Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað
„Lógóið okkar er eins og áttavit-
inn, segulnálin vísar í norður en 67
er happatala fjölskyldunnar.
Langafi minn, Stefán Guðmunds-
son, keyrði hér um götur á vörubíl
sem var með þetta númer og þegar
hann lést átti hann 67 afkomendur.
Síðan hefur talan haldist innan fjöl-
skyldunnar og komið upp reglu-
lega. Afi minn og alnafni átti t.a.m.
ýmsar trillur og báta í gegnum tíð-
ina, alltaf með einkennisnúmerinu
SI 67,“ segir Marteinn.
Smökkunaraðstaða var til að
byrja með í suðurenda brugghúss-
ins og margir hafa komið þangað í
bjórkynningu, íslenskir hópar og
erlendir, litlir og stórir. M.a. er far-
ið inn í bruggsalinn og þar fá gestir
að vita hvernig bjórinn verður til og
jafnframt að láta renna í glös beint
af tönkum og þar er rakin saga
hússins, sem er merkileg út af fyrir
sig, því um langt árabil var þetta
einhver fjölmennasti vinnustaður
Siglufjarðar, alltaf kallaður Frysti-
hús S.R.
Áldósir og eiming á leiðinni
TIl stendur að setja upp átöpp-
unarvél fyrir forprentaðar 330 ml
áldósir, en fyrirtækið hefur fram til
þessa einungis verið með gler. „Við
munum byrja á Original og svo
koma hinir vonandi í framhaldinu.
Við erum því að fara að detta inn á
þann markað og hyggjumst bjóða
tíu dósir í rútu.
Svo hefur móttakan líka verið op-
in fyrir aðrar uppákomur á Siglu-
firði, sem ekkert tengjast fyrirtæk-
inu beint, þ.á m. upplestur, litla
tónleika og fleira. Uppskeruhátíð
Þjóðlagasetursins var t.d. haldin
þarna í lok ágúst. Okkur finnst
gaman að færa líf í húsið og gera
eitthvað, hafa einhverjar uppá-
komur,“ segir Marteinn.
Við þetta má bæta að á efri hæð
gamla frystihússins er líka gríð-
armikið rými og 4.-8. júlí sýndi
fjöldi listamanna þar verk sín á
sýningunni Afskekkt. Á döfinni er
að vera með fleiri slíka viðburði.
„Fyrir utan þetta allt er ýmislegt
fleira á döfinni, m.a. eiming. Þar er
fullt af möguleikum. Við munum
byrja á að fara út í gin, vodka og
snafs og skoða jafnvel viskí líka.
Það er að vísu langtímaverkefni.
Einn vina minna er kúabóndi í
Klauf í Eyjafirði og ræktar bygg og
fleira og við höfum verið að ræða
málin, áhugavert væri að nota ís-
lenska byggið hans í bjórinn og
eiminguna. Þannig að það eru
spennandi tímar fram undan. Þegar
eimingin verður hafin erum við að
stefna að því að bjóða upp á tvo
mismunandi túra um húsið, bjórtúr
og viskítúr. Fólk getur þá einfald-
lega valið eða tekið báða.“
Okkur finnst gaman að færa líf í húsið“
Brugghúsið Segull 67 á Siglufirði er vinsælt af heimamönnum og gestkomandi Var stofnað árið
2015 og hefur nú verið stækkað umtalsvert Áldósir eru að koma á markað og eiming á döfinni
Ljósmynd/Sigurður Ægisson
Bruggmeistarinn Marteinn Brynjólfur Haraldsson, einn af eigendum Seguls 67, lætur renna í glas úr einum af mörgum bruggtönkum.
VIÐTAL
Sigurður Ægisson
sae@sae.is
„Ég var búinn að vera að ferðast
mikið og í eitt skiptið þegar ég kom
heim til Íslands ákvað ég að prófa
að brugga og gerði það í nokkuð
mörg ár, langaði alltaf að gera eitt-
hvað meira úr þessu, var búinn að
gera alls konar tilraunir, en það var
ekki fyrr en ég tók ákvörðun um að
fara alla leið, alveg niður í rekstr-
aráætlunina, og náði að plata afa
minn og föður í þetta verkefni, árið
2015, að hjólin tóku að snúast fyrir
alvöru,“ segir Marteinn Brynjólfur
Haraldsson, 34 ára gamall tölv-
unarfræðingur og einn af eigendum
brugghússins Segull 67 á Siglufirði.
Það var sett á laggirnar árið 2015,
en þar hefur undanfarið verið unnið
að því að breyta og stækka, bæði í
framleiðslunni og aðstöðu til að
taka á móti sívaxandi gestafjölda.
„Við fengum í upphafi gamalt
frystihús á Siglufirði til afnota og
fórum að gera það upp, svo komu
græjurnar og við náðum að koma
jólabjór á markað þetta sama ár.“
Síðan hefur margt gerst og nú er
komið árið 2018 og þetta hefur
gengið vonum framar, segir Mar-
teinn. Fyrirtækið er með þrjár
bjórtegundir í Vínbúðunum, allan
ársins hring.
„Við byrjuðum á einni sem við
köllum Original, það er millidökkur
lagerbjór, næstur kom Sjarmör,
sem er ljós pilsnerstíll, og fyrir
ekki löngu komum við svo með
Sigló IPA, Indian Pale Ale-stíl,
hann er ávaxtakenndari og í honum
meira alkóhól. Síðan erum við að
reyna að nýta árstíðirnar til að gera
eitthvað öðruvísi, t.d. á þorra, um
páska, á sumrin, í október og um
jólin.“
Á heimasíðu Seguls 67, http://
www.segull67.is, má skoða myndir
af þessum tegundum öllum.
Happatala fjölskyldunnar
En hvaðan skyldi heiti fyrirtæk-
isins og merki koma?
Smökkunaraðstaða var til að byrja með í suðurenda brugghússins og
margir hafa komið þangað í bjórkynningu, íslenskir hópar og erlendir, litl-
ir og stórir. M.a. er farið inn í bruggsalinn og þar fá gestir að vita hvernig
bjórinn verður til og jafnframt að láta renna í glös beint af tönkum og þar
er rakin saga hússins, sem er merkileg út af fyrir sig, því um langt árabil
var þetta einhver fjölmennasti vinnustaður Siglufjarðar, alltaf kallaður
Frystihús S.R.
„Við áttum fyrst bara hluta byggingarinnar en eignuðumst hana svo
alla,“ segir Marteinn. „Þegar unnið var að breytingum fyrir einu og hálfu
ári kviknaði í út frá neista, að öllum líkindum; allir voru farnir heim, en
við vorum heppnir að lítið skemmdist hjá okkur, einungis hluti af bjór-
birgðunum og eitthvað út af vatninu. Þetta var nánar tiltekið 28. mars
2017. Undanfarið höfum við verið að gera allan þann part endanlega klár-
an, förum lengra inn í húsið, m.a. inn í gamla vélasalinn sem hélt öllu
köldu þarna áður fyrr, og getum núna tekið á móti enn fleiri gestum en
áður í heimsókn. Þar er kominn annar bar, ef fólk skyldi vilja dvelja lengur
og jafnvel fá aðkeyptan mat frá veitingastöðum í bænum. Þetta er mun
rúmbetra en fyrsta aðstaðan okkar.“
Tveir barir í Frystihúsi S.R.
SMÖKKUNARAÐSTAÐA
Gamli barinn Smökkunaraðstaðan. Annar bar hefur bæst við í nýju álmunni.