Morgunblaðið - 06.10.2018, Page 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Umsvif mjólkurframleiðslu fyrir-
tækisins Örnu hafa aukist gríðarlega
á þeim fimm árum sem fyrirtækið
hefur verið í rekstri. Arna hóf starf-
semi í september árið 2013 en sé
horft til fyrsta heila rekstrarárs
fyrirtækisins, þar
sem rekstrar-
tekjur voru 110
milljónir, nemur
hlutfall söluaukn-
ingar Örnu um
900% á fimm ár-
um. Hálfdán Ósk-
arsson, fram-
kvæmdastjóri og
stofnandi Örnu,
segir að búast
megi við því að rekstrartekjur fyrir-
tækisins verði 1,1 milljarður í ár. Því
er um tíföldun á sölutekjum að ræða.
Fjöldi starfsmanna hefur einnig far-
ið úr fjórum starfsmönnum í 22. „Það
er ansi mikið fyrir þúsund manna
bæjarfélag eins og Bolungarvík,“
segir Hálfdán er Morgunblaðið sló á
þráðinn til hans.
Haustjógúrtin vinsælust
Fyrirtækið er enn þá á fullri ferð í
fasa vaxtar en söluaukningin á milli
áranna 2016 og 2017 var rúmlega
54% samkvæmt ársreikningi Örnu
fyrir árið 2017. Rekstrartekjur fyrir-
tækisins voru 556 milljónir árið 2016
en 858 milljónir í fyrra. Ofan á það
leggst áætluð 28% söluaukning í ár
miðað við fyrra ár. „Það er meiri sala
í okkar vörum og öflugri dreifing.
Við höfum einnig meira vöruúrval og
það skiptir máli í þessum bransa,“
segir Hálfdán. Aðspurður hvort ein-
hver vara sé vinsælli en önnur nefnir
Hálfdán sérstaklega Haustjógúrt
Örnu.
„Við erum með árstíðabundna
vöru sem heitir Haustjógúrt þar sem
við framleiðum jógúrt með aðalblá-
berjum sem við tínum hérna í fjöll-
unum. Það er vinsælasta vara okkar.
Svo selst gríska jógúrtin okkar, bæði
bragðbætt og hrein, mjög vel. En
heilt yfir er góð sala í öllum vöru-
flokkum,“ segir Hálfdán, en fyrir-
tækið leggur áherslu á laktósafríar
vörur.
Hraður vöxtur kostar sitt
Hagnaður fyrirtækisins var 21,6
milljónir árið 2016 og dregst saman
um 30% á milli ára, og var 15 millj-
ónir árið 2017. Segir Hálfdán að
hraður vöxtur kosti einfaldlega sitt,
sér í lagi í matvælageiranum.
„Fyrirtækið er fimm ára þessa
dagana. Við erum á fullu að byggja
upp og stækka. Það kostar sitt að
vaxa svona hratt. Að vera yfir núll-
inu er mjög fínt hjá þetta gömlu
fyrirtæki í þessum geira. Í matvæla-
framleiðslu. Við erum mjög sátt við
það,“ segir Hálfdán.
„Við mátum það sem 10 ára verk-
efni að byggja þetta fyrirtæki upp og
erum á fullu í því,“ segir hann.
Spurður hvort rekstur fyrirtækis-
ins hafi gengið framar vonum segir
Hálfdán að forsvarsmenn fyrirtæk-
isins hafi ætíð verið bjartsýnir.
„Við vorum alltaf bjartsýnir. En
reyndar hefur söluaukningin verið
hraðari en við reiknuðum með. En
neytendur hafa staðið með okkur í
þessu. Það hefur verið gríðarlegur
vöxtur og er enn á þessu ári,“ segir
Hálfdán.
Ostagerð á Ísafirði
Stærstur hluti framleiðslu Örnu
fer fram í Bolungarvík en Hálfdán
segir að ostagerð á Ísafirði hafi verið
í bígerð í rúmt ár og verði komin í
fullan rekstur um áramót.
„Við erum að byggja fyrirtækið
upp í Bolungarvík og höfum fjárfest í
tækjum og tólum til að búa til fjöl-
breyttari og betri vörur,“ segir Hálf-
dán og bætir við.
„Við leigjum gamla mjólkur-
samlagshúsið á Ísafirði og erum að
fara að setja þar upp ostagerð sem
verður væntanlega komin í fullan
rekstur um áramótin. Það er hús
sem hentar vel undir ostagerð.“
Rekstrartekjur tífaldast
Morgunblaðið/Kristinn
Mjólkurvörur Rekstrartekjur Örnu hafa vaxið afar hratt undanfarin ár.
Vöxtur mjólkurframleiðslufyrirtækisins Örnu hefur verið gríðarlegur á
undanförnum árum Ostagerð á Ísafirði verður komin í gang um áramótin
Arna ehf.
» Rekstrartekjur Örnu voru
110 milljónir árið 2014 og
stefna í að vera 1.110 milljónir í
ár. Er það 900% aukning á
fimm árum.
» Tekjurnar jukust um 54% á
milli 2016 og 2017 og stefnir í
yfir 20% aukningu í ár.
Hálfdán
Óskarsson
ans við NIB sé að ræða en eldri
samningar eru frá árunum 2015 og
2017.
Henrik Normann, forstjóri Nor-
ræna fjárfestingarbankans, og Lilja
Björk Einarsdóttir, bankastjóri
Landsbankans, segja í tilkynning-
unni að samstarfið hafi bæði reynst
farsælt og árangursríkt. „Með því
fáum við í senn bætt lánskjör og
getum betur stutt við sjálfbæran og
stöðugan vöxt íslenskra fyrir-
tækja,“ segir Lilja. tobj@mbl.is
Landsbankinn hefur fengið lán að
upphæð 75 milljónir bandaríkja-
dala frá Norræna fjárfestingar-
bankanum, NIB. Lánið, sem er til
sjö ára, og er að andvirði rúmra 8,5
milljarða íslenskra króna, er sam-
kvæmt tilkynningu frá bankanum
ætlað til fjármögnunar á litlum og
meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi
og verkefnum tengdum umhverfis-
málum.
Í tilkynningunni segir einnig að
um þriðja lánasamning Landsbank-
NIB lánar Landsbanka milljarða
Ætlað íslenskum fyrirtækjum
Morgunblaðið/Kristinn
Fé Lánið verður meðal annars notað í verkefni tengd umhverfismálum.
6. október 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 113.78 114.32 114.05
Sterlingspund 147.69 148.41 148.05
Kanadadalur 88.35 88.87 88.61
Dönsk króna 17.531 17.633 17.582
Norsk króna 13.82 13.902 13.861
Sænsk króna 12.583 12.657 12.62
Svissn. franki 114.7 115.34 115.02
Japanskt jen 0.9949 1.0007 0.9978
SDR 158.15 159.09 158.62
Evra 130.73 131.47 131.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 156.3381
Hrávöruverð
Gull 1199.45 ($/únsa)
Ál 2166.0 ($/tonn) LME
Hráolía 85.99 ($/fatið) Brent
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
VIÐBÓTARHÚSNÆÐISLÁN
Kynntu þér tækifærin á framtidin.is
LÁTUM DÆMIÐ
GANGA UPP