Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Straumhvörf
Audi A3 e-tron
sameinar tvo heima
► 17“ álfelgur ► Bakkmyndavél
► Dökkar rúður ► Málm/glitlakk
► Nálgunarvörn framan og aftan
► MMI útvarp ► Bluetooth símatenging
► Bluetooth tenging fyrir tónlist
► Dynamic stefnuljós ► LED afturljós
► Fjarstýrðar samlæsingar
► Lyklalaust aðgengi
► Tenging fyrir USB og Iphone
► Tvískipt sjálfvirk loftkæling
► Hæðarstillanleg framsæti
► Skriðstillir (Cruise control)
► Ljósa- og regnskynjari
► Skynjari fyrir loftþrýsting í hjólbörðum
► Baksýnisspegill með glýjuvörn
► Rafdrifnir upphitaðir og aðfellanlegir útispeglar
► Audi hljóðkerfi 180w með 10 hátölurum
► Leðurklætt aðgerðastýri ► Hiti í framsætum
► ABS bremsukerfi ► ESP stöðugleikastýring
► Árekstrarvörn (pre sense)
Listaverð 4.560.000 kr.
Tilboðsverð 4.090.000 kr.
Til afhend
ingar strax
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Félagið stendur vel og félags-
mönnum hefur fjölgað um meira en
300 á þessu ári. Við bindum vonir við
að virkir félagar verði orðnir 1.500 á
afmælinu en yfir fjögur þúsund
manns eru á skrá hjá okkur,“ sagði
Áki Ármann Jónsson, líffræðingur
og formaður Skotveiðifélags Íslands
(Skotvís). Félagið fagnar 40 ára af-
mæli 23. september en það var
stofnað þann dag árið 1978. Fé-
lagsmönnum og velunnurum er boð-
ið til afmælisfagnaðar 22. september
klukkan 16.00 á Nauthóli í Reykja-
vík. Þar munu m.a. Guðmundur Ingi
Guðbrandsson umhverfisráðherra
flytja ávarp og Ari Eldjárn skjóta á
veislugesti.
Áki þekkir vel til málefna skot-
veiðimanna en hann starfaði hjá
veiðistjóraembættinu og síðar Um-
hverfisstofnun. Hann hélt m.a. utan
um uppbyggingu og rekstur veiði-
kortakerfisins. Áki segir að Skotvís
hafi byrjað sem hagsmunafélag
skotveiðimanna og barist fyrir rétti
almennings til skotveiða. Félagið hóf
fræðslustarf fyrir skotveiðimenn
1990 og var ötult við námskeiðahald í
Reykjavík. Veiðistjóraembættið tók
námskeiðahaldið yfir 1996 þegar
veiðikortanámskeiðin fóru formlega
af stað. Áki vann að námskeiðunum
á vegum veiðistjóraembættisins og
var boðið upp á þau um allt landið.
Gerður var samningur við embætti
ríkislögreglustjóra árið 2000 um að
halda skotvopnanámskeið með svip-
uðum hætti.
„Það má segja að ég hafi tekið
frumkvæðið af Skotvís á sínum tíma,
reyndar óafvitandi,“ sagði Áki. „Í
nágrannalöndum okkar sjá systur-
félög Skotvís um fræðslu skotveiði-
manna. Það er spurning hvort sama
fyrirkomulag á ekki einnig að vera
hér.“
Áki sagði að Skotvís gegni mikil-
vægu hlutverki. Hið opinbera leitar
m.a. umsagna hjá félaginu varðandi
breytingar á lögum og reglum um
málefni skotveiðimanna. Skotvís á
einnig mikið samstarf við systur-
félög á Norðurlöndum og annars
staðar í Evrópu.
Meiri þörf fyrir fræðslu
Margt hefur breyst síðan Skotvís
var stofnað. Þá höfðu hlutfallslega
fleiri en nú haft bein kynni af sveit-
unum og náttúrunni. Mörg börn fóru
í sveit á hverju sumri. Nú hafa þessi
tengsl mikið rofnað.
„Ég var sendur í sveit frá fjögurra
ára aldri og var farinn að ganga um
með byssu til að verja æðarvarpið
norður á Melrakkasléttu tíu ára
gamall. Það er kannski ekki til eft-
irbreytni en svona var þetta,“ sagði
Áki. Hann fann hvað hann var betur
búinn undir að hefja skotveiðar en
sumir félagar hans sem kynntust
skotvopnanotkun fyrst á fjögurra
tíma námskeiði og gátu farið eftir
það út í skurð að skjóta gæsir.
„Meiri fræðsla, ekki síst frá öðr-
um veiðimönnum, er mjög mikilvæg.
Við stefnum á að opna skrifstofu í
Ármúla 7 fyrir afmælið og höfum
hug á að nota þá aðstöðu til nám-
skeiðahalds,“ sagði Áki.
Ytra umhverfi skotveiða hefur
einnig mikið breyst. „Fyrst er að
nefna þjóðlendulögin og svo er búið
að friðlýsa mjög mörg svæði á þess-
um 40 árum,“ sagði Áki. „Skot-
veiðimenn hafa gagnrýnt að orðalag
í sambandi við friðlýsingar hefur oft
verið loðið og óskýrt. Hér áður fyrr
var eins og texti friðlýsinga væri af-
ritaður og límdur. Það var kannski
verið að friðlýsa jarðvegsmyndanir
en samt voru skotveiðar bannaðar
þótt þær kæmu friðlýsingunni ekk-
ert við. Mér sýnist að menn hafi
vandað sig meira á síðari árum
þannig að friðlýsingar og verndar-
áætlanir séu meira í samræmi við til-
efnið en oft áður.“
Skotveiðimönnum fækkar
Áki segir að Skotvís hafi átt
þokkalega gott samstarf við yfirvöld
í gegnum tíðina. Þó séu undantekn-
ingar á því eins og þegar Guðlaugs-
tungur voru friðlýstar með skömm-
um fyrirvara og gæsaveiðar
bannaðar án sýnilegs tilefnis.
Skotveiðimönnum á Íslandi er að
fækka hlutfallslega og meðalaldur
þeirra að hækka. Þetta er svipuð
þróun og í nágrannalöndunum. „Á
móti kemur að konum sem stunda
skotveiðar er að fjölga. Þær virðast
vera betri skyttur en karlarnir og
vanda sig meira,“ sagði Áki.
Skotveiðikonunum er að fjölga
Skotveiðifélag Íslands er 40 ára 23. september Félagið berst fyrir réttindum skotveiðimanna
Félagsmönnum hefur fjölgað mikið á árinu Fleiri íslenskar konur farnar að stunda skotveiðar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skotvís Áki Ármann Jónsson formaður segir þörf á meiri fræðslu. Haldið verður upp á 40 ára afmælið á laugardag.