Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
595 1000
Frá kr.
249.995
25. OKTÓBER
9 NÆTUR
tin
ga
ás
lík
u.
At
SIGGA HALL
MATUR & MENNING MEÐ
5 STJÖRNU LÚXUSFERÐ TIL MAROKKÓ
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Samtök iðnaðarins óska eftir því að
stjórn Ríkisútvarpsins ohf. setji all-
an samkeppnisrekstur sinn í dótt-
urfélög, en kveð-
ið er á um skyldu
þess efnis í 4.
grein laga nr. 23/
2013 um Ríkisút-
varpið, fjölmiðil í
almannaþágu.
Segja samtökin
að RÚV ohf. hafi
borið skylda til
þess að stofna
dótturfélög um
samkeppnis-
rekstur sinn frá 1. janúar síðast-
liðnum og að núverandi skipulag fé-
lagsins sé í beinni andstöðu við
framangreint lagaákvæði.
Lagaskylda að greina á milli
Í bréfi samtakanna til stjórnar
RÚV ohf., sem Morgunblaðið hefur
undir höndum, segir meðal annars
að forsenda heilbrigðs markaðar og
frjálsrar samkeppni sé að allir að-
ilar á markaði starfi eftir sömu leik-
reglum, þar á meðal ríkisrekin
fyrirtæki. Af þeirri ástæðu sé mik-
ilvægt að í starfsemi ríkisrekinna
fyrirtækja, sem að miklu eða öllu
leyti eru fjármögnuð af ríkisfé, sé
greint á milli almannahlutverks
þeirra og samkeppnisreksturs.
Í bréfinu er jafnframt rakið að í 4.
gr. laga nr. 23/2013 um Ríkisút-
varpið sé lögð sú skylda á RÚV að
aðgreina þann hluta starfsemi sinn-
ar sem snýr að almannahagsmun-
um frá samkeppnisrekstri félags-
ins, en 19. grein sömu laga kveður á
um að 4. greinin hafi tekið gildi 1.
janúar 2018. „Samtök iðnaðarins
vekja athygli stjórnar RÚV á því að
núverandi skipulag félagsins er í
beinni andstöðu við framangreint
lagaákvæði. Það leiðir enn fremur
til röskunar á samkeppnismarkaði.“
Í bréfinu er tekið fram að það sé
skylda stjórnar félagsins að sjá til
þess að skipulag og starfsemi þess
sé jafnan „í réttu og góðu horfi“ og
að það sé einnig áréttað bæði í sam-
þykktum og starfsreglum Ríkisút-
varpsins. Samtök iðnaðarins óska
því eftir því í lokaorðum bréfsins að
stjórn Ríkisútvarpsins ohf. komi
starfseminni „þegar í stað í lög-
mætt horf með því að setja allan
samkeppnisrekstur í dótturfélög“.
Unnið að útfærslunni
Kári Jónasson, formaður stjórnar
RÚV ohf., sem skráður er viðtak-
andi bréfsins, var erlendis í gær og
hafði því ekki séð erindið þegar
Morgunblaðið náði tali af honum í
gær. Magnús Geir Þórðarson út-
varpsstjóri sagði hins vegar að um-
rætt erindi hefði ekki borist stjórn
og því væri ekki hægt að bregðast
við því sem slíku og bætir við: „Ég
geri ráð fyrir að stjórn muni bregð-
ast við bréfinu þegar það hefur bor-
ist henni.“
Hann segir að hins vegar megi
nefna að unnið sé að útfærslu þess-
arar lagagreinar í samstarfi við
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið. „Það eru ýmis lagaleg álita-
efni sem finna þarf lausn á áður en
næstu skref verða tekin. Einnig er
rétt að benda á að þótt lagagreinin
hafi tekið gildi í upphafi árs, þá er
skýrt í bráðabirgðaákvæði í lögun-
um að núverandi fyrirkomulag er
heimilt enda segir þar: „Ríkisút-
varpinu er heimilt að afla tekna með
viðskiptaboðum, sölu og leigu á
vörum sem tengjast dagskrárefni
þess og annarri þjónustu sem fellur
undir 4. gr. þar til dótturfélög hafa
verið stofnuð og eru tekin til
starfa.““ Þá segir Magnús Geir að
lokum að hafa verði hugfast að
þessi starfsemi sé fjárhagslega að-
greinanleg í bókum Ríkisútvarps-
ins.
Hagi starfsemi eftir lögum
Samtök iðnaðarins skora á RÚV ohf. að skilja samkeppnisrekstur frá almanna-
hlutverki félagsins Unnið að útfærslu laga um Ríkisútvarpið, segir útvarpsstjóri
Magnús Geir
Þórðarson
Morgunblaðið/Ómar
Ríkisútvarpið Samtök iðnaðarins
sendu stjórn RÚV ohf. erindi.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi
forseti lýðveldisins, og Geir H.
Haarde, þáverandi forsætisráð-
herra, leituðu eftir aðstoð hjá leið-
togum Kínverja á vikunum eftir
hrun eftir að ljóst var orðið að ríki
Evrópu og Bandaríkin hygðust ekki
koma Íslandi til bjargar. Þetta
kemur fram í samtali Ólafs Ragn-
ars við fjölmiðlamanninn Loga
Bergmann Eiðsson, en samtal
þeirra verður sýnt í Sjónvarpi Sím-
ans kl. 20 í kvöld.
Ólafur Ragnar segir meðal ann-
ars í viðtalinu að þegar ljóst hafi
verið orðið að ekkert ríki Evrópu
ætlaði sér að hjálpa Íslendingum
hafi hann látið vin sinn, einn helsta
áhrifamann á verðbréfamarkaðnum
Wall Street í New York, hafa sam-
band við Timothy Geithner, þá
seðlabankastjóra New York-ríkis
og síðar fjármálaráðherra Banda-
ríkjanna, um hvort hægt væri að
aðstoða Íslendinga, en sá hafi farið
bónleiður til búðar. Í kjölfarið hafi
Ólafur Ragnar haft samband við
Geir H. Haarde og þeir ákveðið að
forsetinn myndi skrifa bréf til Hu
Jintao, forseta Kína. „Sem ég og
gerði og lýsti þessari stöðu Íslands
og fór kurteislega fram á að það
yrði búin til samræða við Kína um
einhvers konar aðstoð,“ segir Ólaf-
ur Ragnar. Sendiherra Kínverja
hafi verið kallaður til seint á laug-
ardagskvöldi til þess að koma bréf-
inu til skila, sem sýni hvernig
ástandið hafi verið.
„Síðan tók við merkilegt ferli í
marga mánuði þar sem ýmist Geir
eða ég skrifuðum bréf til annað-
hvort forsætisráðherra eða forseta
Kína og sendiherrann kínverski
kom til baka með munnleg skila-
boð,“ segir Ólafur Ragnar. Afleið-
ing þessara samskipta hafi meðal
annars verið þau að gerður var
gjaldeyrisskiptasamningur milli
Seðlabanka Kína og Seðlabanka Ís-
lands, sem aftur hafi ýtt við ríkjum
Evrópu að fara að sinna Íslandi
betur.
Ólafur Ragnar greinir einnig frá
því í viðtalinu að hann hafi í samtali
sínu við seðlabankastjóra Kína í
desember 2016 frétt af því að Hu
Jintao hafi gefið þau fyrirmæli til
fulltrúa Kínverja í stjórn Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins að hann skyldi
ávallt styðja Ísland gegn „ofsókn-
um Evrópuríkjanna“.
Ólafur Ragnar segir því mikil-
vægt að haldið sé til haga í allri
umræðu um samskipti Íslands og
Kína að þeir hafi verið tilbúnir, eft-
ir að bæði Evrópa og Bandaríkin
hafi neitað að aðstoða okkur, til
þess að senda umheiminum þau
skilaboð að Ísland skipti máli, án
þess að hafa nokkurn tímann óskað
eftir neinu í staðinn.
Kínverjar opnuðu dyr eftir
að aðrir lokuðu á Ísland
Ólafur Ragnar skrifaði til Hu Jintao og leitaði eftir aðstoð frá
Kínverjum Ísland ekki lengur á „áhugasviði“ Bandaríkjanna
Viðtal Nýir viðtalsþættir Loga Bergmanns Eiðssonar hefjast í Sjónvarpi Símans í kvöld. Fyrsti viðmælandinn er
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, sem ræðir meðal annars um viðbrögðin eftir bankahrunið.
Sjúklingum á bráðamóttöku Land-
spítala hefur verið forgangsraðað
vegna mikils álags að undanförnu.
„Álagið felst í því að það eru margir
sjúklingar sem hafa lokið fyrstu
meðferð á bráðamóttöku en komast
ekki til innlagnar á sérhæfðum legu-
deildum,“ segir Jón Magnús Krist-
jánsson, yfirlæknir bráðalækninga á
Landspítala.
„Orsökin er í sjálfu sér ekki slys
eða aukin veikindi, heldur skortur á
rúmum á legudeildum,“ sagði Jón
Magnús við mbl.is í gærkvöld. Hann
býst við því að ástandið geti varað í
nokkra daga. „Þetta ástand er alltaf
svolítinn tíma að byggjast upp. Það
hefur verið vaxandi álag undanfarna
daga og við gerum ráð fyrir því að
það taki líka nokkra daga að vinda
ofan af þessu.
Við gerum það bæði með því að
virkja spítalann allan til að leysa úr
þessu og líka í góðu samstarfi við
heilsugæslustöðvar á höfuðborgar-
svæðinu og Læknavaktina, og svo
sjúkrahúsin í nágrannasveitarfélög-
unum.“
Biðlað er til fólks með minna bráð
veikindi og minniháttar áverka að
leita til heilsugæslustöðvar í sínu
hverfi. „Heilsugæslan hefur aukið
mjög sína þjónustu undanfarin ár.
Allar heilsugæslustöðvar höfuðborg-
arsvæðisins eru með opna bráðatíma
á daginn sem fólk getur farið í án
þess að panta tíma,“ segir Jón Magn-
ús.
Sjúklingar komast
ekki á legudeildir
Mikið álag á Landspítala undanfarið
Vísitala leiguverðs á höfuðborgar-
svæðinu hækkaði um 2,9% í ágúst, á
sama tíma og íbúðaverð lækkaði um
0,1%. Þetta kemur fram í nýbirtum
tölum Þjóðskrár Íslands, en hækk-
un leiguverðs umfram hækkun
íbúðaverðs hefur aldrei verið meiri á
milli mánaða frá því að mælingar
hófust.
Árshækkun leiguverðs, sam-
kvæmt þinglýstum leigusamningum,
mælist nú 8,8% og hækkar frá fyrri
mánuði þegar hún mældist 8,3%. Til
samanburðar er árshækkun íbúða-
verðs í ágúst 4,1% og hefur ekki
mælst jafn lág síðan í maí 2011.
Sé litið til sögulegrar þróunar
hefur íbúðaverð þó hækkað hraðar
en leiguverð, en frá því að mælingar
hófust á vísitölu leiguverðs í janúar
2011 hefur leiguverð hækkað um
91% á sama tíma og íbúðaverð hefur
hækkað um 99%, að því er segir í til-
kynningu Íbúðalánasjóðs. Þetta er
þó sjötti mánuðurinn í röð þar sem
árshækkun leiguverðs er ofar árs-
hækkun íbúðaverðs.
Mikil
hækkun
leiguverðs
Íbúðaverð lækkaði
í síðasta mánuði