Morgunblaðið - 06.10.2018, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 06.10.2018, Qupperneq 60
25% afsláttur af völdum vörum. Slammfræðingarnir Ólöf Rún Bene- diktsdóttir og Jón Magnús Arnars- son stýra ljóðaslammsnámskeiði í Gerðubergi í dag kl. 13-16. Þau munu hjálpa þátttakendum að setja saman sitt fyrsta slammljóð og kenna aðferðir til að fá hugmyndir, vinna texta og bæta flæði. Jón fór með sigur af hólmi í Ljóðaslammi Borgarbókasafnins í fyrra. Nauð- synlegt er að skrá sig fyrir fram með því að senda póst á vertumed- @borgarbokasafn.is. Ljóðaslamm með slammfræðingum LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 279. DAGUR ÁRSINS 2018 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.108 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Staðan á íslensku landsliðsmönn- unum í knattspyrnu sem Erik Ham- rén valdi í gær fyrir leikina gegn Frakklandi og Sviss er mun betri en þegar hann valdi sinn fyrsta hóp fyrir leikina gegn Sviss og Belgíu fyrir mánuði. Færri eru meiddir og nokkrir sem voru meiddir síðast eru í fínu formi, til að mynda Jóhann Berg Guðmundsson. »1 Betri staða á landsliðs- mönnum nú en síðast Tvennir tónleikar til heiðurs tón- listarmanninum David Bowie verða haldnir í Eldborg í Hörpu annað kvöld og á mánudagskvöld. Á fyrra kvöldinu kemur fram átta manna hljómsveit með hinn þekkta gítarleikara Adrian Belew innanborðs og 8. október sama hljómsveit með þrjátíu liðs- mönnum Sin- fóníu- hljómsveitar Norður- lands, Sin- foniaNord. Bowie heiðraður í tvígang í Eldborg ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sigrún Pétursdóttir er gallharður 98 ára gamall stuðningsmaður enska knattspyrnuliðsins Arsenal og miss- ir helst ekki af leik. „Ég byrjaði snemma að fylgjast með fótbolta, en hafði lengi svo mikið að gera að ég mátti ekki almennilega vera að því að sinna honum fyrr en ég hætti að leika hjá leikfélaginu, þegar ég var níræð,“ segir hún. Evrópuleikur Qarabag og Arsenal var á dagskrá í fyrrakvöld og eins og venjulega þegar Arsenal á sjón- varpsleik komu Vala Gísladóttir, dótturdóttir hennar, og Óðinn Þórðarson, sonur hennar, til hennar að horfa á leikinn. „Amma, þeir eru með víkingaklappið,“ segir Óðinn um áhorfendurna í fyrri hálfleik. „Hver leyfði þeim það?“ svarar hún að bragði og afsakar sig, segist vera farin að heyra illa. Sigrún man vel eftir Albert Guð- mundssyni og er sammála því að hann hafi verið bestur á sínum tíma. „Ég held að hann hafi verið það, strákurinn,“ segir hún. Segist sjálf ekkert hafa verið í íþróttum, nema hvað hún hafi spilað brids og golf fyr- ir nokkrum árum. Eitt lið þunnur þrettándi „Ég byrjaði að fylgjast með hand- boltalandsliðinu, þegar fótbolta- landsliðið var ekki gjaldgengt, og horfi á allt sem ég get,“ segir hún yfir bragðdaufum kafla. „Ekki bara á Arsenal enda væri það þunnur þrett- ándi ef ég horfði bara á eitt lið. Guð minn almáttugur.“ Sigrún var ráðskona á Bessastöð- um í forsetatíð Kristjáns Eldjárns og Vigdísar Finnbogadóttur, samtals í 22 ár. „Ég stjórnaði stóru búi, hugs- aði um mat kvölds og morgna og ekki var tími til annars.“ Leikfélag eldri borgara naut krafta Sigrúnar í 30 ár. „Ég lék þangað til ég varð níræð. Þá var komið nóg og ég steinhætti. Ég byrj- aði að spila golf á níræðisaldri, en átt- aði mig ekki á því hvað ég var orðin gömul, og varð að kaupa golfbíl. En það var æðislega gaman í golfinu.“ Sigrún heldur með Arsenal af því að sonur hennar, Sigurjón Magnús- son rithöfundur, gerði það. „Ég hermdi bara eftir honum.“ Óðinn ákvað svo að fylgja langömmu sinni og Vala slóst í hópinn. Mörg gullkornin falla og Sigrún lætur leikmennina heyra það. „Al- vörufótboltaunnandi verður að kunna að koma fyrir sig orði,“ segir hún. Segist samt vera að missa sjón- ina og fylgi leikmönnunum því illa eftir. Þá koma Óðinn og Vala til skjalanna og lýsa því sem fyrir augu ber. „Ég á erfitt með að muna nöfn leikmannanna og því nefni ég þá bara auðveldum nöfnum eins og til dæmis Magnús [Monreal] og gufuskipið [Özil]. Sá síðarnefndi var rosalega lé- legur þegar hann byrjaði með Arsen- al en hann hefur gert marga góða hluti síðan.“ Arsenal vann 3:0 sigur í Aserbaid- sjan og Sigrún hælir liðinu. „Þetta var öruggt og ég held áfram að glápa á hvern einasta leik á meðan ég sé boltann,“ segir Sigrún. Morgunblaðið/Hari Þrír ættliðir Vala Gísladóttir, Sigrún Pétursdóttir og Óðinn Þórðarson fylgdust með Arsenal í fyrrakvöld. Glápir á hvern leik á meðan hún sér boltann  Sigrún Pétursdóttir 98 ára er forfallinn fótboltaunnandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.