Morgunblaðið - 06.10.2018, Blaðsíða 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018
bókinni. Hátíðargjall fyrir einstaka
mús eftir Tryggva M. Baldvinsson
sem hann samdi sérstaklega fyrir
Maxímús og Laumufarþegarnir eftir
Báru Grímsdóttur. „Gestamýsnar
upplifa Ísland í fyrsta sinn undir
broti úr ballettverkinu Ólafur Lilju-
rós eftir Jórunni Viðar, sem var
mjög þjóðlegt tónskáld. Sumir halda
meira að segja að sum laganna henn-
ar séu þjóðlög,“ segir Hallfríður og
bendir á að það sama eigi við um
Tröllaslag úr Fornum dönsum eftir
Jón Ásgeirsson. „Val mitt á Trölla-
slag kallaði á að ég yrði að skrifa
eitthvað um tröll og því læt ég afann
í sögunni segja barnabarni sínu að
jarðskjálftinn sem það var nýbúið að
upplifa stafi af því að tröllin voru að
slást.
Gestir geta tekið undir
Í miðjum tröllaslagnum er síðan
ljúfur vals og það kallaði á að það
yrði músaball í sögunni. Hjartað í
sögunni er svo þjóðlagasyrpan Þýtur
í stráum sem Gunnsteinn Ólafsson
skrifaði sérstaklega fyrir þetta verk-
efni og notaði til þess öll mín uppá-
haldsþjóðlög sem og fleiri, enda er
hann sérfróður um íslensk þjóðlög,“
segir Hallfríður og bendir á að með-
an sú syrpa sé spiluð séu afinn og
amman í sögunni að segja frá lífinu í
gamla daga í torfbæjum. „Þá er líka
fjallað um bjartar sumarnætur og
veðurofsann á vetrum. Þar koma líka
inn tvö þjóðlög sem tónleikagestir fá
að syngja með í, þ.e. „Hani, krummi,
hundur, svín“ og „Bí, bí og blaka“.
Auk þess heyrast brot úr stórum,
tiltölulega nýjum verkum eftir ís-
lensk tónskáld sem eru öll að gera
garðinn frægan út um allan heim.
Þarna valdi ég brot úr Hrími eftir
Önnu Þorvaldsdóttur til að undir-
strika ískrandi kulda jökulsins,
Storku eftir Hauk Tómasson til að
fanga eldsumbrotin og svo lýkur tón-
leikunum á síðustu tveimur mín-
útunum úr Collider eftir Daníel
Bjarnason. Verkið er innblásið af
stóra sameindahraðlinum í Sviss.
Hann skrifaði það til að lýsa hröðun
og árekstri öreinda. Þegar ég heyrði
verkið fyrst á tónleikum leið mér
eins og allt væri að springa og því
finnst mér þessir lokatónar ná ein-
staklega vel utan um þá tilfinningu
Maxa að hann sé við það að springa
úr gleði þegar hann heyrir tónlist,“
segir Hallfríður og bendir á að loka-
orð bókarinnar séu lögð Maxímús í
munn sem segir, þegar hann sér
börn í framandi landi hlusta glöð á
tónleika: „Hvar sem tónlist hljómar,
þar verða allir glaðir. Mikið er ég
heppin mús!“
Mýsnar Líf og Hreyfing
Spurð um nafngiftir helstu per-
sóna bókarinnar segir Hallfríður að
músanöfnin Viva og Moto vísi í tón-
listina. „Ítalskan er alþjóðlegt
tungumál tónlistarinnar. Þannig
nota allir tónlistarmenn út um allan
heim sömu ítölsku orðin til að lýsa
tónlistinni. Viva þýðir líf, en vivace
er orð sem við notum mikið um líf-
lega tónlist og Moto vísar í „con
moto“ sem þýðir með hreyfingu. Til
þess að þessar spræku mýs kæmust
upp á jökul varð ég hafa barn í sög-
unni sem gæti séð mýsnar og hjálpað
þeim, því fullorðna fólkið sér þær
ekki. Þannig varð Blær til,“ segir
Hallfríður og tekur fram að hún hafi
meðvitað valið eina íslenska nafnið
sem stúlkur jafnt sem drengir geta
borið.
„Þórarni tókst að teikna barnið
þannig að allir lesendur geti sam-
samað sig því,“ segir Hallfríður og
tekur fram að þau Þórarinn vinni
markvisst gegn staðalímyndum í
bókum sínum. „Sem dæmi er
mamman hjálparsveitarkona og þess
vegna komast þau upp á jökul. Við
höfum alltaf haft alls kyns mann-
gerðir með alls kyns litaraft. Okkur
finnst skipta máli að allir geti fundið
sig í þessum heimi,“ segir Hallfríður
að lokum, en hún leikur sjálf með á
tónleikunum í dag.
Morgunblaðið/Eggert
Höfundur Hallfríður Ólafsdóttir
flautuleikari skrifar ævintýri Maxa.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það má segja án þess að gefa of
mikið upp að Griðastaður sé 99% ein-
leikur og markaðssettur þannig. En
þó stíga fleiri á svið. Það er hægt að
segja að Jörundur Ragnarsson sé að-
al- og næstum því eini leikarinn,“
segir Matthías Tryggvi Haraldsson
leikskáld um út-
skriftarverk sitt
frá sviðshöfunda-
braut Listaháskóla
Íslands, Griðastað,
sem frumsýnt
verður í Tjarnar-
bíói í kvöld.
Matthías, sem
útskrifaðist í vor
frá Listaháskól-
anum, segir það
heiður að verk
hans sé sett upp í eins flottu leikhúsi
og Tjarnarbíói sem fest hafi sig í
sessi sem atvinnuleikhús og sé orðið
einn af þessum mikilvægu stöplum í
íslensku sviðslistalífi. Matthías hefur
verið viðloðandi leikhús frá því að
hann skrifaði fyrsta handritið í
tengslum við Herranótt Mennta-
skólans í Reykjavík sem nemandi við
skólann.
„Ég hef ekki getað slitið mig frá
handritagerð síðan. Þetta er í raun
eins og að búa til kokkabók að lifandi
verki. Þú skrifar uppskriftina og sérð
eitthvað fyrir þér en svo lifnar upp-
skriftin við í fórum annarra lista-
manna sem hafa allt að aðra sýn en
höfundurinn. Þannig nýtir hver sínar
sterku hliðar í þessum miðli sem leik-
húsið er og úr verður marglaga lista-
verk,“ segir Matthías og bætir við að
eftir að handritið verði til fari af stað
annars konar ferli með leikstjóra og
leikhópi. Sjálfur hafi hann þurft að
skipta rækilega um hlutverk þegar
Griðastaður fór á fjalirnar enda sé
hann leikstjóri að eigin verki.
Matthías segir að sviðslistir séu
margslungnari en nokkurn gruni og
námið í Listaháskólanum sé dýna-
mískur vettvangur þar sem fjöl-
breytt flóra listamanna komi saman.
Sætta sig við að allir deyja
„Griðastaður snýst um að sætta
sig við að allir deyja og kannski á
Lárus, aðalpersónan, ekki í mörg
hús að venda til að ræða þessi hjart-
ans mál. Lárus er eins og margir
karlmenn ekki mikið að velta sér
upp úr tilfinningum en IKEA er,
eins og Lárus segir sjálfur í verkinu,
hans griðastaður. Þar tekst honum
að kafa á dýptina þegar allir aðrir
gestir eru farnir úr versluninni og
hann er einn eftir með húsgögn-
unum,“ segir Matthías og bætir við
að Griðastaður sé blanda af skáld-
skap og brotum úr hans persónulega
lífi sem á einhverjum tímapunkti
verði verk sem öðlast sitt eigið líf
með óvæntum hætti.
„Ég var ekki búinn að ákveða að
skrifa um dauðleikann þegar ég
byrjaði á handritinu en vissulega
fléttast margir þræðir saman við
vinnslu handrits,“ segir Matthías.
Allir deyja leikfélag setur verkið á
svið en það var stofnað í í kringum
Griðastað. Matthías segir spennandi
að komast að því hvort hópurinn
deyi með þessu verki eða öðlist
framhaldslíf í kringum önnur verk.
„Ég þekkti í raun engan í hópnum
áður en við fórum að vinna við út-
skriftarverkefnið mitt. En það var
einhver tilfinning í maganum sem
sagði mér að þetta væri rétta fólkið
og sú tilfinning reyndist rétt,“ segir
Matthías, sem fengið hefur boð um
að sýna verk á sýningunni Núna í
Borgarleikhúsinu undir stjórn
Kristínar Jóhannesdóttur.
„Við erum þrjú upprennandi leik-
skáld sem sýnum stutt verk í
Borgarleikhúsinu í janúar. Það er
mikill heiður að fá Kristínu að verk-
inu, ekki bara af því að hún er
reynslubolti heldur er hún svo ótrú-
lega klár listamaður. Það er lúxus að
geta skilað inn handriti sem lagt er í
hendur fullbúins teymis í Borgar-
leikhúsinu,“ segir Matthías, sem fær
drauma sína uppfyllta bæði í
Tjarnarbíói og Borgarleikhúsinu.
Matthías leikstýrir sjálfur Griða-
stað en listrænir ráðunautar eru Ey-
dís Rose Vilmundardóttur og Jökull
Smári Jakobsson. Um tónlist sér
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir.
Ljósamenn eru Egill Ingibergsson
og Hafliði Emil Barðason. Búningar
og leikmynd eru í höndum Allir
deyja leikfélags.
Blanda af skáldskap og
persónulegri reynslu
Leikritið Griða-
staður frumsýnt
Ljósmynd/Tjarnarbíó
Friður Jörundur Ragnarsson í hlutverki Lárusar sem finnur frið í IKEA.
Matthías Tryggvi
Haraldsson
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 10/10 kl. 20:00 Mið 31/10 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00
Mið 17/10 kl. 20:00 Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00
Mið 24/10 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00
Ronja Ræningjadóttir (None)
Lau 6/10 kl. 17:00 Auka Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Sun 25/11 kl. 17:00 22. s
Sun 7/10 kl. 13:00 8. s Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka
Sun 7/10 kl. 16:00 9. s Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s
Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka
Sun 14/10 kl. 13:00 10. s Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 2/12 kl. 17:00 24. s
Sun 14/10 kl. 16:00 11. s Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 9/12 kl. 14:00 Auka
Lau 20/10 kl. 15:00 Auka Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Sun 9/12 kl. 17:00 25. s
Lau 20/10 kl. 18:30 Auka Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Lau 29/12 kl. 13:00 Auka
Sun 21/10 kl. 13:00 12. s Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Lau 29/12 kl. 16:00 Auka
Sun 21/10 kl. 16:00 13. s Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 30/12 kl. 13:00 26. s
Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 30/12 kl. 16:00 27. s
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 6/10 kl. 19:30 3. s Sun 21/10 kl. 20:00 9. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s
Sun 7/10 kl. 19:30 4. s Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Þri 13/11 kl. 19:30 16.s
Fös 12/10 kl. 19:30 5. s Sun 28/10 kl. 19:30 11. s Fös 16/11 kl. 19:30 17.s
Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Fim 1/11 kl. 19:30 13.s Lau 17/11 kl. 19:30 18.s
Fim 18/10 kl. 19:30 7. s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s
Lau 20/10 kl. 19:30 8. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Ég heiti Guðrún (Kúlan)
Lau 6/10 kl. 17:00 Auka Þri 16/10 kl. 19:30 Auka Fim 25/10 kl. 19:30 11.s
Sun 7/10 kl. 17:00 2. s Mið 17/10 kl. 19:30 7. s Fös 26/10 kl. 17:00 Auka
Mið 10/10 kl. 19:30 3. s Fös 19/10 kl. 19:30 Auka Lau 27/10 kl. 17:00 Auka
Fim 11/10 kl. 19:30 4. s Lau 20/10 kl. 17:00 Auka Lau 27/10 kl. 20:00 12.s
Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Sun 21/10 kl. 17:00 9. s Sun 28/10 kl. 17:00 13.sýn
Lau 13/10 kl. 19:30 5. s Þri 23/10 kl. 19:30 10. s
Sun 14/10 kl. 17:00 6.sýn Mið 24/10 kl. 19:30 Auka
Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fös 19/10 kl. 19:30 42. s Lau 3/11 kl. 19:30 LOKA
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s
Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s
Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Insomnia (Kassinn)
Fös 9/11 kl. 19:30 Frums Fim 15/11 kl. 19:30 4.s Fim 29/11 kl. 19:30 7.s
Lau 10/11 kl. 19:30 2. s Lau 17/11 kl. 19:30 5.s
Mið 14/11 kl. 19:30 3.s Fös 23/11 kl. 19:30 6.s
Brandarinn sem aldrei deyr
Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 6/10 kl. 11:00 Lau 13/10 kl. 13:00 Lau 27/10 kl. 11:00
Lau 6/10 kl. 13:00 Lau 20/10 kl. 11:00 Lau 27/10 kl. 13:00
Lau 13/10 kl. 11:00 Lau 20/10 kl. 13:00
Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 17/11 kl. 11:00 Lau 24/11 kl. 14:30 Lau 1/12 kl. 12:30
Lau 17/11 kl. 12:30 Sun 25/11 kl. 11:00 Sun 2/12 kl. 11:00
Lau 24/11 kl. 11:00 Sun 25/11 kl. 12:30 Sun 2/12 kl. 12:30
Lau 24/11 kl. 13:00 Lau 1/12 kl. 11:00
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Lau 6/10 kl. 20:00 153. s Fim 18/10 kl. 20:00 157. s Fös 26/10 kl. 20:00 161. s
Sun 7/10 kl. 20:00 154. s Fös 19/10 kl. 20:00 158. s Sun 28/10 kl. 20:00 162.
Lau 13/10 kl. 20:00 155. s Sun 21/10 kl. 20:00 159. s Lau 3/11 kl. 20:00 163. s
Sun 14/10 kl. 20:00 156. s Fim 25/10 kl. 20:00 160. s Fös 9/11 kl. 20:00 164. s
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 6/10 kl. 20:00 9. s Lau 13/10 kl. 20:00 12. s Fös 26/10 kl. 20:00 15. s
Sun 7/10 kl. 20:00 10. s Lau 20/10 kl. 20:00 13. s Lau 27/10 kl. 20:00 16. s
Fös 12/10 kl. 20:00 11. s Sun 21/10 kl. 20:00 14. s Fös 2/11 kl. 20:00 17. s
Gleðileikur um depurð.
Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið)
Lau 6/10 kl. 20:00 8. s Fim 11/10 kl. 20:00 10. s Lau 20/10 kl. 20:00 16. s
Sun 7/10 kl. 20:00 9. s Fim 18/10 kl. 20:00 14. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas.
Mið 10/10 kl. 20:00 aukas. Fös 19/10 kl. 20:00 15. s
Athugið, sýningum lýkur 3. nóvember.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s
Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s
Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s
Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tví-skinnungur (Litla sviðið)
Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s
Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s
Ást er einvígi.
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fim 11/10 kl. 20:00 61. s Lau 20/10 kl. 20:00 63. s Fös 2/11 kl. 20:00 aukas.
Fös 12/10 kl. 20:00 62. s Lau 27/10 kl. 20:00
Sing-a-long
Besta partýið hættir aldrei!