Morgunblaðið - 20.09.2018, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
)553 1620
Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík
laugaas@laugaas.is • laugaas.is
Veisluþjónusta
Lauga-ás
Afmæli
Árshátíð
Gifting
Ferming
Hvataferðir
Kvikmyndir
Íþróttafélög
Við tökum að okkur að skipuleggja
smáar sem stórar veislur.
Lauga-ás rekur farandeldhús í hæsta
gæðaflokki og getur komið hvert sem
er á landinu og sett upp gæða veislu.
Er veisla framundan hjá þér?
Hafðu samband við okkur og við
gerum þér tilboð.
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
„Það skiptir svo miklu máli hvað
við gefum börnunum að borða,
segir Herborg sem í daglegu tali
er titluð forstöðumaður Matartím-
ans. „Við leituðum til Sölufélags
garðyrkjumanna með hugmyndina
og þeir tóku henni opnum örm-
um,“ segir Herborg.
Hið fullkomna samstarf
„Þarna er verið að nýta eitt
besta grænmeti í heimi og Sölu-
félag garðyrkjumanna hefur þarna
tækifæri til að nýta betur hráefni
sem ekki kemst í verslanir. Þá er-
um við að tala um gulrætur sem
eru of litlar og þar fram eftir göt-
unum. Splunkunýtt góðgæti sem
mögulega uppfyllti ekki útlits-
staðla en er að öllu öðru leyti jafn
góð vara. Fyrir vikið hefur nýt-
ingin hjá Sölufélaginu aukist svo
um munar og matarsóun hefur
minnkað mjög mikið. Garð-
yrkjubændur eru ákaflega stoltir
af að stuðla að því að íslenskt
grænmeti sé í auknum mæli á
diskum skólabarna. Krakkarnir
eru svo skemmtilegur neyt-
endahópur og til að mynda fór allt
fjólubláa blómkálið sem framleitt
var í sumar beint í skólana og
kláraðist upp til agna.
Stærsti viðskiptavinahópurinn
er leikskólarnir og hafa viðtök-
urnar verið framar björtustu von-
um. „Við í raun tökum yfir eldhús-
ið í skólunum. Mætum með
morgunmat, hádegismat og síð-
degishressingu fyrir börnin. Þetta
er þægileg lausn fyrir skólana og
hefur mælst einkar vel fyrir. Mat-
seðlarnir eru inni á heimasíðu
Matartímans og þar er jafnframt
hægt að sjá útreiknað næring-
argildi fyrir hvern rétt. Gegnsæið
er 100% enda hráefnið nánast allt
unnið frá grunni,“ segir Herborg.
Meðalneysla töluvert yfir
viðmiðunarmörkum
„Samkvæmt viðmiðum Land-
læknisembættisins eiga börn að
borða 500 grömm af grænmeti og
ávöxtum á dag. Við erum í dag í
640 grömmum af grænmeti á dag
og eru ávextirnir þá ótaldir. Þetta
er því mikið fagnaðarefni að börn-
in skuli borða svona vel af græn-
metinu en okkar reynsla er að
börnin séu sólgin í það. Við beit-
um kannski líka öðrum aðferðum.
Við litaröðum grænmetinu, sker-
um það öðruvísi … þetta eru lítil
atriði sem skipta þó máli. Aðal-
atriðið hjá okkur er að við séum
að bjóða upp á eins holla og góða
fæðu og kostur er. Við notum ekki
sykur og lágmörkum salt eins og
kostur er.“
Allt brauð er einnig bakað á
staðnum. „Við lögum allt deig sem
við sendum í leikskólana, því fá
börnin alltaf nýbakað brauð. Við
notum líka eins lítið hveiti og
kostur er og þessa dagana erum
við í samstarfi við Þorvaldseyri og
fáum frá þeim fínt bygg sem við
bökum úr. Brauðin minna eig-
inlega á gömlu normalbrauðin
hvað áferð og þéttleika varðar en
það er eitt af markmiðunum að
vera með góð og saðsöm brauð.
Við höfum heyrt það frá for-
eldrum að börnin séu síður svöng
þegar þau koma heim og rólegri.
Eins hafa sumir talað um að börn-
in sofi betur.“
Sjá sérstaklega
um ofnæmisbörnin
Matartíminn sérhæfir sig jafn-
framt í mat fyrir börn með of-
næmi. „Við tökum það ábyrgð-
arhlutverk mjög alvarlega. Þannig
hafa skólar sem eru með matráða
sem eru á leið í frí, leitað til okkar
á meðan enda kannski ekki hægt
að ætlast til þess að afleysinga-
starfsmaður axli jafn mikla
ábyrgð,“ segir Herborg. Allt hrá-
efnisval hjá þeim miðar við að
þetta. Þannig er notuð laktósafrí
mjólk og þar fram eftir götunum
og glútenfrítt eins og kostur er.
Herborg og Birgir eru staðföst í
trú sinni á að gott hráefni og góð-
ur matur skipti öllu þegar kemur
að næringu fyrir börn. „Börn eru
líka svo frábær hópur,“ segir
Birgir og Herborg bætir við að
þau séu langskemmtilegustu við-
skiptavinirnir „Starfsfólk Mat-
artímans er líka duglegt að fara í
skólana og vinna þar. Taka púls-
inn á því sem er verið að gera og
hvernig börnunum líkar maturinn.
Það er alltaf einhver mættur
klukkan tíu til að spyrjast fyrir
um hvað sé í matinn. Bæði hafa
þau mikinn á huga á því hvað er í
matinn auk þess sem þau deila
skoðunum sínum umbúðalaust.“
Krakkarnir mjög meðvitaðir
„Það er líka áhugavert að sjá
eldri krakkana og þeirra neyslu-
hætti. Það er sérstaklega gaman
að fylgjast með krökkunum í ung-
lingadeildum. Bæði eru þau sólgin
í grænmetið enda mega þau fá sér
eins mikið og þau vilja. Við
skömmtum ekki á diskana enda
væri það glórulaust. Af hverju að
setja kartöflur á diskinn hjá ein-
hverjum sem borðar ekki kart-
öflur? Þess í stað ráða krakkarnir
þessu sjálf og matarsóunin er nán-
ast enginn. Krakkarnir eru mjög
samfélagslega þenkjandi og vigta
til að mynda alla matarafganga og
eru mjög meðviðtuð. Í einni ung-
lingadeild sem við þjónustum eru
550 börn mat á hverjum degi og
samanlagt vega afgangarnir 5-10
kíló á dag sem er framúrskarandi
árangur. Eiginlega fáheyrður,“
segir Birgir.
„Þetta eru svo skemmtilegir
krakkar og við fáum svo mikið til
baka frá þeim. Þau eru ánægð
með matinn og hika ekki við að
faðma mann ef svo ber undir,“
segir Herborg en spurð um fram-
hald Matartímans stendur ekki á
svörum. „Við fórum af stað í haust
en það var tekin mjög meðvituð
ákvörðun um að vanda vel til
verka. Sölufélagið getur vissulega
bætt við sig verkefnum en í dag
erum við að afgreiða 3.000 mál-
tíðir á dag – fimm daga vikunnar
og notum tvö tonn af grænmeti í
hverri viku.“
Börnin skemmtilegustu viðskiptavinirnir
Síðastliðið haust fór Sölufélag garðyrkjumanna af stað með verkefnið Matartíminn sem runnið er undan rifjum þeirra Herborgar
Hjelm og Birgis Reynissonar. Herborg er fyrrverandi rekstrarsérfræðingur skólamötuneyta hjá Reykjavíkurborg og gekk ávallt
með þann draum að fara út í sinn eigin rekstur og tryggja með þeim hætti að börnum væri boðin besta mögulega fæðan sem
kostur væri á. Þau Birgir deila þessari bjargföstu trú og boða byltingu í næringu barna. Áherslan sé á besta hráefni sem kostur
sé á og í samstarfi við íslenska garðyrkjubændur hefur Matartíminn hafið sig til flugs.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Með hjartað á réttum stað Herborg Hjelm og Birgir Reynisson hjá Matartímanum hafa mikinn metnað fyrir því að börn fái sem besta fæðu.