Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 )553 1620 Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík laugaas@laugaas.is • laugaas.is Veisluþjónusta Lauga-ás Afmæli Árshátíð Gifting Ferming Hvataferðir Kvikmyndir Íþróttafélög Við tökum að okkur að skipuleggja smáar sem stórar veislur. Lauga-ás rekur farandeldhús í hæsta gæðaflokki og getur komið hvert sem er á landinu og sett upp gæða veislu. Er veisla framundan hjá þér? Hafðu samband við okkur og við gerum þér tilboð. Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is „Það skiptir svo miklu máli hvað við gefum börnunum að borða, segir Herborg sem í daglegu tali er titluð forstöðumaður Matartím- ans. „Við leituðum til Sölufélags garðyrkjumanna með hugmyndina og þeir tóku henni opnum örm- um,“ segir Herborg. Hið fullkomna samstarf „Þarna er verið að nýta eitt besta grænmeti í heimi og Sölu- félag garðyrkjumanna hefur þarna tækifæri til að nýta betur hráefni sem ekki kemst í verslanir. Þá er- um við að tala um gulrætur sem eru of litlar og þar fram eftir göt- unum. Splunkunýtt góðgæti sem mögulega uppfyllti ekki útlits- staðla en er að öllu öðru leyti jafn góð vara. Fyrir vikið hefur nýt- ingin hjá Sölufélaginu aukist svo um munar og matarsóun hefur minnkað mjög mikið. Garð- yrkjubændur eru ákaflega stoltir af að stuðla að því að íslenskt grænmeti sé í auknum mæli á diskum skólabarna. Krakkarnir eru svo skemmtilegur neyt- endahópur og til að mynda fór allt fjólubláa blómkálið sem framleitt var í sumar beint í skólana og kláraðist upp til agna. Stærsti viðskiptavinahópurinn er leikskólarnir og hafa viðtök- urnar verið framar björtustu von- um. „Við í raun tökum yfir eldhús- ið í skólunum. Mætum með morgunmat, hádegismat og síð- degishressingu fyrir börnin. Þetta er þægileg lausn fyrir skólana og hefur mælst einkar vel fyrir. Mat- seðlarnir eru inni á heimasíðu Matartímans og þar er jafnframt hægt að sjá útreiknað næring- argildi fyrir hvern rétt. Gegnsæið er 100% enda hráefnið nánast allt unnið frá grunni,“ segir Herborg. Meðalneysla töluvert yfir viðmiðunarmörkum „Samkvæmt viðmiðum Land- læknisembættisins eiga börn að borða 500 grömm af grænmeti og ávöxtum á dag. Við erum í dag í 640 grömmum af grænmeti á dag og eru ávextirnir þá ótaldir. Þetta er því mikið fagnaðarefni að börn- in skuli borða svona vel af græn- metinu en okkar reynsla er að börnin séu sólgin í það. Við beit- um kannski líka öðrum aðferðum. Við litaröðum grænmetinu, sker- um það öðruvísi … þetta eru lítil atriði sem skipta þó máli. Aðal- atriðið hjá okkur er að við séum að bjóða upp á eins holla og góða fæðu og kostur er. Við notum ekki sykur og lágmörkum salt eins og kostur er.“ Allt brauð er einnig bakað á staðnum. „Við lögum allt deig sem við sendum í leikskólana, því fá börnin alltaf nýbakað brauð. Við notum líka eins lítið hveiti og kostur er og þessa dagana erum við í samstarfi við Þorvaldseyri og fáum frá þeim fínt bygg sem við bökum úr. Brauðin minna eig- inlega á gömlu normalbrauðin hvað áferð og þéttleika varðar en það er eitt af markmiðunum að vera með góð og saðsöm brauð. Við höfum heyrt það frá for- eldrum að börnin séu síður svöng þegar þau koma heim og rólegri. Eins hafa sumir talað um að börn- in sofi betur.“ Sjá sérstaklega um ofnæmisbörnin Matartíminn sérhæfir sig jafn- framt í mat fyrir börn með of- næmi. „Við tökum það ábyrgð- arhlutverk mjög alvarlega. Þannig hafa skólar sem eru með matráða sem eru á leið í frí, leitað til okkar á meðan enda kannski ekki hægt að ætlast til þess að afleysinga- starfsmaður axli jafn mikla ábyrgð,“ segir Herborg. Allt hrá- efnisval hjá þeim miðar við að þetta. Þannig er notuð laktósafrí mjólk og þar fram eftir götunum og glútenfrítt eins og kostur er. Herborg og Birgir eru staðföst í trú sinni á að gott hráefni og góð- ur matur skipti öllu þegar kemur að næringu fyrir börn. „Börn eru líka svo frábær hópur,“ segir Birgir og Herborg bætir við að þau séu langskemmtilegustu við- skiptavinirnir „Starfsfólk Mat- artímans er líka duglegt að fara í skólana og vinna þar. Taka púls- inn á því sem er verið að gera og hvernig börnunum líkar maturinn. Það er alltaf einhver mættur klukkan tíu til að spyrjast fyrir um hvað sé í matinn. Bæði hafa þau mikinn á huga á því hvað er í matinn auk þess sem þau deila skoðunum sínum umbúðalaust.“ Krakkarnir mjög meðvitaðir „Það er líka áhugavert að sjá eldri krakkana og þeirra neyslu- hætti. Það er sérstaklega gaman að fylgjast með krökkunum í ung- lingadeildum. Bæði eru þau sólgin í grænmetið enda mega þau fá sér eins mikið og þau vilja. Við skömmtum ekki á diskana enda væri það glórulaust. Af hverju að setja kartöflur á diskinn hjá ein- hverjum sem borðar ekki kart- öflur? Þess í stað ráða krakkarnir þessu sjálf og matarsóunin er nán- ast enginn. Krakkarnir eru mjög samfélagslega þenkjandi og vigta til að mynda alla matarafganga og eru mjög meðviðtuð. Í einni ung- lingadeild sem við þjónustum eru 550 börn mat á hverjum degi og samanlagt vega afgangarnir 5-10 kíló á dag sem er framúrskarandi árangur. Eiginlega fáheyrður,“ segir Birgir. „Þetta eru svo skemmtilegir krakkar og við fáum svo mikið til baka frá þeim. Þau eru ánægð með matinn og hika ekki við að faðma mann ef svo ber undir,“ segir Herborg en spurð um fram- hald Matartímans stendur ekki á svörum. „Við fórum af stað í haust en það var tekin mjög meðvituð ákvörðun um að vanda vel til verka. Sölufélagið getur vissulega bætt við sig verkefnum en í dag erum við að afgreiða 3.000 mál- tíðir á dag – fimm daga vikunnar og notum tvö tonn af grænmeti í hverri viku.“ Börnin skemmtilegustu viðskiptavinirnir Síðastliðið haust fór Sölufélag garðyrkjumanna af stað með verkefnið Matartíminn sem runnið er undan rifjum þeirra Herborgar Hjelm og Birgis Reynissonar. Herborg er fyrrverandi rekstrarsérfræðingur skólamötuneyta hjá Reykjavíkurborg og gekk ávallt með þann draum að fara út í sinn eigin rekstur og tryggja með þeim hætti að börnum væri boðin besta mögulega fæðan sem kostur væri á. Þau Birgir deila þessari bjargföstu trú og boða byltingu í næringu barna. Áherslan sé á besta hráefni sem kostur sé á og í samstarfi við íslenska garðyrkjubændur hefur Matartíminn hafið sig til flugs. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Með hjartað á réttum stað Herborg Hjelm og Birgir Reynisson hjá Matartímanum hafa mikinn metnað fyrir því að börn fái sem besta fæðu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.