Morgunblaðið - 06.10.2018, Blaðsíða 55
MENNING 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Benni Hemm Hemm, sem er lista-
mannsnafn Benedikts Hermanns
Hermannssonar, hefur verið virkur
í tónlistarmenningu landsins í nær-
fellt kvartöld og gefið út fjölda
platna ýmist einn eða með öðrum.
Í fyrndinni var oft um að ræða
melódískt nýbylgjupopp, plötur
eins og Kajak, Ein í leyni, Murta
St. Calunga og Skot t.d. Dvöl í
Skotlandi gf sumu af efninum eins
konar þjóðlagablæ líka. Fyrir
tveimur árum
tók hann svo
nokkurs konar
u-beygju með
plötunni Skor-
dýr, 22 laga
plötu sem var
bara fáanleg í
gegnum streymisveitur. Sú plata
tengdist öðrum miðlum einnig, á
youtube voru skrítin og skemmti-
leg myndbönd við hvert og eitt lag
og þá gaf hann einnig út ljóðabók
með sama titli. Verklagið var nýtt
fyrir Benna, sem kastaði allri
óþarfa yfirlegu meðvitað út um
gluggann og leyfði hlutunum að
gerast óheft og frjálslega. Platan
er þá afskaplega fjölbeytt að inni-
haldi, Syd Barrett og Incredible
String Band komu upp í hugann og
afstrakt bygging og sumpart
óvæntar fléttur stóðu undir smíð-
unum. Blíðustu popplög áttu þann-
ig til að fara óforvarandis út í há-
vaðaorgíu.
Fall er hins vegar tíu laga,
fáanleg á youtube og Spotify, og
hér er enn hert á tilraunagleðinni
ef eitthvað er. „Karlsstaðaflautan“
er átta mínútna, naumhyggjulegt
„ambient“-verk. „Boys“ eru tíu
mínútur af óhlutbundnum nið og
unninni, draugalegri rödd. „Niður
Fall hans falið
Morgunblaðið/Golli
Gaman Benni Hemm Hemm naut þess að koma Falli á framfæri við heiminn.
fjallið“ er skríti-tölvupopp. Hot
Chip á sýru. Nei, þetta fer trauðla í
útvarpsspilun. En aðdáendur
Throbbing Gristle fá hins vegar
sitthvað fyrir sinn snúð.
„Ég var kominn með rúmlega
tuttugu lög í sumar sem ég vissi
ekkert hvað ég ætti að gera við,“
útskýrir Benni fyrir pistilritara.
„Svo ég setti allt saman í salt og
nokkrum vikum síðar stóðu þessi
lög upp úr, sögðust vilja hanga
saman í þessari súpu og heita
Fall.“
Hann segir konseptið vera
myrku hliðina á bjartasta tíma árs-
ins, „sturlunina á bakvið stuðið
þegar það er bjart allan sólar-
hringinn og það er alltaf gaman og
orkan er endalaus“. Hann segir
plötuna fullkomlega handahófs-
kennda, ekkert upptökuferli sem
hægt væri að lýsa á neinn skiljan-
legan hátt, lögin hafi verið tekin
upp einhvern veginn og svo var
gruflað í þeim þangað til þau
hljómuðu vel. Benni segist þá hæst-
ánægður með þróun útgáfumála,
og gengur dálítið í berhögg við það
sem maður er vanur að heyra.
„Það er svo ótrúlega gaman
að gefa út núna miðað við í gamla
daga,“ segir hann. „Að vera laus
við að senda upptökur á einverju
leynilegu formati til Tékklands og
skrifast svo á við einhvern dular-
fullan mann um mismunandi skil-
greiningar á litakóðun á umslaginu
og sækja svo draslið í tollinn og
borga morð fjár og biðja svo ein-
hvern um að dreifa fyrir mann og
svo fær maður ekki borgað fyrir
diskana sem er búið að dreifa. Það
er heill heimur af leiðindum sem er
horfinn. Það er unaður að losna við
þetta! Það er eitthvað rétt við að
tónlist sé að hverfa úr efnisheim-
inum, hún á heima fyrir utan
hann.“
Það má þá búast við annarri
plötu frá Benna í nánustu framtíð,
lögin sem enduðu á plötunni séu
þau sem eru mest afstrakt og fók-
usera harðast á myrkrið. „Eftir
standa nokkur eldhress popplög
sem koma út þegar þeirra tími
kemur,“ segir Benni brosandi,
hamingjusamur í nýjum, efnislaus-
um tónlistarheimi.
»Nei, þetta fertrauðla í útvarps-
spilun. En aðdáendur
Throbbing Gristle
fá hins vegar sitthvað
fyrir sinn snúð.
Benni Hemm Hemm gaf út plötuna Fall
fyrir stuttu, og er óhætt að segja að þar
fari hann allt annað en hefðbundnar leið-
ir, hvort heldur í tónlist eða útgáfu.
Bandaríski fiðlu-
leikarinn Leila
Josefowicz hlaut
í fyrradag
bandarísku
Avery Fisher
verðlaunin sem
veitt eru klass-
ískum tónlistar-
manni fyrir
framúrskarandi
árangur. Josefowicz hlýtur að laun-
um hundrað þúsund dollara, jafn-
virði um 11,4 milljóna króna. Í frétt
New York Times um verðlaunin
segir að Josefowicz hfi kynnt verk
margra helstu tónskálda vorra
daga, þeirra á meðal John Adams.
Josefowicz lék í byrjun október í
fyrra á kammertónleikum í
Norðurljósasal Hörpu ásamt píanó-
leikaranum John Novacek.
Hlaut verðlaun
Avery Fisher
Leila Josefowicz
Enski grínistinn
Jimmy Carr
verður með uppi-
stand í Há-
skólabíói og Hofi
á Akureyri í jan-
úar á næsta ári.
Mun hann flytja
nýja uppistands-
sýningu, The Ul-
timate, Gold,
Greatest Hits og hefst miðasala á
hana á fimmtudaginn, 11. október.
Uppistandið verður 26. janúar í
Hofi og degi síðar í Háskólabíói.
Í þessari nýju sýningu hefur hann
safnað saman bestu bröndurunum
frá ferli sínum og blandað þeim
saman við nýtt efni, að því er fram
kemur í tilkynningu. Skopskyn
Carr þykir bleksvart og hefur hann
farið með gamanmál í yfir 20 ár.
Carr í Hofi og Há-
skólabíói í janúar
Jimmy Carr
Karlakórinn Öðlingar syngur uppá-
haldslög sín í Hlöðunni að Kvoslæk
í Fljótshlíð í dag kl. 15, undir stjórn
Guðjóns Halldórs Óskarssonar. Að
venju er boðið kaffi í hléi og að-
gangseyrir kr. 2.000.
Kórinn var stofnaður árið 1997
þar sem karlakór vantaði í Rang-
árvallasýslu til að syngja við út-
farir. Á 21 ári hafa Öðlingar sungið
við nærri hálft þúsund útfara og við
önnur tækifæri.
Öðlingar Karlakórinn var stofnaður fyrir 21 ári til að syngja við útfarir.
Uppáhaldslög Öðlinga að Kvoslæk
Sönghópurinn Norðurljós heldur
hausttónleika í Fella- og Hólakirkju
í dag kl. 15 og býður tónleikagest-
um til veglegs kaffihlaðborðs að
tónleikum loknum. Arnhildur Val-
garðsdóttir stjórnar kórnum og
leikur á píanó og Matthías Stef-
ánsson leikur á fiðlu og gítar. Um
einsöng sér Birna Jensdóttir
Norðurljós fór í söngferð til
Rúmeníu í ágúst síðastliðnum og
söng þar m.a. á Enescu-hátíðinni í
Transylvaníu og í Ceaucescu-
höllinni í Búkarest. Á tónleikunum í
dag verður boðið upp á fjölbreytta
efnisskrá og með kaffinu geta gest-
ir virt fyrir sér ljósmyndir úr Rúm-
eníuferðinni.
Miðaverð er 2.500 kr., 1.000 kr.
fyrir eldri borgara og öryrkja en
aðgangur er ókeypis fyrir börn 12
ára og yngri. Hlaðborðið er innifal-
ið í miðaverði.
Brosmild Nokkrir söngvara Norðurljósa.
Norðurljós með
hausttónleika
ICQC 2018-20
fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 26. október
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 22. október.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
Vertu viðbúinn
vetrinum
–– Meira fyrir lesendur