Morgunblaðið - 06.10.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við viljum með þessum degivekja athygli á atvinnu-málum fatlaðra og þörf-inni á því að atvinnuleit-
endur með skerta starfsgetu fái
aukin tækifæri á vinnumarkaði. Á
þessum degi gefst fyrirtækjum og
stofnunum tækifæri til að bjóða at-
vinnuleitendum með skerta starfs-
getu að vera gestastarfsmenn í einn
dag eða hluta úr degi. Með því vilj-
um við opna augu fyrirtækja fyrir
starfskröftum og starfshæfni fólks
með skerta starfsgetu og sýna um
leið fólki sem að öllu jöfnu vinnur
önnur störf hve verkefnin og störfin
eru fjölbreytt úti á vinnumark-
aðnum. Við hér hjá Vinnumálastofn-
un erum til dæmis með starfsmann
með skerta starfsgetu sem sér alfar-
ið um kaffistofurnar hjá okkur, og
hann stendur sig með mikilli prýði.
Að vera í vinnu og taka ábyrgð á
sínu starfi skiptir miklu máli. Það að
þurfa að standa sig, að mæta til
vinnu og vera þannig þátttakandi í
samfélaginu og leggja sitt af mörk-
um er þörf sem við höfum öll. Við
viljum öll þjóna einhverjum tilgangi
og fá að gera eitthvað,“ segir Emilía
Sjöfn Kristinsdóttir, verkefnisstjóri
Fyrirmyndardagsins sem Vinnu-
málastofnun hélt í fimmta sinn í
gær.
„Fyrirmynd þessa dags er sótt
til Írlands þar sem hann gengur
undir nafninu „The Job Shadow
Day“. Dagurinn var fyrst haldinn á
Íslandi árið 2014 en síðan þá hafa
fjölmargir atvinnuleitendur og
vinnustaðir tekið þátt í deginum og
unnið þannig gegn staðalímyndum
sem hamla því að fólk með skerta
starfsgetu fái fjölbreytt störf við
hæfi,“ segir Emilía Sjöfn og bætir
við að Fyrirmyndardagurinn sé
haldinn um allt land. „Það eru um
130 atvinnuleitendur víða um land
sem taka þátt. Þeir vinnuveitendur
sem hafa tekið þátt í þessum degi
vilja margir gjarnan vera með aftur,
sem segir sitt. En við leitum líka sí-
fellt til nýrra vinnuveitenda og bjóð-
um þeim að taka þátt og langflestir
vinnustaðir taka mjög vel í þetta.“
Reynum að verða við óskum
Emilía Sjöfn segir að gesta-
starfsmenn fái innsýn í fjölbreytt
Flott á fundi Auður Andrea Skúladóttir, gestastarfs-
maður hjá velferðarráðuneytinu, fylgdist með á fundi.
Gengið í verkin Helgi Magnússon var gestastarfsmaður
á lagernum hjá Rúmfatalagernum og dró ekki af sér.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Unnið gegn
staðal-
ímyndum
Gaman Hrannar Halldórsson, gestastarfsmaður í Húsdýragarðinum, naut þess að gefa hana korn úr lófa.
Að mæta til vinnu og vera þannig þátttakandi í sam-
félaginu og leggja sitt af mörkum er þörf sem við höf-
um öll. Á Fyrirmyndardeginum fá atvinnuleitendur
með skerta starfsgetu að vera gestastarfsmenn.