið frá 1989 og það er engan bilbug á okkur
að finna, við gefumst ekkert upp.“
Auk flugsins rekur Leifur Vogafjós ásamt systur sinni, en það er
vinsæll veitingastaður og gistihús á Mývatni. „Við erum líka með bú-
rekstur og nokkrar kindur og við tökum ekki þátt í íslenska landbún-
aðarkerfinu og nýtum allar afurðir búsins á veitingastaðnum. Við
fáum því ekki beingreiðslur í landbúnaðarkerfinu.“
Eiginkona Leifs er Gunnhildur Stefánsdóttir, fjármálastjóri hjá Mý-
flugi, og synir þeirra eru Hallgrímur Páll, flugmaður hjá Mýflugi, og
Einar Bjarki, háskólanemi í Reykjavík.
Fjölskyldan F.v.: Einar Bjarki, Gunnhildur, Leifur og Hallgrímur Páll.
Skálar hvernig sem
útboð á sjúkraflugi fer
Leifur Hallgrímsson er sextugur í dag
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Rétta
þjálfunin
sem veitir vellíðan!
Fjölbreyttir tímar frá
morgni til kvölds
Systurnar Perla
Dís Vignisdóttir
og Sóley Katla
Vignisdóttir héldu
tombólu á Akur-
eyri og söfnuðu
3.230 krónum.
Þær gáfu Eyja-
fjarðardeild Rauða
krossins söfn-
unarféð.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.