Morgunblaðið - 06.10.2018, Síða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018
✝ Bergvin Odds-son, útgerðar-
maður í Vest-
mannaeyjum,
fæddist í Neskaup-
stað 22. apríl 1943.
Hann lést á Land-
spítalanum í
Reykjavík 22. sept-
ember 2018.
Foreldrar hans
voru Magnea Berg-
vinsdóttir, f. 26.2.
1917, d. 1.10. 2001, og Oddur A.
Sigurjónsson, f. 23.7. 1911, d.
26.3. 1983. Systkini Bergvins eru
Rósa, f. 10.2. 1940, Guðmundur,
f. 22.4. 1943, Hrafn, f. 2.11. 1945,
Svanbjörg, f. 5.10. 1951, og Lea,
f. 27.9. 1955.
Eftirlifandi eiginkona Berg-
vins er María Friðriksdóttir, f.
1.3. 1943. Börn þeirra eru: 1)
Lúðvík, f. 29.4. 1964, kvæntur
Þóru Gunnarsdóttur, f. 16.3.
1965. Börn þeirra eru Jóhanna
Lea, f. 10.12. 2002, og Bjarni
Þór, f. 27.7. 2004. 2) Magnea, f.
9.5. 1965, gift Þorvarði Æ.
Hjálmarssyni, f. 9.10. 1962. Börn
Magneu af fyrra hjónabandi eru
Tómas Ingi, f. 22.12. 1995, og
María, f. 22.12. 1995. 3) Har-
ár. Árið 1986 keypti hann félaga
sína út úr útgerðinni og stjórn-
aði henni til loka árs 2017.
Árið 2005 keypti Bergvin og
gerði út litla trillu, Glófaxa II.
VE 301. Við andlátið var fjöl-
skyldan með í smíðum nýjan 12
tonna plastbát, sem hefur fengið
nafnið Glófaxi VE 300.
Bergvin var jafnaðarmaður.
Hann tók nokkurn þátt í pólitík-
inni í Vestmannaeyjum fyrir
jafnaðarmenn. Bergvin tók þátt
í störfum LÍÚ og sat í stjórnum
og ráðum hinna ýmsu fyrirtækja
og félaga í Eyjum og víðar. Má
þar nefna Vinnslustöðina hf.,
Vörð hf., Skipstjóra- og stýri-
mannafélagið Verðandi og Út-
vegsbændafélag Vestmanna-
eyja.
Bergvin hafði mikinn áhuga á
íþróttum og var dyggur stuðn-
ingsmaður ÍBV. Bergvin var fé-
lagi í Kiwanisklúbbnum Helga-
felli í Vestmannaeyjum, auk þess
að starfa náið með Félagi eldri
borgara í Eyjum. Á síðari hluta
æviskeiðs síns tók hann svo upp
á því að syngja og söng hann til
að mynda með gömlum félögum
sem kölluðu sig Brælubelli.
Útför Bergvins fer fram frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum
í dag, 6. október 2018, klukkan
14.
Meira: mbl.is/andlat
aldur, f. 21.8. 1972,
í sambúð með Sól-
veigu B. Magnús-
dóttur, f. 28.11.
1970. Synir Har-
aldar af fyrra
hjónabandi eru
Bergvin, f. 24.10.
1994, Baldur, f.
17.1. 1999, og Birk-
ir, f. 20.10. 2004.
Bergvin var
útgerðarmaður og
skipstjóri í Vestmannaeyjum.
Bergvin kynntist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Maríu Friðriks-
dóttur frá Skálum á Langanesi,
1962. Bergvin lauk námi frá
Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík 1964. Það sama ár fluttu hin
nýgiftu hjón til Eyja og bjuggu
þar allan sinn búskap. Bergvin
stundaði sjómennsku hjá frænda
sínum, Helga Bergvins, og fleiri
útgerðum fyrst eftir komuna til
Eyja. Árið 1969 tók hann við
skipstjórn á Ver VE, aðeins 26
ára gamall. Árið 1974 stofnaði
hann, í félagi við bróður sinn og
mág, útgerðarfélag sem gerði út
fiskiskipið Glófaxa VE 300. Sam-
anlagt var Bergvin skipstjóri á
fiskiskipum í Eyjum í næstum 40
Elsku pabbi minn er dáinn.
Það verður erfitt að skilja að þú
eigir ekki eftir að koma til okkar á
Skólaveginn kl. 11 á hverjum
morgni. Það er víst alveg á hreinu
að ég vann í foreldralottóinu, því
betri pabba var ekki hægt að fá
og og með Dúllu sína sér við hlið
voru honum allir vegir færir.
Fjölskyldan var honum allt sem
og fólkið á Eyjunni okkar fögru,
mátti ekkert aumt sjá og um-
hyggjan fyrir samfélaginu var
mikil. Hann var sannur vinur vina
sinna og á hverjum degi var hann
á ferðinni að fylgjast með mann-
lífinu, fiskiríinu, pólitíkinni eða að
snúast í kring um fjölskylduna.
Hann fór víða á hvíta bílnum sín-
um og hvert sem hann fór hafði
hann yfirleitt forgang í umferð-
inni. Lagið „Kóngur einn dag“
var honum mjög hugleikið enda
lýsir það honum best, hann var
kóngur alla daga.
Pabbi keypti útgerð árið 1974
með bróður sínum Hrafni og
Valla mági sínum. En árið 1986
keypti hann útgerðina einn og
rak hana til ársins 2017 ásamt
fjölskyldunni.
Ég var ekki gömul þegar hann
fól mér bókhaldið og hinn daglega
rekstur útgerðarinnar. En pabbi
fylgdist alltaf vel með og það var
undir hans leiðsögn að útgerðin
óx og dafnaði. Traust var eitt sem
hann kenndi okkur snemma og
það voru margir sem fengu að
byrja sinn sjómannsferil undir
hans stjórn. Hann hafði þó alltaf
skoðanir á hlutunum og lét þær
heyrast hvar sem hann var.
Eftir að pabbi kom í land árið
2008, tóku við ný viðfangsefni. En
hann hafði róið sem skipstjóri á
bátum sínum sem báðir hétu Gló-
faxi VE 300. Pabbi var aldrei að-
gerðalaus þótt honum fyndist
hann ekki hafa neitt að gera í
landi, en smám saman fann hann
sér nýja rútínu. Hann átti trilluna
Glófaxa 11 VE 301 sem hann réri
á sér til ánægju, oft með Hrafni
bróður sínum en þeir voru alla tíð
miklir vinir. Sjórinn var hans líf
og yndi.
Þótt hann væri kominn í land
þá hringdi hann reglulega í skip-
stjórana á Glófaxa til þess að ráð-
leggja þeim hvar best væri að
leggja netin og það sýnir best
hvernig karakter hann var, alltaf
til í að gefa góð ráð og hjálpa til
eftir bestu getu.
Meira segja eftir að við seldum
bátinn hélt hann áfram að hringja
í skipstjórann á skipinu til þess að
gefa góð ráð.
Fjölskyldan, börnin og barna-
börnin voru honum svo kær.
Bræður hans og systur sóttu mik-
ið til hans, enda gott að leita til
hans með vandamál. Það leið ekki
sá dagur að hann hringdi ekki í
Hrafn bróðir sinn þar sem spjall-
að var um trilluna, veðrið og fékk
hjá honum góð ráð varðandi bát-
inn sem nú er í smíðum. Sárt er
að hugsa til þess að hann fái ekki
að sjósetja og róa á nýja bátnum
sínum vegna svikinna loforða á
framkvæmd við smíði bátsins.
Hann lifði fyrir það nú undir það
síðasta, að spá í hvað þyrfti að
kaupa í nýja bátinn, og því miður
tókst okkur ekki að klára bátinn
fyrir hann, en það verður stefnt
að því á næstunni að klára skipið
fyrir þig, elsku pabbi.
Mamma og pabbi bjuggu allan
sinn búskap á Illugagötunni.
Samheldnin á Illugagötunni var
engu lík og gott að alast upp við
það að þér stóðu allar dyr opnar.
Þegar við héldum upp á afmæli
mömmu og pabba síðasta vor,
voru nágrannarnir á Illugagöt-
unni mættir til þess að gleðjast
með þeim hjónum á þessum tíma-
mótum.
Margs er að minnast en að
horfa til baka mun minninginn
um góðan og kærleikríkan pabba
standa eftir. Hann hafði sterkar
skoðanir á flestu og fékkst þú allt-
af að vita hvar hann stóð og sann-
leikurinn sjaldnast langt undan.
Þó mun alltaf standa upp úr okk-
ar vinátta í öllu, sama hvað gekk
á. Hvort sem maður gerði eitt-
hvað rangt eða í fljótfærni stóð
hann alltaf með sínum.
Hvíldu í friðu, elsku pabbi
minn, minningin um þig mun lifa
með okkur um aldur og ævi.
Þín dóttir
Magnea.
Það er oft sagt að maður velji
sér ekki ættingja heldur sitji uppi
með þá. En ég get sagt að í mínu
tilfelli var ég einstaklega heppinn
með þá föðurúthlutun sem ég
fékk og hefði örugglega ekki get-
að valið betur sjálfur. Hugsunin
um að geta hvorki hitt þig eða
aldrei talað við þig aftur er mjög
erfið og nánast óbærileg.
Við vorum vanir að hittast á
hverjum morgni í kaffispjalli og
fara yfir öll heimsins mál. Það fór
þó mikil tími í að tala um bátinn
sem við fjölskyldan vorum að láta
smíða og var þér hjartans mál.
Vorum við búnir að hanna hann
fram og til baka og alltaf duttu
inn nýjar hugmyndir. Það er því
sárara en orð fá lýst að þú skyldir
aldrei ná að fara neinn róður á
nýja bátnum þínum sem þú varst
búinn að bíða svo spenntur eftir
að fá að prufa. En við lofuðum þér
að klára bátinn og það skulum við
gera fyrir þig.
Íþróttir voru þér sérstaklega
hugleiknar þótt þú hafir aldrei
náð neinum frama í þeim sjálfur
en fannst afskaplega skemmti-
legt að fylgjast með þeim og þá
sérstaklega fótbolta. Um fótbolta
gátum við rætt endalaust þar sem
þú varst mikill Tottenham-maður
og ég Arsenal-maður, því gátum
við rökrætt endalaust um ensku
knattspyrnuna. En þó myndi það
bara gleðja mig núna að þínir
menn myndu ná góðum árangri í
vetur svona til heiðurs þér. Það
verður skrítið að fara ekki upp á
Illó og horfa á enska boltann með
þér í framtíðinni.
En um eitt gátum við verið al-
veg sammála um, það var liðið
okkar ÍBV. Þú og mamma voru
einn af aðal stuðnings- og styrkt-
araðilum félagsins hvort sem um
var að ræða fótbolta eða hand-
bolta, enda hafði ÍBV sæmt þig
silfurmerki félagsins. Veit ég að
hvíta pickup bílsins verður sárt
saknað á heimaleikjum á Há-
steinsvelli í framtíðinni.
Þú varst mikill fjölskyldumað-
ur. Þér fannst alltaf best þegar öll
fjölskyldan var saman kominn
upp á Illó, þar sem boðið var í mat
og fleira. Barnabörnin voru mjög
hænd að þér og sóttu í að heim-
sækja ykkur. Ég veit að missir
þeirra er mikill; þ.e. að geta ekki
komið upp á Illó og hitt þig eða
farið með þér á rúntinn á hvíta
pikkanum. Það var líka alltaf nóg
að gera á Illó á öllum stórhátíð-
um, þó held ég það sé ekki á neitt
hallað þegar minnst er á áramót-
in. Áramótin á Illó voru engu lík
og gleðin og spenningurinn í
kringum þau er eitthvað sem á
eftir ylja manni um hjartaræt-
urnar um ókomna tíð.
Enda voru flugeldakaupin
mögulega sá stuðningur við sam-
félagið sem þú hafðir mest gaman
af en þá breyttist þú í barn í orðs-
ins fyllstu merkingu.
Það er mjög dýrmætt fyrir
okkur systkinin að hafa náð því að
halda upp á 150 ára afmæli ykkar
mömmu. Við náðum að koma ykk-
ur á óvart og sú veisla var
ógleymanleg. Munu minningar úr
þeirri veislu ylja okkur um
ókomna framtíð.
Elsku pabbi, þú kenndir mér
svo margt, þú varst alltaf traust-
ur og heiðarlegur og einstaklega
gott að leita til þín. Síðustu vikur
hafa verið hafa verið alveg ein-
staklega erfiðar frá því þú veikt-
ist og þar til að kallið þitt kom.
Það má samt segja að þetta hafi
verið í þínum anda að vera ekkert
að „gaufa“ neitt við hlutina, held-
ur bara klára þetta.
Söknuðurinn er mikill en ljúfar
minningar um einstakan mann
munu lifa að eilífu. Farðu í friði,
elsku pabbi minn.
Þinn sonur,
Haraldur.
Það er ekki bara eitthvað eitt
sem kemur upp í huga manns,
þegar maður hugsar til Bedda á
Glófaxa. Stuttu eftir að ég flutti
til Vestmannaeyja gat maður
ekki annað en tekið eftir stórum
hvítum amerískum pikkup með
einkanúmerinu V300. Ég spurði
vinnufélagana hver ætti þennan
stóra flotta bíl. Svarið var Beddi á
Glófaxa. Seinna lágu leiðir þannig
að ég fór að vinna fyrir fjölskyld-
una hans Bedda. Upp úr því
kynntist ég konu minni, henni
Magneu Bergvins.
Eftir það lágu leiðir okkar oft
saman. Beddi átti margar gull-
setningarnar eins og, sem dæmi,
þegar ég var orðinn heimavanur á
hans heimili. Eitt sinn sagði hann
við mig „var ég búinn að kynna
þig fyrir sjeniver“ eða Bedda-
blöndunni? Sem hann kunni afar
vel við. Þótt furðulegt sé fannst
mér hann vera í lagi.
Oft töluðum við um samferða-
fólk okkar sem hann og ég þekkt-
um frá Norðfirði. Minnið sem
Beddi hafði var alveg einstakt.
Alltaf gat ég flett upp í honum
eins og í bók, ef ég þurfti að
spyrja um fólk eða tengsl manna.
Beddi var ljúfur, góður, ákveð-
inn, hreinskilinn og talaði ís-
lensku með öllu andlitinu þegar
það átti við. Þetta eru bestu lýs-
ingarorðin sem ég finn og lýsa vel
tengdapabba mínum.
Hvíl í friði. Þinn
Þorvarður (Doddi).
Skipstjórinn á Hafrúnu NK 80,
Kiddi í Dagsbrún, var afi minn og
þeirrar gerðar að hann talaði var-
lega um fylgdarmenn sína og tölti
varlega lífsins veg. Mér er það
minnisstætt að það fallegasta
sem hann gat skreytt nokkurn
mann með var að viðkomandi
væri duglegur. Í þessari lýsingu
afa míns á samferðamönnum sín-
um fólst ótal margt, s.s. að við-
komandi væri harðduglegur,
ákveðinn, áreiðanlegur, greindur,
traustsins verður og að viðkom-
andi hefði forskot á meðal-
manninn. Beddi var enginn
meðalmaður, hann var duglegur!
Um hádegisbil var bankað upp
á í Dagsbrún, afi minn gekk til
dyra og tekur á móti skólastjóra
barnaskólans í Neskaupstað og
býður honum til stofu. Ung að ár-
um sat móðir mín við eldhúsborð-
ið og hlustaði á skólastjórann sinn
biðja afa um hásetapláss fyrir tví-
burana sína, Bergvin og Guð-
mund. Tæpum 30 árum síðar slær
tengdafaðir minn á þráðinn til
bróður síns, Bedda á Glófaxa, og
biður hann um að taka mig að sér.
Einkennilegt hvernig hringrás
lífsins er en að símtali loknu var
ég orðinn stoltur háseti á Glófaxa
VE 300.
Á einhvern heillandi hátt eru
minningar mínar um Bedda á
Glófaxa hjúpaðar þakklæti. Beddi
var vissulega ekki aðalsmaður en
samt var hann kóngurinn. Silki-
slakur, brosandi, göngulagið af-
slappað, axlaböndin á sínum stað
og á leið sinni úr Illugagötunni sé
ég hann líta sposkan í spegilinn
og blikka auga þ.s. fötin fóru hon-
um honum vel, þau þorðu ekki
annað.
Það sem einkenndi Bedda um-
fram annað var heiðarleiki og
gjafmildi. Hann var mannvinur af
bestu gerð en umfram allt vottaði
ekki fyrir falsi né yfirborðs-
mennsku. Hann var hreinn og
beinn, hann var allra.
Tvíburabræðurnir Guðmund-
ur og Beddi áttu með sér einstakt
samband og ég get ekki varist
þeirri hugsun að þeir hafi í raun
verið einn og hinn sami, tvö ein-
tök af sama manninum. Bræðurn-
ir deildu áhugamálum sínum og
studdu þétt við ungmenna- og
æskulýðsstarf og gerðu það svo
vel að eftir var tekið. Gilti einu
hvort um var að ræða góðan eða
slæman árangur hjá ÍBV eða
Breiðabliki, bræðurnir voru sem
einn og studdu sitt lið með ráðum
og dáð.
Beddi var rammur að afli og ég
sé hann fyrir mér halda uppi
himnafestingunni svo við hin
Bergvin Oddsson
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 10-17 alla virka daga
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi
HARALDUR SIGURÐSSON
fyrrv. bankafulltrúi á Akureyri
lést á sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn
28. september.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 8. október
klukkan 13.30. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem
vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Elísabet Kemp Guðmundsdóttir
Eva Þ. Haraldsdóttir Gunnar Jóhannsson
Ásdís H. Haraldsdóttir Sigurður V. Guðjónsson
Ragna Haraldsdóttir Leó Jónsson
Sigurður St. Haraldsson Thamar M. Heijstra
barnabörn, barnabarnabörn
ÞORSTEINSSON
Ólafur Þorsteinn Gíslason
lést í Newport, Rhode Island,
miðvikudaginn 3. október.
Minningarathöfn verður ákveðin síðar.
Katherine A. Gíslason
Erika Gíslason Stefán Gíslason
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTJANA HELGA
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Núpalind 6, Kópavogi,
lést á hjartadeild Landspítalans
miðvikudaginn 3. október.
Útför auglýst síðar.
Kristjana Bjarnadóttir Þorsteinn Sigurðsson
Ólöf Bjarnadóttir Guðlaugur G. Jónsson
Ása Bjarnadóttir Árni Valur Árnason
Elín Hreindal Bjarnadóttir
Birna Bjarnadóttir Gísli Örn Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, sonur minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓSKAR ÁSKELL SIGURÐSSON,
Austurkór 65,
lést á hjartadeild Landspítalans
miðvikudaginn 3. október.
Útför verður auglýst síðar.
Rebekka Alvars
Guðríður Magnúsdóttir
Karen Rakel Óskarsdóttir Stefán Þór Helgason
Guðríður Svava Óskarsdóttir Halldór Benjamín Guðjónsson
Alvar Óskarsson Eydís Örk Sævarsdóttir
Edith Ósk Óskarsdóttir Kristinn Dan Guðmundsson
Kristín Eva Óskarsdótti Ágúst Birgisson
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir minn,
tengdafaðir og afi,
ÞORSTEINN GUÐBERGSSON,
Aðalstræti 130, Patreksfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á
Patreksfirði fimmtudaginn 4. október.
Þuríður G. Ingimundardóttir
Brynjar Þór Þorsteinsson Guðríður Leifsdóttir
Patrekur Bergmann
Brynjarsson
Filippía Brynjarsdóttir