Morgunblaðið - 09.11.2018, Síða 1
Vináttuganga í skólum Kópavogs fór fram í gær, á baráttu-
degi gegn einelti. Var þetta í sjötta sinn sem gangan var hald-
in í Kópavogi og var sem fyrr að finna fjölbreytta dagskrá í
skólahverfum bæjarins í tengslum við þennan viðburð.
Markmið vináttugöngunnar er, samkvæmt upplýsingum
frá Kópavogsbæ, að stuðla að jákvæðum samskiptum, vekja
athygli á mikilvægi vináttu og virðingar og benda á að einelti
sé ofbeldi sem ekki verði liðið. Á vináttugangan þannig að
efla samstöðu og vináttu barna og um leið hafa jákvæð áhrif á
skólastarfið í bænum. Þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar
að garði voru þessir hressu krakkar önnum kafnir við leik, þó
sumir þeirra hafi gefið sér tíma til að horfa í átt að linsunni.
Vinátta og kærleikur í hávegum í Kópavogi
Morgunblaðið/Eggert
F Ö S T U D A G U R 9. N Ó V E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 264. tölublað 106. árgangur
KJÖRNAR JÓLA-
GJAFIR FYRIR
VANDLÁTA
SORG,
DAUÐI OG
MYRKUR
MYNDIRNAR
FJÁRSJÓÐI
LÍKASTAR
AF AIRWAVES 38 HNÚKURINN 12JÓLAGJAFAHANDBÓK
„Það er sama
hvar drepið er nið-
ur fæti, það er eitt-
hvað að,“ sagði
Karl Gauti Hjalta-
son í umræðu um
vanda drengja á
Alþingi í gær.
Þingmenn lýstu
miklum áhyggjum
af stöðu drengja,
til að mynda vegna
brottfalls úr skólum, sjálfsvígstíðni
og nýgengi örorku. Margir voru
sammála um mikilvægi aðgengis að
sálfræðiþjónustu og þess að slík úr-
ræði væru fyrir hendi. »10
Þingmenn lýstu
þungum áhyggjum
af stöðu drengja
Karl Gauti
Hjaltason
„Þessi lagasetning markar tíma-
mót,“ segir Þuríður Harpa Sigurð-
ardóttir, formaður Öryrkjabanda-
lags Íslands, um nýju lögin um
þjónustu við fatlað fólk og reglu-
gerðirnar sem félags- og jafnrétt-
ismálaráðherra undirritaði í fyrra-
dag. Er þessu ætlað að bæta
þjónustu við fatlaða og tryggja auk-
ið eftirlit með aðbúnaði. »4
Lagasetning sögð
marka tímamót
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Eitt slys á barni eða ungmenni á ári er of mikið, um það
voru allir sammála á málstofu um atvinnuþátttöku barna.
Og það var sláandi að sjá að einungis 17 sveitarfélög af 73
sem bjóða upp á vinnuskóla hafi gert áhættumat til að
tryggja börnum og unglingum öryggi og heilbrigði á
vinnustað,“ segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna, í
samtali við Morgunblaðið. Vísar hún í máli sínu til ráð-
stefnu sem haldin var í gær, en þar kom fram að 410 börn
og ungmenni hafi slasast á vinnumarkaði árið 2016. Af
þeim voru 15 börn yngri en 14 ára.
„Rannsóknir hafa sýnt að það er fylgni milli vinnu með
námi og stoðkerfisvanda eða kvíða og mikil atvinnuþátt-
taka barna á Íslandi er sláandi. Það voru allir sammála
um nauðsyn þess að auka fræðslu um vinnuverndarmál
og að vinnuskólinn væri kjörinn til þess ásamt því að
kynna börnum réttindi og skyldur á vinnumarkaði,“ seg-
ir Salvör og bætir við að mikil vinna barna og unglinga
með námi sé eflaust í menningu okkar. Nú sé kominn tími
til þess að hætta að hugsa hvernig þetta var áður fyrr og
hugsa þess í stað hlutina upp á nýtt.
„Það er nauðsynlegt að fyrsta reynsla barna af vinnu-
markaði sé jákvæð og þar geta sveitarfélögin komið
sterkt inn með fræðslu og góðan aðbúnað,“ segir Salvör,
en hún vill aukna umræðu um þetta mál.
Áhættumat sjald-
gæft í vinnuskólum
Alls slösuðust 410 börn á íslenskum vinnumarkaði 2016
M 410 börn og ungmenni ... »11
Morgunblaðið/Frikki
Vinnuskóli Krakkar byrja oft snemma að vinna.
Um 200 einstaklingar afplána um
þessar mundir refsidóma sína í sam-
félagsþjónustu í stað þess að sitja í
fangelsi. Eru þetta fleiri en afplána
dóma í fangelsiskerfinu.
Unnt er að heimila þeim sem
dæmdir hafa verið til árs fangelsis-
refsingar eða minna að afplána dóm-
inn með samfélagsþjónustu. Það á
þó ekki við um þá sem taldir eru
hættulegir umhverfinu.
Fólkið sem sækir um og fær leyfi
til að afplána í samfélagsþjónustu
getur stundað fulla vinnu eða nám
en notar frítíma sinn til að vinna
launalaust í þágu góðra málefna, svo
sem fyrir Rauða kross Íslands, hjá
sambýlum fatlaðra eða fyrir trúfélag
sitt, svo eitthvað sé nefnt.
Páll Winkel fangelsismálastjóri
segir að samfélagsþjónustan hafi
reynst vel. Aðeins 16% þeirra sem
afplána þannig brjóti af sér á ný. »2
200 nú í
samfélags-
þjónustu
Árangursríkara að
afplána utan fangelsis