Morgunblaðið - 06.10.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018
Finndu sandinn á milli tánna
Baðaðu þig í sólinni og sjónum, endurnærðu líkama og sál og skapaðu dýrmætar
minningar með þínum nánustu. Gerðu síðan fríið að sannkölluðu ævintýri með
heimsókn í Disney World. Aldrei hefur verið auðveldara að njóta lífsins á Flórída.
FLÓRÍDA
Verð aðra leið frá 36.100 kr.
Verð frá 55.600 Vildarpunktum
BÆJARLÍF
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjar
Vestmannaeyjar eiga sér um
margt sérstöðu með sinni fjöl-
breyttu náttúru og mikla fuglalífi.
Lundinn hefur í aldir verið nýttur
en í niðursveiflunni undanfarin ár
hafa bjargveiðimenn haldið að sér
höndum með von um betri tíð.
Ein vísbendingin er að nú
björguðu krakkar í Eyjum fleiri
pysjum en mörg undanfarin ár.
Sæheimar hafa í einhver ár haldið
úti því sem kallast pysjueftirlitið.
Felst það í því að krakkarnir
mæta með pysjurnar í safnið þar
sem þær er mældar og vigtaðar.
Og sumar hreinsaðar. Nú stefndi í
met en hátt í 6.000 pysjur komu
inn á borð pysjueftirlitsins í haust.
Lundapysjurnar og björgun
þeirra er eitt af því skemmtilega
sem fylgir haustinu í Vestmanna-
eyjum. Á kvöldin flykkjast krakk-
ar í fylgd með foreldrum og ung-
lingar líka út í leit að pysjunum
sem fljúga úr fjöllunum á ljósin í
bænum. Afraksturinn er misjafn
en stundum mælist hann í tugum
sem telst góð veiði í dag. Næst er
að líta inn í pysjueftirlitinu áður
en farið er inn á Eiði eða suður á
Eyju til að sleppa þeim út á sjó.
Þó að ekki sé veiddur lundi í
Eyjum þessi árin halda bjarg-
veiðimenn sín lundaböll og í ár var
það haldið í Höllinni. Þetta var
mikil veisla að venju. Eyjarnar
skiptast á um að halda lundaböll
og nú voru það Álseyingar sem
sáu um herlegheitin. Lundi var á
borðum en hann var sóttur í
Grímsey og smakkaðist vel.
Á lundaböllum er etið,
drukkið og sungið og slegið er upp
kabarett þar sem skotið er á fé-
lagana í hinum eyjunum. Stundum
skotið fast en flestir ganga ósárir
frá borði. Álseyingar eru ekki í
vafa um að ballið í ár sé það besta
frá upphafi en þeir eru þekktir
fyrir annað en hógværð.
Á fundi bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja á fimmtudaginn sagði
Hildur Sólveig Sigurðardóttir,
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, að
ekki væri haldinn svo fundur í
bæjarstjórn að ekki væri minnst á
samgöngur og Herjólf. Fundurinn
var engin undantekning og nú
voru það áhyggjur af dýpkun
hafnarinnar vegna nýlegs útboðs
sem voru ræddar. Bæjarfulltrúar
voru sammála um að skoða þyrfti
ýmislegt varðandi útboðið og
miklu skipti að öruggt fyrirtæki
sæi um verkið.
Nýr Herjólfur er í smíðum hjá
skipasmíðastöðinni Crist S.A. í
Gdansk í Póllandi og er stefnt að
því að hann hefji reglulegar sigl-
ingar hinn 30. mars á næsta ári.
Þangað til mun núverandi Herj-
ólfur sigla milli lands og Eyja. Er
það umtalsverð seinkun því skipið
átti að vera tilbúið í júlí sl.
Með nýjum Herjólfi er reiknað
með að frátafir í Landeyjahöfn
minnki til muna sem mun auð-
velda Vestmannaeyingum ferðalög
upp á land en ekki síður auka
möguleika ferðaþjónustunnar í
Eyjum. Vonir standa til þess að
með nýja skipinu lengist ferða-
mannatímabilið í kjölfar þess að
siglingar í Landeyjahöfn verða
stöðugri.
Lundapysjur, lundaball og Herjólfur
Ljósmynd/Óskar Pétur
Pysjutími Stundum eru pysjurnar teknar heim. Hér er Malín Erla með eina sem lætur sér vel líka.