Morgunblaðið - 20.09.2018, Síða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
Félagsráðgjafi
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir stöðu
félagsráðgjafa lausa til umsóknar. Um er að ræða
100% starf. Staðan er laus frá og með 1. nóvember
2018 eða eftir samkomulagi.
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga (FSS)
annast félags- og skólaþjónustu sveitarfélaganna á
Snæfellsnesi, Snæfellsbæjar, Stykkishólmsbæjar,
Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar og Eyja- og
Miklaholtshrepps.
Í sveitarfélögunum búa tæplega 3.900 íbúar.
Hjá FSS starfa auk forstöðumanns, skólasálfræðing-
ur, tveir félagsráðgjafar, tveir þroskaþjálfarar, náms-
og starfsráðgjafi, talmeinafræðingur auk starfsfólks
dagþjónustu- og hæfingarstöðva og stoðþjónustu
sveitarfélaganna.
Umsækjandi skal hafa starfsréttindi félags-
ráðgjafa.
Verkefni félagsráðgjafa taka til almennrar félags-
og skólaþjónustu, barnaverndar og stoðþjónustu
sveitarfélaga.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélags
Íslands.
Skrifleg umsókn tilgreini menntun, starfsferil, 1-2
umsagnaraðila ásamt prófskírteinum, starfsleyfi og
sakavottorði berist Sveini Þór Elinbergssyni,
forstöðumanni sem jafnframt veitir frekari upplýs-
ingar um starfið í síma 430-7800, 861-7802 og
tölvupósti sveinn@fssf.is
Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ.
Umsóknarfrestur er til 12. október.
Óskum eftir yfirvélstjóra með réttindi
VVY1 og vélaverði með réttindi VV á
Pálínu Ágústsdóttur EA-85 skrnr.1674.
Frekari upplýsingar veitir Arnþór í síma
868-9398, einnig er hægt að senda fyrir-
spurnir á netfangið kgehf@simnet.is.
VIÐ ÓSKUM EFTIR
ÖFLUGUM MARKAÐSMANNI
Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2018.
Umsóknir skal senda til Markaðsstofu Reykjaness á netfangið
markadsstofa@visitreykjanes.is. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst.
Allar frekari upplýsingar gefa Berglind Kristinsdóttir, berglind@sss.is
og Eggert Sólberg Jónsson, eggert@reykjanesgeopark.is.
Markaðsstofa Reykjaness er sjálfseignarstofnun sem starfar náið með
Reykjanes Unesco Global Geopark, Heklunni, atvinnuþróunarfélagi
Suðurnesja, ferðaþjónustufyrirtækjum, stuðningsstofnunum og sveitar-
félögum á Suðurnesjum að markaðssetningu svæðisins, eflingu ferða-
þjónustu, fjölgun ferðamanna og lengingu dvalar þeirra með heildar-
hagsmuni atvinnulífsins og samfélagsins á Suðurnesjum að leiðarljósi.
Markaðsstofa Reykjaness leitar eftir öflugum starfsmanni
í markaðsteymið sem hefur metnað og áhuga á ferðaþjónustu.
Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem snúa að markaðssetningu
á Reykjanesi sem áfangastað, m.a. umsjón og uppfærslu á vefsíðum
og samfélagsmiðlum, umsjón og vinnu við útgáfu kynningarefnis
sem og samskipti við ferðaþjónustuaðila.
Viðkomandi þarf að geta gengið í öll verkefni markaðsstofunnar
er snúa að markaðs- og kynningarmálum.
Helstu verkefni:
• Umsjón með vefsíðum og samfélags-
miðlum
• Umsjón með kynningar- og markaðs-
málum
• Samskipti við hagsmunaðila, samstarfs-
og stuðningsstofnanir
• Skipulagning og þátttaka í sýningum og
ráðstefnum innanlands og erlendis
• Umsjón með heimsóknum blaðamanna
og ferðaskrifstofa
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Mjög góð þekking á notkun samfélags-
miðla
• Metnaður í starfi og skipulagshæfileikar
• Reynsla af markaðs- og ferðamálum
mikilvæg
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
í ritun og orði skilyrði, önnur tungumál
kostur
DEILDARSTJÓRI HEIMAÞJÓNUSTUDEILDAR
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfinu.
• Reynsla af stjórnun og rekstri.
• Reynsla af breytingastjórnun kostur.
• Leiðtogafærni og hæfni til að leiða teymisvinnu.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
• Góð íslenskukunnátta skilyrði.
Félagsmálastjóri er næsti yfirmaður deildarstjóra en um
laun og starfskjör fer samkvæmt gildandi kjarasamningi
launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Elísa Sóley Magnúsdóttir,
félagsmálastjóri (elisa.soley@hornafjordur.is) í síma
470 8000.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að senda
umsóknir rafrænt á netfangið elisa.soley@hornafjordur.is
og er umsóknarfrestur til og með 1. október 2018.
Hlutverk deildarstjóra heimaþjónustu er að hafa umsjón með framkvæmd sértækrar þjónustu við fatlað fólk s.s. búsetu,
dagþjónustu, hæfingu, ferðaþjónustu auk félagslegrar heimaþjónustu. Deildarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri
heimaþjónustudeildar, skipuleggur vaktir og afleysingar, tekur á móti umsóknum og útfærir þjónustu til notenda.
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
Sjá nánar á kopavogur.is
www.kopavogur.is/is/stjornsysla/um-okkur/laus-storf
Laus störf
hjá Kópavogsbæ