Morgunblaðið - 06.10.2018, Side 33
MESSUR 33á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018
Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2019
Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til
heilsueflingar og forvarna.
Áhersla er lögð á eftirfarandi:
• Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu.
• Verkefni sem tengjast geðrækt barna.
• Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði, svefni og hreyfingu.
• Áfengis-, vímu- og tóbaksvarnir.
• Verkefni sem tengjast kynheilbrigði.
• Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu,
eða verkefni sem eru til þess fallin að stuðla að auknu jafnrétti kynjanna í
tengslum við heilsu.
Við úthlutun verður tekið mið af eftirfarandi stefnum:
• Lýðheilsustefnu og aðgerðum sem stuðla að heilsueflandi samfélagi.
• Stefnu í áfengis- og vímuvörnum til 2020.
• Stefnu og aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum til 2020.
Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang:
• Sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila.
• Eru með eigin fjármögnun eða aðra fjármögnun.
Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr
markmið. Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn
og skal skila framvinduskýrslu að verkefni loknu.
Opnað verður fyrir umsóknir þann 20. september en frestur til að sækja um
rennur út þann 15. október 2018. Sótt er um á vefsvæði Lýðheilsusjóðs
http://lydheilsusjodur.sidan.is/pages/
Nánari upplýsingar í síma 510 1900 eða á vef Embættis landlæknis.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins.
Embætti landlæknis - Barónsstíg 47 - 101 Reykjavík - Sími 510 1900 - lydheilsusjodur@landlaeknir.is - www.landlaeknir.is
AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ur er Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr Kór Akur-
eyrarkirkju syngja. Organisti er Sigrún Magna
Þórsteinsdóttir. Sunnudagaskóli í Safnaðar-
heimilinu kl. 11. Gutti og Selma mæta á
svæðið og skemmta okkur. Umsjón Sonja Kro
æskulýðsfulltrúi og Sigríður Hulda Arnardóttir.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl
14. Biblíufræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, sr.
Þór Hauksson þjónar og flytur prédikun dags-
ins. Benjamín Gísli Einarsson leikur á flygil.
Félagar úr kirkjukórnum leiða söng. Sunnu-
dagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimili
kirkjunnar í umsjá Önnu Siggu Helgadóttur og
Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Kaffi og spjall á
eftir.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Kristný Rós Gústafsdóttir djákni og Dagur
Fannar Magnússon guðfræðinemi annast
samverustund sunnudagaskólans. Séra Sig-
urður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari við
messuna. Félagar úr Kór Áskirkju leiða söng-
inn. Orgelleikari er Bjartur Logi Guðnason.
Kaffisopi í Ási eftir messu.
BESSASTAÐAKIRKJA | Bessastaðasókn
tekur þátt í fjölskylduhátíð kirknanna í Garða-
bæ og Hafnarfirði í Víðistaðakirkju 7. október.
Rúta bíður okkar í safnaðarheimilinu Brekku-
skógum 1 en lagt verður af stað kl. 11 og
komið heim kl. 13.30.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Hallgrímsmessa kl.
11. Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson, fyrrver-
andi biskup á Hólum, prédikar. Sr. Magnús
Björn Björnsson þjónar fyrir altari. Kór Breið-
holtskirkju syngur undir stjórn Arnar Magnús-
sonar organista. Sungið er messutón úr Gra-
duale frá Hólum og inn í það fléttaðir sálmar
eftir sr. Hallgrím Pétursson og sr. Sigurbjörn
Einarsson. Forsöngvarar eru úr röðum kór-
félaga. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá
Steinu og Steinunnar. Ensk lofgjörðarstund kl.
14. Sr. Magnús Björn Björnsson þjónar.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf sunnudaga
kl. 11 fyrir Grensás- og Bústaðasóknir. Brúðu-
leikhús, ratleikir, spurningaleikur, bænir, söng-
ur, tónlist, gestir. Umsjón Daníel Ágúst, Sóley
Adda, Jónas Þórir og Pálmi. Samvera fyrir alla
fjölskylduna. Guðsþjónusta kl. 14. Einsöngur
Guðbjörg Tryggvadóttir og Kristján Jóhanns-
son. Kammerkór Bústaðakirkju og Jónas Þórir.
Bolvíkingar og messuþjónar aðstoða.
Prestur er Pálmi Matthíasson.
DIGRANESKIRKJA | Kántrímessa kl. 11,
prestur er Gunnar Sigurjónsson, tónlist er í
höndum Axels Ómarssonar. Barn verður skírt í
messunni. Veitingar í safnaðarsal að lokinni
messu. Fermingarfræðsla kl. 12.30.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30
á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18 og má. mi. og fö. kl. 8, lau.
kl. 16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, sr. Elínborg
Sturludóttir prédikar og þjónar. Sunnudaga-
skóli á kirkjuloftinu í umsjón Dóru Sólrúnar.
Kári Þormar og Dómkórinn. Minnum á bíla-
stæði við Alþingi.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Leiðtogar sunnudagaskólans,
Marta og Ásgeir, taka á móti börnunum ásamt
sr. Jóni Ómari Gunnarssyni. Arnhildur Val-
garðsdóttir spilar á píanó. Eftir guðsþjón-
ustuna verður kaffi, te og djús. Meðhjálpari er
Jóhanna Freyja Björnsdóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli
kl. 11. Guðþjónusta kl. 14. Kór og hljómsveit
kirkjunnar leiðir sönginn undir stjórn Arnar
Arnarsonar. Árleg kaffisala Kvenfélagsins
hefst að lokinni guðsþjónustu.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðar-
prestur leiðir stundina. Barn verður borið til
skírnar. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn
við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari
Gunnarssyni, organista. Fermingarbörn og fjöl-
skyldur þeirra eru hvött til að mæta.
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 14. Barn borið til
skírnar. Sr. Bjarni Karlsson þjónar fyrir altari
og prédikar. Halldís Ólafsdóttir syngur ein-
söng, félagar úr Kór Vídalínskirkju syngja og
organisti verður Jóhann Baldvinsson.
GLERÁRKIRKJA | Guðþjónusta og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf í guð-
þjónustu. Sr. Stefanía G. Steinsdóttir þjónar.
Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Petru
Bjarkar Pálsdóttur. Helgistund kl. 20. Kross-
bandið leiðir söng. Sr. Stefanía G. Steinsdóttir
þjónar.
GRAFARVOGSKIRKJA | Fjölnismessa kl.
11. Séra Grétar Halldór Gunnarsson þjónar.
Iðkendur Fjölnis ganga inn með heiðursfána
Fjölnis og ungir iðkendur eru messuþjónar og
flytja bænir. Jón Karl Ólafsson flytur ávarp og
spilar á hljómborð. Pétur Veigar Pétursson
spilar á gítar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng
og Hákon Leifsson organisti stjórnar. Við hvetj-
um alla að koma í Fjölnislitunum.
Sunnudagaskólinn er á sínum stað og hefur
Pétur Ragnhildarson umsjón.
GRAFARVOGUR – kirkjuselið í Spöng |
Selmessa kl. 13. Sr. Sigurður Grétar Helgason
þjónar, Vox Populi syngur og organisti er Hilm-
ar Örn Agnarsson.
GRENSÁSKIRKJA | Bleik messa kl. 11 í til-
efni af bleikum október, átaki Bleiku slauf-
unnar til stuðnings krabbameinsrannsóknum
og ráðgjöf. Samskot dagsins renna til átaks-
ins. Heitt á könnunni fyrir og eftir messu.
Bænastund í kapellu klukkan 10.15. Fólk er
hvatt til að mæta með bleika slæðu eða bleikt
bindi. Í messunni þjónar séra María, Ásta er
organisti.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Messa með altarisgöngu sunnudag kl. 14 í há-
tíðarsal Grundar. Prestur er Auður Inga Einars-
dóttir heimilisprestur. Kristinn Ómarsson að-
stoðar við útdeilingu, Grundarkórinn leiðir
söng undir stjórn Kristínar Waage organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Prestar eru Karl V.
Matthíasson og Leifur Ragnar Jónsson. Barna-
kór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Ás-
bjargar Jónsdóttir og Svanfríðar Gunnars-
dóttur. Meðhjálpari er Guðný Aradóttir,
kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffi
og djús í boði eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjölskylduhátíð
verður kl. 11-13 í Víðistaðakirkju og íþrótta-
húsi Víðistaðaskóla. Fjölbreytt dagskrá fyrir
börn sem fullorðna. Veitingar. Engin messa
verður í Hafnarfjarðarkirkju þennan dag.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og
þjónar fyrir altari. Hópur messuþjóna að-
stoðar. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju
syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Um-
sjón barnastarfs: Ragnheiður Bjarnadóttir og
Rósa Árnadóttir. Bænastund mánud. kl.
12.15. Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud. kl.
10.30. Árdegismessa miðvikud kl. 8 og
hádegisfyrirlestur kl. 12. Kyrrðarstund fimm-
tud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Kordía kór Háteigskirkju syngur, organisti
er Guðný Einarsdóttir, prestur er Eiríkur Jó-
hannsson.
HJÚKRUNARHEIMILIÐ Skjól | Guðsþjón-
usta á sal á 2. hæð kl. 13. Séra Sigurður
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Bjartur
Logi Guðnason leikur á orgelið. Almennur
söngur. Vinir og vandamenn heimilisfólks vel-
komnir með sínu fólki og aðstoð þeirra vel
þegin við flutning fólks milli hæða.
HRAFNISTA REYKJAVÍK | Guðsþjónusta kl.
14 í samkomusalnum Helgafelli, 4. hæð. Org-
anisti er Bjartur Logi Guðnason. Félagar úr kór
Áskirkju syngja. Sr. Svanhildur Blöndal prédik-
ar og þjónar fyrir altari.
HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa | Guðsþjón-
usta kl. 13.30. Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir
þjónar. Söngkór Villingaholts- og Hraungerðis-
sókna syngur undir stjórn Inga Heiðmars Jóns-
sonar.
HRUNAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Kirkjukórinn syngur. Organisti er Stefán Þor-
leifsson.
HVALSNESKIRKJA | Messa kl. 14. Gólf-
messa. Gólf kirkjunnar hefur nú verið lagfært
sem gjörbreytir ásýnd að innan. Kirkjukórinn
syngur undir stjórn Keiths Reed organista.
Sameiginleg messa fyrir báðar sóknir presta-
kallsins.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11.Translation into English. Sam-
koma á spænsku kl. 13. Reuniónes en esp-
añol. Samkoma á ensku kl. 14. English
speaking service.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sunnudag kl. 13.
Barnakirkja / fjölbreytt og skemmtilegt barna-
starf og almenn samkoma með lofgjörð og
fyrirbænum. Böðvar Björgvinsson prédikar.
Eftir stundina gefst fólki tækifæri á að njóta
samverunnar og boðið verður upp á kaffi og
pítsusneiðar á vægu verði.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11,
sr. Fritz Már Jörgensson og sr. Sigurður Grétar
Sigurðsson þjóna ásamt messuþjónum. Arnór
organisti leiðir tónlist ásamt kór Keflavíkur-
kirkju. Eftir guðsþjónustu bjóða sóknarnefnd
og foreldrar fermingarbarna upp á súpu og
brauð frá Sigurjónsbakaríi í Kirkjulundi.
Miðvikudagurinn 10. okt. kl. 12. Kyrrðarstund
í kapellu vonarinnar. Gæðakonur bera fram
súpu og brauð eftir stundina.
KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson
þjónar ásamt sunnudagaskólakennurum.
Stúlkur úr 6. og 7. bekk í skólakór Kársnes-
skóla syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvins-
dóttur.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Sr. Jóhanna Gísladóttir þjónar.
Organisti er Magnús Ragnarsson. Stúlknakór-
inn Graduale Futuri undir stjórn Rósu Jóhann-
esdóttur leiðir safnaðarsöng og tekur lagið fyr-
ir kirkjugesti. Hafdís og Sara taka vel á móti
sunnudagaskólabörnum á öllum aldri. Aðal-
steinn Guðmundsson kirkjuvörður og messu-
þjónar aðstoða við helgihaldið og bera fram
kaffi og veitingar eftir stundina.
LAUGARNESKIRKJA | Í tilefni af alþjóða
geðverndardeginum verður Geðveik messa kl.
11. Við beinum sjónum okkar að kulnun í
starfi, Halldóra Eyjólfsdóttir sjúkraþjálfi miðlar
af reynslu sinni í hugvekju og Elísabet Gísla-
dóttir djákni leiðir okkur í kærleiksbæn, Eva
Björk Valdimardóttir þjónar. Tónlistarflutningur
er í höndum Önnu Kristínar Þórhallsdóttur og
Arngerðar Maríu Árnadóttur. Sunnudagaskóli í
umsjón Garðars, Emmu og Gísla. Messukaffi í
safnaðarheimili á eftir.
LÁGAFELLSKIRKJA | Kvöldmessa 7. októ-
ber kl. 20. Unnsteinn Manuel syngur og góðir
gestir á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar koma í
heimsókn. Þórður Sigurðarson hefur umsjón
með tónlist og sr. Arndís Linn leiðir helgi-
haldið. Sunnudagaskóli kl. 13. Umsjón Berg-
lind og Þórður.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
klukkan 11. Guðsþjónusta klukkan 14 þar
sem sr. Guðni Már Harðarson þjónar. Bræð-
urnir Birkir og Markús úr Omótrack sjá um tón-
listina. Ekki verður hefðbundin kvöldguðsþjón-
usta kl. 20 vegna heiðurstónleika: Mahalia,
Aretha og Sister Rosetta. Miðasala á midi.is.
NESKIRKJA | Uppskerumessa kl. 11. Mess-
an er helguð gjöfum jarðar. Þakkir færðar í tali
og tónum. Sunnudagaskólinn á sama tíma.
Kór Neskirkju syngur. Organisti er Steingrímur
Þórhallsson. Prestur er Skúli S. Ólafsson.
Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón
Katrín, Heba og Ari. Grænmetissúpa úr aldin-
garði organistans í boði eftir messu.
ÓLAFSVALLAKIRKJA á Skeiðum | Guðs-
þjónusta kl. 14. Kirkjukórinn syngur. Organisti
er Þorbjörg Jóhannsdóttir.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Lofgjörðar- og vitnisburðasamkoma.
Barnastarf. Túlkað á ensku.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Fjölskyldumessa
kl. 11. Organisti er Anna María Guðmunds-
dóttir. Prestur er Sigríður Gunnarsdóttir. Há-
degishressing í safnaðarheimilinu á eftir.
SELFOSSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11.
Unglingakór kirkjunnar syngur undir stjórn Ey-
rúnar Jónasdóttir. Umsjón með stundinni hafa
Jóhanna Ýr og sr. Ninna Sif.
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11, Bibl-
íusaga og brúðuleikrit, hreyfisöngvar og mynd
til að lita, ávaxtahressing í lokin. Kvöldguðs-
þjónusta kl. 20 – ath. breyttan messutíma, sr.
Bryndís Malla Elídóttir þjónar og Kór Selja-
kirkju syngur, organisti er Tómas Guðni
Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Gæludýra-
blessun í dag, laugardag, kl. 11. Árni Stefán
Árnason lögfræðingur, sem hefur sérhæft sig í
dýravernd, talar. Dýrasöngvar. Sóknarprestur
þjónar. Veitingar í safnaðarheimilinu.
Fræðslumorgunn kl. 10 sunnudag. Páll Vil-
hjálmsson blaðamaður fjallar um kristin gildi
og menningu. Guðsþjónusta og sunnudaga-
skóli kl. 11. Bjarni Þór Bjarnason sóknar-
prestur þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er
organisti. Kammerkórinn syngur. Veitingar eftir
athöfn í safnaðarheimilinu.
VÍDALÍNSKIRKJA | Fjölskylduhátíð sunnu-
dagaskólanna í Garðabæ og Hafnarfirði í Víði-
staðakirkju. Rútur fara frá Vídalínskirkju kl.
11. Batamessa kl. 17 sem er byggð á 12
spora kerfinu. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og
Helga Björk Jónsdóttir djákni þjóna fyrir altari.
Vinur í bata flytur vitnisburð. Jóhanna Guðrún
Jónsdóttir syngur einsöng við undirleik Davíðs
Sigurgeirssonar og organisti er Jóhann Bald-
vinsson. Hressing og samfélag í safnaðar-
heimlinu að lokinni messu. Sjá gardasokn.is
ÞORLÁKSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11.
Hafdís og Guðmundur.
Orð dagsins: Jesús
læknar hinn lama
(Matt. 9)
Morgunblaðið/Ómar
Þingvallakirkja í haustlitum.