Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 77
MENNING 77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
ICQC 2018-20
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklu meira en bara ódýrt!
SONAX bílavörur í miklu
úrvali á mjög góðu verði
Háþrýstidælur
1650W
Óskarsverðlaunaleikstjórinn og
myndlistarmaðurinn Steve
McQueen ræðst á næstunni í afar
viðamikið verkefni í samstarfi við
Tate Britain-safnið. Hann mun
ásamt hópi um 30 ljósmyndara taka
myndir af öllum þriðju bekkjum í
barnaskólum Lundúna, alls um 115
þúsund börnum í 2.410 skólum, og er
verkefninu lýst sem einu því viða-
mesta sem listamaður hefur ráðist í
þar í landi. Afraksturinn verður
sýndur í safninu næsta vor auk þess
sem sýningar á úrvali bekkjarmynd-
anna verða settar upp í öllum 33
hverfum borgarinnar. Á sama tíma
verður sett upp yfirlitssýning á
myndlistarverkum McQueens í Tate
Britain.
Listamaðurinn vinnur verkið með
sérfræðingum í skapandi menntun í
stofnuninni A New Direction og Ar-
tangel-stofnuninni sem styrkir alls
kyns myndlistarverkefni en það rek-
ur til að mynda Vatnasafn Roni
Horn í Stykkishólmi.
McQueen segir verkið fá fólk til að
hugsa um hver við erum, hvaðan við
komum og hver framtíðin verði.
Myndar alla þriðjubekkinga í London
Ljósmynd/Tate/PA
Bekkjarmynd Bekkur í Little Ealing-
grunnskólanum sem verður á sýningunni.
Leikritið Blá-
klukkur fyrir
háttinn eftir
Hörpu Arnar-
dóttur verður
sýnt í mongólsku
hirðingjatjaldi í
porti Hafnar-
hússins í kvöld kl.
20 og um helgina,
bæði laugardag
og sunnudag, kl. 14.
„Leiðsögukona tekur á móti gest-
um og leiðir þá inn í töfraveröld
tjaldsins þar sem hlustað verður á
Bláklukkurnar. Leikarar eru Krist-
björg Kjeld, Ingvar E. Sigurðsson og
Harpa Arnardóttir. Einar Sigurðs-
son gerði hljóðmynd,“ segir í til-
kynningu.
Verkið var frumsýnt á Listahátíð í
Reykjavík 2018 og þá sýnt í hverjum
landsfjórðungi. Heilmildarmynd eft-
ir Margréti H. Blöndal um leikritið
er sýnd á afgreiðslutíma safnsins í
fjölnotarými þess sem er gegnt port-
inu þar sem hirðingjatjaldið stend-
ur. Gestir safnsins geta líka gengið í
kringum tjaldið og heyrt í hljóðverk-
inu. Miðar eru seldir á tix.is.
Bláklukkur fyrir háttinn í Hafnarhúsinu
Harpa Arnardóttir
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það er nauðsynlegt að hafa húmor
fyrir lífinu og spillingunni sem við-
gengst hér á landi, annars kemst
maður ekki af. Það er ekkert sem
opnar hjartað jafn mikið og hlátur
og þegar hjartað opnast getur lækn-
ingin hafist,“ segir Bergur Þór Ing-
ólfsson, leikstjóri Svartlyngs sem er
nýtt íslenskt gamanleikrit, sem
GRAL-leikhópurinn frumsýnir í
Tjarnarbíói annað kvöld kl. 20.
Verkið, sem er eftir Guðmund
Brynjólfsson, er sagt vera sót-
svartur hvítþveginn gamanleikur
um Svartlyngsættina, sem á dóm-
stólana, stjórnaráðið, löggjafar-
þingið og mannar öll embætti í nafni
Svartlyngsættarinnar, sem á flokk-
inn. Þegar ríkisstjórn Svartlynga
riðar til falls ákveður ráðherra að
ráða gluggaþvottamann til að sýna
að allt sé uppi á borðum og gegnsætt
í hans ráðuneyti. En það er ekki nóg
og því fá hausar og hendur að fjúka
til að spillingin nái ekki að brjótast
upp á yfirborðið og Svartlyngsættin
nái að passa upp á sitt en ekki sína.
„Leikhópurinn hefur unnið með
Guðmundi Brynjólfssyni, höfundi
verksins, og fengum við til okkar
dómara, blaðamenn og alþingis-
menn, einnig fórum við í gegnum
skýrslu GRECO um varnir gegn
spillingu hjá æðstu valdhöfum fram-
kvæmdavalds og löggæslu á Íslandi.
Viðbrögð dómsmálaráðherra við
skýrslunni voru að gera lítið úr
nefndinni í stað þess að hrekja ávirð-
ingar eða laga það sem á var bent,
sem er í rauninni fyndið,“ segir
Bergur og bætir við að það sé
áhugavert að velta því upp hvað vaki
fyrir fólki í valdastöðu; hvort það
eigi einhver önnur lögmál við um
þann hóp. Það megi líka velta fyrir
sér þeirri lensku að þegar einhver
brýtur traust sé viðbragðið að grafa
undan trausti einhvers annars.
Háðsk ádeila og gamanleikur
„Það má segja að Svartlyng sé
háðsk ádeila, gamanleikur um
absúrd-realisma. Þvæla um þvælu
sem fólk getur fengið framan í sig
þegar það þarf að takast á við stjórn-
kerfið,“ segir Bergur og fer ekki í
grafgötur með að tilurð verksins
megi rekja til þess er hann og fólk
náið honum vildu leita svara við því
hvers vegna dæmdur kynferðis-
brotamaður hefði fengið uppreist
æru. Hverjir hefðu ábyrgst hann og
hvers vegna hann hefði fengið lög-
mannsréttindi á ný auk vinnubragða
dómsmálaráðherra og samflokks-
manna hennar.
„Það sem mætti okkur var óskilj-
anleg mótspyrna þar sem allt kapp
var lagt á að fela gögn málsins. Nú
ári eftir að ríkisstjórnin féll í kjölfar
þess að við kröfðumst svara virðist
raunveruleikinn fáranlegri en skáld-
skapurinn. Við erum að reyna að
fanga þennan fáránleika sem er svo
út í hött að það verður farsakennt,“
segir Bergur og spyr hvort það komi
þá ekki öllum við þegar einhver
ábyrgist einhvern gagnvart öllum.
Af hverju allir megi ekki vita af því.
Farsinn þarf að endurnýja sig
„Svartlyng er ekki formúlufarsi
sem slíkur. Farsi hefur yfirleitt
gengið út á framhjáhald og lygar og
að konan sé viljalaust verkfæri
karla. Farsinn þarf algjörlega að
endurnýja sig, rétt eins og sam-
félagið í þessum málum. Farsi er í
rauninni einhver sem lýgur ein-
hverju og svo vindur lygin upp á
sig,“ segir Bergur og bætir við að í
Svartlyngi sé verið að fást við spurn-
inguna hvað vaki fyrir fólki þegar
hægt sé að hafa eðlileg samskipti í
gegnsæju stjónkerfi með gagnrýnni
hugsun en nýta sér það ekki.
„Að eiga við íslenska kerfið er eins
og að stíga inn í ókunna vídd, ein-
hverja skrípaveröld sem engan veg-
inn er hægt að fá nokkurt vit í og það
er í raun fyndið. Við erum að reyna
að sjá mannlega þáttinn í þessu sem
leiði okkur yfir í aðra röksemda-
heima þar sem veruleikinn stenst
ekki skoðun,“ segir Bergur.
Gamanleikurinn hefst á því að
sögn Bergs að ráðherra kynnir auk-
ið gegnsæi og til þess að koma því í
verk ræður hann gluggaþvotta-
mann. „Í verkinu birtast bækur af
og til og það er misjafnt hvenær má
sýna úr þeim og hvenær ekki. Hve-
nær bók er týnd og hvenær hún
kemur í leitirnar. Þá kemur fram öll
sú vinna sem fólk leggur á sig til
þess að halda bók týndri. Þetta er
náttúrlega bráðfyndið og raunveru-
legt efni,“ segir Bergur sem bíður
spenntur eftir frumsýningunni.
Grindvíska atvinnuleikhúsið
Leikarar í Svartlyngi eru félagar
úr GRAL sem áður var Grindvíska
atvinnuleikhúsið en hefur nú flutt
starfsemi sína til Reykjavíkur.
Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig
Guðmundsdóttir, Benedikt Gröndal,
Þór Tulinius og Valgerður Rúnars-
dóttir leika í verkinu. Leikmynda-
og búningahönnuður er Eva Vala
Guðjónsdóttir og ljósahönnun er í
höndum Magnúsar Arnars Sigurðs-
sonar og Hafliða Emils Barðasonar
sem einnig sér um sviðsstjórn.
„Ég er fyrsti atvinnuleikarinn í
sögu Grindavíkur og langaði að
stofna hálfatvinnuleikhús á heima-
slóðum. Fyrstu þrjár sýningar okk-
ar voru byggðar á sögum úr nær-
umhverfinu,“ segir Bergur og bætir
við að pólitískur áhugi á að styðja við
GRAL í Grindavík hafi dofnað og því
hafi leikhúsið flutt sig sem listfélag
til Reykjavíkur.
„Svartlyng er fimmta verk leik-
hópsins en mörg okkar hafa starfað
saman í yfir 20 ár. Öll verk sem
GRAL hefur sýnt eru frumflutn-
ingur. Við unnum til Grímuverð-
launanna með sýningunni Horn á
höfði og fengum tilnefningu til
þeirra verðlauna fyrir verkið 21
manns saknað,“ segir Bergur en auk
þess hefur GRAL sýnt verkin Enda-
lok alheimsins og Eiðinn og eitthvað.
Raunveruleikinn reyndist
fáránlegri en skáldskapurinn
GRAL frumsýnir Svartlyng í Tjarnarbíói Farsinn þarf að endurnýja sig eins og samfélagið
Morgunblaðið/Eggert
Þvæla um þvælu Leikstjórinn Bergur Þór Ingólfsson ásamt leikhópi sínum sem í eru Benedikt Gröndal, Sólveig
Guðmundsdóttir, Valgerður Rúnarsdóttir, Þór Tulinius og Sveinn Ólafur Gunnarsson á æfingu í Tjarnarbíói.