Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 Félagsráðgjafi Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir stöðu félagsráðgjafa lausa til umsóknar. Um er að ræða 100% starf. Staðan er laus frá og með 1. nóvember 2018 eða eftir samkomulagi. Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga (FSS) annast félags- og skólaþjónustu sveitarfélaganna á Snæfellsnesi, Snæfellsbæjar, Stykkishólmsbæjar, Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar og Eyja- og Miklaholtshrepps. Í sveitarfélögunum búa tæplega 3.900 íbúar. Hjá FSS starfa auk forstöðumanns, skólasálfræðing- ur, tveir félagsráðgjafar, tveir þroskaþjálfarar, náms- og starfsráðgjafi, talmeinafræðingur auk starfsfólks dagþjónustu- og hæfingarstöðva og stoðþjónustu sveitarfélaganna. Umsækjandi skal hafa starfsréttindi félags- ráðgjafa. Verkefni félagsráðgjafa taka til almennrar félags- og skólaþjónustu, barnaverndar og stoðþjónustu sveitarfélaga. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélags Íslands. Skrifleg umsókn tilgreini menntun, starfsferil, 1-2 umsagnaraðila ásamt prófskírteinum, starfsleyfi og sakavottorði berist Sveini Þór Elinbergssyni, forstöðumanni sem jafnframt veitir frekari upplýs- ingar um starfið í síma 430-7800, 861-7802 og tölvupósti sveinn@fssf.is Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ. Umsóknarfrestur er til 12. október.        Óskum eftir yfirvélstjóra með réttindi VVY1 og vélaverði með réttindi VV á Pálínu Ágústsdóttur EA-85 skrnr.1674. Frekari upplýsingar veitir Arnþór í síma 868-9398, einnig er hægt að senda fyrir- spurnir á netfangið kgehf@simnet.is.  VIÐ ÓSKUM EFTIR ÖFLUGUM MARKAÐSMANNI Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2018. Umsóknir skal senda til Markaðsstofu Reykjaness á netfangið markadsstofa@visitreykjanes.is. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Allar frekari upplýsingar gefa Berglind Kristinsdóttir, berglind@sss.is og Eggert Sólberg Jónsson, eggert@reykjanesgeopark.is. Markaðsstofa Reykjaness er sjálfseignarstofnun sem starfar náið með Reykjanes Unesco Global Geopark, Heklunni, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja, ferðaþjónustufyrirtækjum, stuðningsstofnunum og sveitar- félögum á Suðurnesjum að markaðssetningu svæðisins, eflingu ferða- þjónustu, fjölgun ferðamanna og lengingu dvalar þeirra með heildar- hagsmuni atvinnulífsins og samfélagsins á Suðurnesjum að leiðarljósi. Markaðsstofa Reykjaness leitar eftir öflugum starfsmanni í markaðsteymið sem hefur metnað og áhuga á ferðaþjónustu. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem snúa að markaðssetningu á Reykjanesi sem áfangastað, m.a. umsjón og uppfærslu á vefsíðum og samfélagsmiðlum, umsjón og vinnu við útgáfu kynningarefnis sem og samskipti við ferðaþjónustuaðila. Viðkomandi þarf að geta gengið í öll verkefni markaðsstofunnar er snúa að markaðs- og kynningarmálum. Helstu verkefni: • Umsjón með vefsíðum og samfélags- miðlum • Umsjón með kynningar- og markaðs- málum • Samskipti við hagsmunaðila, samstarfs- og stuðningsstofnanir • Skipulagning og þátttaka í sýningum og ráðstefnum innanlands og erlendis • Umsjón með heimsóknum blaðamanna og ferðaskrifstofa Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi • Mjög góð þekking á notkun samfélags- miðla • Metnaður í starfi og skipulagshæfileikar • Reynsla af markaðs- og ferðamálum mikilvæg • Lipurð í mannlegum samskiptum • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ritun og orði skilyrði, önnur tungumál kostur DEILDARSTJÓRI HEIMAÞJÓNUSTUDEILDAR Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf sem nýtist í starfinu. • Reynsla af stjórnun og rekstri. • Reynsla af breytingastjórnun kostur. • Leiðtogafærni og hæfni til að leiða teymisvinnu. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi. • Góð íslenskukunnátta skilyrði. Félagsmálastjóri er næsti yfirmaður deildarstjóra en um laun og starfskjör fer samkvæmt gildandi kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Elísa Sóley Magnúsdóttir, félagsmálastjóri (elisa.soley@hornafjordur.is) í síma 470 8000. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að senda umsóknir rafrænt á netfangið elisa.soley@hornafjordur.is og er umsóknarfrestur til og með 1. október 2018. Hlutverk deildarstjóra heimaþjónustu er að hafa umsjón með framkvæmd sértækrar þjónustu við fatlað fólk s.s. búsetu, dagþjónustu, hæfingu, ferðaþjónustu auk félagslegrar heimaþjónustu. Deildarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri heimaþjónustudeildar, skipuleggur vaktir og afleysingar, tekur á móti umsóknum og útfærir þjónustu til notenda. Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is  Sjá nánar á kopavogur.is www.kopavogur.is/is/stjornsysla/um-okkur/laus-storf Laus störf hjá Kópavogsbæ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.