Morgunblaðið - 06.10.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 06.10.2018, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018 Rakaskemmdir ogmygla Rb á Nýsköpunarmiðstöð Íslands Málstofa um innivist og áhrif raka ogmyglu á vellíðan og heilsu Nýsköpunarmiðstöð Íslands að Árleyni 8, 112 Reykjavík Mánudaginn 8. október frá kl. 13 -16 Fundurinn er opinn öllum og aðgangur ókeypis Skráning á nmi.is/malstofa Setning Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor og forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands Hvað kosta rakaskemmdir marga milljarða á ári fyrir samfélagið? Ólafur H. Wallevik, prófessor við HR og forstöðumaður Rannsóknarstofu byggingariðnaðarins á Nýsköpunarmiðstöð Íslands Loftgæðamælingar við mat á innivist Alma Dagbjört Ívarsdóttir, verkfræðingur á Mannviti Indoor air quality and health issues due to moisture and mold Sverre B. Holøs, yfirverkfræðingur hjá SINTEF í Noregi Pallborðsumræður Stjórnandi: Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir og þátttakendur eru: Björn Marteinsson Háskóli Íslands Indriði Níelsson Verkís Ríkharður Kristjánsson EFLA Kristmann Magnússon Rb á NMÍ Einnig verður sérstakt námskeið um áhrif raka á myglu og innivist. Þriðjudaginn 9. okt frá kl 9 – 12 með Sverre B. Holös frá Sintef. Aðgangsverð að því námskeiði er 19.000 kr. Skráningar sendist á margret.th@nmi.is Kirkjugarðar þjóðar- innar eru merkar stofn- anir. Staðir vítt um land, í þéttbýli, í strjál- um byggðum. Grafreitir hafa fylgt okkur alla tíð. Staðir sem geyma ríka sögu. Við kveðjum, syrgj- um. Stöndum yfir mold- um, merkt óvissu dauð- ans, í ugg og ótta, líka í von og þökk. Leggjum okkar nánustu til hinstu hvílu í helga jörð. Af jörðu ertu kominn. Að jörðu skaltu aftur verða. „Nú ertu leidd mín ljúfa, lystigarð Drottins í …“ yrkir Hallgrímur Pétursson, bæði í harmi og von um unga dóttur sem hann missti. Það er góð regla að umgangast hina dauðu af sömu virðingu og þá sem lifandi eru. Þess vegna eru strangar reglur, skrifaðar, bundnar í lög og líka óskrifaðar um það er varðar kirkjugarða, umgengni og hirðu. Sóknarnefndir eru að jafnaði kirkjugarðsstjórnir, utan höfuð- borgarsvæðisins. Sóknir hafa sjálf- stæðan tekjustofn, sóknargjöld, sem eiga að standa undir rekstri sókna og viðhaldi helgidóma. Kirkjugarðarnir hafa sinn tekjustofn, kirkjugarðs- gjöld, og þau greiða allir, óháð trú- félagsaðild. Ekki aðeins hafa sóknargjöld ver- ið skert síðustu árin, heldur einnig kirkjugarðsgjöld, þannig að framlög til kirkjugarða á lands- vísu hafa verið skorin niður um 3,4 milljarða frá árinu 2005, þegar samið var við ríkis- valdið um rekstur þeirra. Þrátt fyrir linnulausa áminningu hafa stjórnvöld dauf- heyrst við því að gera þarna bót á. Það er ekki undur að víða kreppir skórinn í rekstri kirkjugarða. Í Vesturlandsprófastsdæmi eru 44 kirkjugarðar, auk nokkurra aflagðra, og svo heimagrafreita. Þessir garðar bera flestir mikla sögu, vitna um líf og örlög þjóðar í meir en þúsund ár. Í nýlegri vísitasíu um prófasts- dæmið skoðaði ég ásamt fyrrverandi vígslubiskupi Skálholtsumdæmis alla þessa grafreiti. Almennt má segja, að vel er um þessa garða hirt, þrátt fyrir fjárskort. Sóknarnefndarfólkið leggur mikið á sig í sjálfboðinni vinnu til að grafreitirnir séu til sóma. Það er þakkarefni. En víða er end- urbóta þörf. Lagfæra þarf girðingar og hleðslur, fjarlægja ónýta stein- kassa um grafir sem eru til óprýði; lagfæra merk minningarmörk sem eru farin að láta á sjá. Grafartaka og sláttur og sumarhirða kosta sitt. Sumt af þessu er gert í sjálfboða- vinnu eða fyrir málamyndaþóknun. Kirkjugarðar eru helgir reitir í margvíslegum skilningi. Þar hvíla kynslóðirnar sem byggðu Ísland. Þar er partur af sögu okkar. Garðarnir eru þannig menningarverðmæti og ættu að bera sómavitund okkar fag- urt vitni. Í kirkjugarðana leitar fólk til að minnast sinna nánustu, helga minningar sínar, segja bænir sínar, hugleiða og horfast í augu við sjálft sig. Kirkjugarður á að vera fagur griðastaður, ekki aðeins hvíla hinna látnu, heldur einnig skjól hinum lif- andi í hrakviðrum heimsins. Þar á að vera gott að koma og vera. Þaðan á ávallt að vera unnt að ganga með birtu í sinni. Hugarfarsbreytingar er þörf. Það er skylda stjórnvalda að leggja af tómlætið sem einkennt hefur fram- komu þeirra gagnvart kirkjugörð- unum um árabil, auglýsa manndóm í verki; ganga að því verki að skapa viðunandi rekstrargrunn og birta þannig menningarsýn sem er okkur öllum til sóma. Kirkjugarðar eiga að vera lystigarðar þjóðar. Lystigarðar þjóðar Eftir Þorbjörn Hlyn Árnason »Hugarfarsbreyt- ingar er þörf. Það er skylda stjórnvalda að leggja af tómlætið sem einkennt hefur fram- komu þeirra gagnvart kirkjugörðunum um árabil. Þorbjörn Hlynur Árnason Höfundur er prófastur í Vesturlands- prófastsdæmi. Kínverjar slógu tvær flugurí ein höggi í lokaumferðÓlympíuskákmótsins semlauk í Batumi í Georgíu í gær. Sigurinn í opna flokknum, þ.e. karlaflokknum, kom nokkuð á óvart því að lengi virtust Bandaríkjamenn ætla að endurtaka afrekið frá því í Bakú fyrir tveim árum. Þeir stilltu upp sömu sveit og þá með Caruana, So, Nakamura, Shankland og Rob- son innanborðs, héldu forystu svo til allt mótið eða þar til þeir töpuðu óvænt fyrir Pólverjum í níundu um- ferð. Náðu þó forystunni aftur en í lokaumferðinni mættu þeir Kínverj- um og jafntefli á öllum borðum varð niðurstaðan. Báðar þjóðirnar voru þá með 18 stig eins og Rússar sem unnu í síðustu umferð, en Kínverj- arnir voru með bestu stigatöluna og hrepptu gullið, Bandaríkjamenn fengu silfur og Rússar brons. Kínverska liðið var skipað Liren Ding, Yangyi Yu, Yi Wei, Xiangzi Bu og Li Chao. Allir þessir skákmenn hafa teflt á Íslandi við ýmis tækifæri. Að smásmugulegur stigaútreikn- ingur ráði úrslitum á hverju Ólymp- íumótinu á fætur öðru afhjúpar auð- vitað hvílíkur galli er á keppnisfyrir- komulaginu og mætti t.d. útkljá þessi mót með aukakeppni milli efstu þjóða með atskákarfyrirkomulagi. Rússar tefldu hvorki við Bandaríkja- menn né Kínverja. Í kvennaflokknum unnu kínversku stúlkurnar einnig á stigum en Úkra- ína kom í næsta sæti. Báðar þjóð- irnar hlutu 18 stig. Georgía hlaut bronsið og í framhjáhlaupi má geta þess að heimamenn fengu einnig mikið hrós fyrir frábærlega vel skipulagt Ólympíumót. Íslenska sveitin hefði með sigri yf- ir Svartfjallalandi í síðustu umferð getað náð þokkalegu sæti en slag- kraftinn vantaði í hagstæðari stöðum hjá Hannesi Hlífari og Guðmundi Kjartanssyni, sem átti rakinn vinn- ing á einum stað. Tap 1½ : 2½ og 12 stig eins og í Bakú en þó slakari frammistaða, 68. sæti af 184 þátt- tökuþjóðum. Íslenska kvennasveitin varð í 63. sæti af 150 þátttöku- þjóðum. Úttekt á frammistöðu liðanna bíð- ur betri tíma en Jóhann Hjartarson tefldi einna best en hafði sjö sinnum svart í tíu skákum. Eftir sigurinn í skák gegn Kosovo í 10. umferð var hann kallaður í ítarlega rannsókn í sérstökum skanna, því að leikir hans voru þeir sömu og ofurtölvur eftir- litsaðila mótsins höfðu valið. Afar strangt eftirlit var á mótstað, símar vitanlega bannaðir, einng pennar og gömul fermingarúr: OL Batumi 2018; 10. umferð: Jóhann Hjartarson – Murtez On- dozi Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. Bd3 Rf6 6. O-O Dc7 7. De2 d6 8. f4 Rbd7 9. c4 Be7 10. Rc3 O-O 11. Kh1 b6 12. Bd2 Bb7 Jóhann, sem hafði undirbúið sig vel fyrir þessa skák, taldi þennan leik ónákvæman því að biskupinn missir vald á e6-peðinu. 13. f5 e5 14. Rb3 Rc5 15. Rxc5 dxc5 16. Rd5 Rxd5 17. cxd5 Dd6 18. a4! Hfc8 19. Bc4 Hc7 20. Ha3! Sækir á kónginum með beinum hætti. 20. ... Kf8 21. Dh5 h6 22. f6! Gegnumbrot sem mylur niður varnir svarts. 22. ...Bxf6 23. Bxh6! Ke8 23. .. gxh6 dugar skammt vegna 24. Dxh6+ og 25. Haf3. 24. Haf3 g6 25. Dh3 Bd8 26. Bg7 f5 27. Dh8+ Kd7 28. Bxe5 Nú er eftirleikurinn auðveldur. 28. ... Be7 29. Dg7 Hg8 30. Dxg8 Dxe5 31. exf5 gxf5 32. Hxf5 De4 33. H5f4 De5 34. Dg4+ Kd8 35. He4 Dh8 36. De6 Hd7 37. Dxb6+ Kc8 38. Bxa6 Bxa6 39. Dxa6 Db8 40. Hxe7! - og loks gafst svartur upp, 40. ... Kxe7 er svarað með 41. Dd6+ Hc7 42. Hf8+. Kínverjar unnu báða flokka Ólymp- íumótsins á stigum Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Chess.com Klapp á kollinn Pólverjar unnu Bandaríkjamenn í níundu umferð og kom- ust einir í efsta sætið. Nýja stjarnan Duda t.v. fær klapp frá liðstjóranum Bartosz Socko eftir að hafa gert jafntefli við Caruana í 118 leikjum. Atvinna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.