Morgunblaðið - 06.10.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.10.2018, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fróðleg um-fjöllunBaldurs Arnarsonar blaða- manns á blaðsíð- um 20-21 í blaðinu í dag um þróun efnahagsmála, einkum á þeim áratug sem liðinn er frá bankahruninu, sýnir vel hvernig gæfan snerist Íslend- ingum í vil þegar fyrsta höggið var gengið yfir. Þetta var eng- in tilviljun þó að landsmenn hafi líka verið lánsamir um margt í ytri aðstæðum. Og þá má heldur ekki gleyma því að þeir voru ólánsamir um margt í innri aðstæðum, því að sú ríkisstjórn sem tók við strax eftir bankahrunið tók margar rangar og afdrifaríkar ákvarð- anir sem töfðu bataferlið mjög og juku á erfiðleikana, bæði efnahagslega og pólitískt. En þrátt fyrir þetta náði þjóðin vopnum sínum, enda hafði tekist að koma í veg fyrir að föllnu bankarnir drægju hana niður í djúpið og það tókst líka koma í veg fyrir að skuldir sem þjóðinni komu ekki við yrðu hengdar á hana eða að henni yrði þröngvað inn í Evrópusambandið og evruna. Krónan vann sitt verk og dró úr erfiðleikunum og at- vinnuleysi varð aldrei alvar- legt vandamál hér á landi, einkum og sér í lagi ef miðað er við ríki Evrópu- sambandsins. Skuldir heimila og fyrirtækja sem hlutfall af landsframleiðslu hafa minnkað mjög og eru nú aðeins um helmingur þess sem þær voru árið 2007. Að- stæður í efnahagslífinu eru þegar af þeirri ástæðu allt aðrar en þegar bankarnir féllu. Kaupmáttur og landsfram- leiðsla á mann eru hér með hæsta móti, bæði í sögulegum samanburði og borið saman við önnur ríki. Íslendingar eru að þessu leyti, og raunar flestu öðru leyti einnig, mikil gæfuþjóð. Velmegun eins og sú sem hér er að finna er vandfundin í öðrum ríkjum og þegar til þess er horft að hér hrundi fjármálakerfið í heild sinni fyrir réttum áratug þarf ekki að koma á óvart að marg- ir, jafnt innan lands sem utan, séu undrandi yfir árangrinum. Þessi árangur er fjarri því sjálfgefinn og honum er hægt að glutra niður. En ef vel og skynsamlega er á málum hald- ið er þessi árangur líka traust- ur grunnur til að byggja á áframhaldandi lífskjarabata. Þjóðin hefur borið gæfu til að spila farsællega úr afar erfiðri stöðu} Áratugur árangurs Greint var fráþví í Morg- unblaðinu í fyrra- dag að enskan væri orðin áber- andi í mál- umhverfi íslenskra barna og að viðhorf ungra Íslendinga til enskunnar væri mjög já- kvætt. Þá benda fyrstu niður- stöður viðamikillar rann- sóknar fræðimanna við Háskóla Íslands um stöðu og framtíð íslenskunnar til þess að þáttur enskunnar sé sífellt að verða veigameiri, auk þess sem yngri börn verða nú fyrir ensku máláreiti. Full ástæða er til að staldra við og íhuga hvert stefnir. Öfl- ug tungumálakunnátta getur vissulega auðgað líf manna og opnað dyr sem annars stæðu lokaðar. Á sama tíma er ljóst að núverandi yfirburðastaða enskunnar sem alþjóðamál sveipar hana vissum ljóma sem önnur tungumál eiga erf- itt með að keppa við. Þegar rætt er um erlenda tungu- málakunnáttu má ekki gleyma því að til eru fleiri er- lend tungumál en enskan. Þær miklu breytingar sem orðið hafa á tækniumhverfi fólks á síðustu ár- um hafa ýtt undir sterka stöðu ensk- unnar. Börn kynn- ast henni í gegnum símtæki og spjaldtölvur, sjónvarps- þætti og annað afþreying- arefni. Það er umhugsunar- efni, að í könnun fræðimann- anna kom í ljós að um átta prósent þeirra barna sem nú eru á aldrinum þriggja til fimm ára höfðu byrjað að nota tölvur og spjaldtæki fyrir eins árs aldur. Þá er sístækkandi hópur barna sem nota netið daglega og þar er enskan ágeng. Foreldrar, kennarar og samfélagið allt þarf að hafa þetta í huga þegar kemur að því að meta hvers konar mál- umhverfi við búum yngstu kynslóðinni. Í ljósi þess hve enskan er víða verður að tryggja til mótvægis að börn- in heyri næga íslensku á sín- um fyrstu árum. Einungis með því að hlúa rækilega að rótunum núna getur íslensk tunga dafnað í framtíðinni á tækni- og tölvuöld. Ástæða er til að huga vel að stöðu íslenskunnar} Enskan sækir á Í kjölfar frétta um hvernig svindlað er á mörgum erlendum starfsmönnum kemur 10 ára afmæli bankahrunsins. Þessi undirboð á launum hafa áhrif á okkur öll þar sem fyrirtæki sem starfa heiðarlega geta ekki keppt við fyrirtæki sem svindla á launum, skattar og gjöld til uppbygg- ingar samfélagsins verða lægri en þar er af nægum verkefnum að taka og að lokum endar hringurinn af svona starfsemi í gjaldþrotum og auknum kostnaði við framkvæmdir. Hringur- inn byrjar svo aftur á nýrri kennitölu. Hvað kemur þetta hruninu við? Jú, ein af ástæðum þess að bankarnir komust eins langt og þeir gerðu var vegna þess að eftirlitið með starfsemi þeirra var gersamlega vonlaust. Stjórnmálamenn kepptust við að gera lítið úr viðvörunarorðum og stofnanir réðu ekki við eftirlitshlutverkið í bankakerfi sem blés út með gríðar- legum hraða. Nákvæmlega sama vandamál er í gangi í dag, eftirlit með starfsemi eins og starfsmannaleigum er greinilega í molum. Annars væri vandamálið ekki til staðar. Til þess að geta lagað vandamálið eða komið í veg fyrir að það verði eitthvert vandamál þá þarf fyrst að viður- kenna tilvist þess. Ég man enn eftir öllum stjórnmála- mönnunum og bankamönnunum sem sögðu fyrir hrun að allt væri í himnalagi. Þangað til guð átti að blessa Ísland auðvitað. Sama var uppi á teningnum í Landsréttarmál- inu, allir höfðu rangt fyrir sér og það var ekkert að því hvernig dómsmálaráðherra stóð að skipan dómara í réttinn. Hæstiréttur komst að annarri niður- stöðu. Bragamálið, alveg nákvæmlega eins, gagnrýni á stjórnsýslu barnaverndarmála er víst ómerkilegur sparðatíningur að sögn full- trúa okkar í barnanefnd Sameinuðu þjóðanna. Það er ekki nóg að afneita vandamálinu, það verður að uppnefna gagnrýnina líka. Það var heldur ekkert að því að hækka laun þing- manna um 45% en enginn flokkur nema Pírat- ar vildu láta endurskoða þá ákvörðun. United Silicon, og svo mætti lengi telja. Afneitunin í íslenskum stjórnmálum er al- gjör. Það eru aldrei nein vandamál, nema kannski að það taki of langan tíma að byggja upp traust. Við höfum það svo gott að við get- um haldið vel upplýstan hátíðarfund á Þing- völlum án þess að gera kostnaðaráætlun. Ég afsaka svartsýnistóninn í þessum pistli en hann er vegna þess að ég sé ástæður þess að hér varð hrun enn bak við hvert horn. Eftirlitið, sem á að tryggja að þau réttindi sem við höfum unnið okkur inn í stjórnar- skrá, lögum og samningum, er veikburða. Það er afurð hugmyndafræði um að báknið megi ekki blása út. Hug- myndafræði sem gengur ekki út á að tryggja réttindi okk- ar heldur að ganga á þau með því að halda því fram að bankarnir sjái sjálfir um eftirlit með sjálfum sér. Hug- myndafræði sem leiðir til þess að af og til hrynur spila- borgin, efnahagslega og siðferðislega. bjornlevi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Fær hrunið afmælisköku? Höfundur er þingmaður Pírata. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Íslendingar valda slysi á er-lendum ferðamönnum munoftar en hið gagnstæða, að þvíer fram kom á Umhverfis- þingi Samgöngustofu sem haldið var í gær. Á þinginu var farið yfir um- ferðaröryggi á Íslandi með tilliti til vaxandi fjölda ferðamanna sem ferðast um landið gjarnan á eigin ökutæki, með bílaleigubíl eða rútu. 497 ferðamenn slösuðust af völdum ferðamanna 2015-’17 Um 20 tilvik voru árið 2017, þar sem erlendir ferðamenn ollu slysi á Íslendingum, en í yfir 80 tilvikum ollu Íslendingar slysi á erlendum ferðamönnum sama ár. Athygli vek- ur að yfir árin 2014 til 2017 fjórfald- aðist tíðni slysa á ferðamönnum, sem Íslendingar voru ábyrgir fyrir, þar er átt við að þeir voru í órétti er slys- in urðu. Algengast er þó að ferða- menn valdi slysi á öðrum ferðamönn- um. Árin 2015 til 2017 lentu 497 ferðamenn í slysi vegna annarra ferðamanna, 178 ferðamenn lentu í slysi vegna Íslendinga en 64 Íslend- ingar lentu í slysi vegna ferðamanna. Gunnar Geir Gunnarsson, deild- arstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu, fór yfir fjölda slas- aðra ferðamanna undanfarin ár en tölurnar gefa til kynna að ástandið fari batnandi, að sögn Gunnars. Fjöldi slasaðra ferðamanna fór upp úr öllu valdi árið 2016, en það árið slösuðust um 223 ferðamenn. Tvöfalt fleiri slösuðust þá heldur en árið 2014. Tölurnar hafa haldist nokkurn veginn eins, en árið 2017 slösuðust 239 ferðamenn. Vitaskuld má rekja þessa auknu tíðni slysa til fjölgunar ferðamanna. Gunnar sagði að hlut- fall slasaðra ferðamanna, af öllum þeim ferðamönnum sem koma hing- að til lands, hafi aldrei verið lægra og talaði um metár hvað varðar ör- yggi ferðamanna á Íslandi: „Hver og einn ferðamaður hefur aldrei verið jafnöruggur á Íslandi og árið 2018,“ sagði Gunnar. Vetrarslys orðin tíðari Þá kom einnig fram að hóp- bifreiðar valda mun fleiri slysum nú en áður. Á nokkurra ára tímabili hef- ur hlutfall hópbifreiðaslysa hækkað töluvert, eða úr 3% í 11%, frá 2008- 14 til 2015-17. Inni í flokki hóp- bifreiða eru svokallaðir svefnbílar, en þeir hafa notið aukinna vinsælda hjá erlendum ferðamönnum á Ís- landi. „Það er ekki hægt að tala um frávik þegar þrjú ár í röð eru með sama mynstri. Þetta er orðin regla og þá er augljós ástæða til að bregð- ast við,“ sagði Gunnar þegar hann kynnti tölurnar. Önnur greinileg breyting á eðli umferðaslysanna er tímasetningin, eða á hvaða árstíma slysin verða. Vetrarslys eru mun tíðari nú en áð- ur, en þau voru um 60 árið 2014 en árið 2015 urðu þau yfir 120 og hafa tölunar haldist á þann veg. Þá kom fram í erindi Gunnars að slysum á sumrin fjölgar sömuleiðis en aukn- ingin á vetrarslysum er mun meiri. Fylgifiskur vetrar- ferðamennskunnar Þá sagði hann að fleiri hefðu slasast veturinn 2015 heldur en yfir allt árið 2014. „Greinilegt er að við höfum ekki náð þessum vetrar- slysum niður. Þetta er auðvitað fylgifiskur vetrarferðamennskunnar sem er að byrja og ryðja sér til rúms. Það er ljóst að þegar ferðabransinn fór af stað var hið opinbera ekki í stakk búið til að taka við þessum ferðamönnum,“ sagði Gunnar. Ferðamenn ekki hættulegri í umferðinni Morgunblaðið/Hari Umferð Bílaumferð hefur aukist mikið um þjóðvegi landsins. Umferðarslys og óhöpp eru tal- in kosta yfir 50 milljarða á ári, að sögn Sigurðar Inga Jóhanns- sonar, samgöngu- og sveitar- stjórnarráðhenrra, við setningu Umferðarþingsins. Framsækin áætlun liggi fyrir varðandi um- ferðaröryggi í samgöngu- áætlun. Á fimm árum hefur umferðin á þjóðvegunum aukist um 40%, að sögn Sigurðar, en því fylgja vitaskuld miklar áskoranir. Vís- aði ráðherrann til þess að auk íbúa ferðist að meðaltali 30-40 þúsund ferðamenn um vega- kerfið dag hvern, auk þeirra tugþúsunda erlendu ríkisborg- ara sem eru hér við störf. Forstjóri Samgöngustofu, Þórólfur Árnason, sagði að vinna þyrfti að umferðaröryggi bæði með erlendum ferða- mönnum og íbúum, þar sem það væri ekki síst svo að Ís- lendingar yllu slysum á ferða- mönnum. Yfir 50 millj- arða tjón SLYSIN VALDA TJÓNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.