Morgunblaðið - 09.11.2018, Side 4

Morgunblaðið - 09.11.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018 Veður víða um heim 8.11., kl. 18.00 Reykjavík 6 skýjað Akureyri 4 léttskýjað Nuuk -8 heiðskírt Þórshöfn 7 léttskýjað Ósló 8 súld Kaupmannahöfn 8 þoka Stokkhólmur 7 þoka Helsinki 6 súld Lúxemborg 10 léttskýjað Brussel 10 léttskýjað Dublin 9 rigning Glasgow 10 rigning London 11 léttskýjað París 11 heiðskírt Amsterdam 10 léttskýjað Hamborg 10 léttskýjað Berlín 11 rigning Vín 12 skýjað Moskva 2 súld Algarve 18 léttskýjað Madríd 11 rigning Barcelona 17 skýjað Mallorca 19 léttskýjað Róm 19 léttskýjað Aþena 14 skýjað Winnipeg -8 snjókoma Montreal 5 alskýjað New York 9 heiðskírt Chicago 1 alskýjað Orlando 27 heiðskírt  9. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:38 16:47 ÍSAFJÖRÐUR 9:59 16:35 SIGLUFJÖRÐUR 9:42 16:18 DJÚPIVOGUR 9:11 16:12 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á laugardag Norðaustan 10-20 m/s, hvassast suð- austantil um morguninn, en á Vestfjörðum um kvöldið. Víða rigning, einkum eystra, en úrkomulítið á suðvesturhorninu. Hiti 2 til 9 stig, hlýjast syðst. Austan 8-15 m/s, en heldur hvassara syðst. Rigning sunnan- og austanlands, en þurrt að kalla norðvestantil. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast með suðurströndinni.Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, undirritaði í fyrradag sex reglugerðir um að bæta þjónustu við fatl- aða og tryggja aukið eftirlit með aðbúnaði á heim- ilum og stofnun- um sem þjóna fötluðum. Reglugerðirnar voru settar í kjöl- far laga um þjón- ustu við fatlað fólk með langvar- andi stuðnings- þarfir sem tóku gildi 1. október. Reglugerðirnar eru um biðlista, for- gangsröðun og úrræði á biðtíma eftir þjónustu; um starfsleyfi til félaga- samtaka, sjálfseignarstofnana og annarra þjónustu- og rekstraraðila sem veita þjónustu við fatlað fólk; um starfsemi og aðbúnað á skammtíma- dvalarstöðum; um búsetu fyrir börn með miklar þroska- og geðraskanir; um eftirlit og eftirfylgni vegna þjón- ustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og um breytingu á reglugerð um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, nr. 370/2016. Í frétt frá ráðuneytinu segir að markmiðið sé að fatlað fólk eigi kost á bestu þjónustu hverju sinni. „Setning reglugerðanna er við- bragð við könnunum og fréttum und- anfarinna ára þar sem alvarlegar brotalamir hafa komið í ljós varðandi aðbúnað fatlaðs fólks. Unnið hefur verið að reglugerðunum í ráðuneyt- inu um nokkra hríð og haft samráð við fjölda hagsmunaaðila sem áttu fulltrúa í nokkrum af þeim starfshóp- um sem skipaðir voru til að taka þátt í vinnunni,“ segir í fréttinni. Samtals tóku 46 utanaðkomandi fulltrúar þátt í störfum starfshópanna. Þeir komu m.a. frá Þroskahjálp, Öryrkjabanda- lagi Íslands, NPA-miðstöðinni og Átaki, félagi fólks með þroskahöml- un. Búið að lögfesta NPA „Þessi lagasetning markar tíma- mót,“ sagði Þuríður Harpa Sigurðar- dóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands, um nýju lögin um þjónustu við fatlað fólk og reglugerðirnar sem ráðherra hefur undirritað. „Það var breið fylking fatlaðs fólks sem kom að samningu laganna og reglugerða- vinnunni. Það var unnið gríðarlega vel og við erum mjög ánægð með samráðið við stjórnvöld. Við höfðum ýmislegt til málanna að leggja og á okkur var hlustað. Það náðust t.d. sterkari mannréttindasjónarmið en áður í tengslum við félagsþjónustu sveitarfélaga.“ Þuríður sagði mikilvægt að búið væri að lögfesta NPA, notendastýrða persónulega aðstoð, sem skipti fatlað fólk miklu. „Ákvæðið um samráðs- nefnd um málefni fatlaðs fólks í lög- unum sem tóku gildi 1. október er líka mikilvægt. Fatlað fólk á að skipa meirihluta í nefndinni,“ sagði Þuríð- ur. Hún sagði að af fjárlagafrum- varpinu að dæma væri engan veginn nóg fé sett í málaflokka sem lúta að fötluðu fólki. Ríki og sveitarfélög verði að tryggja nægt fjármagn til að sinna þjónustunni við fatlað fólk. Stjórnvöld séu búin að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og taki tillit til hans. Mikilvægt sé að lögfesta samn- inginn allan. Eftir það þurfi að endur- skoða lögin um þjónustu við fatlað fólk með tilliti til samningsins. Það muni auka áhersluna á lögvernduð mannréttindi fatlaðs fólks. Lögin marka tímamót fyrir fatlaða  Ráðherra undirritaði sex reglugerðir um bætta þjónustu við fatlað fólk  Víðtækt samráð var haft við samtök fatlaðs fólks í undirbúningsferlinu  Samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks bundin í lög Þuríður Harpa Sigurðardóttir Morgunblaðið/Eggert Aukin réttindi Lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðnings- þarfir tóku gildi 1. október og settar hafa verið sex reglugerðir. Fjöldi listamanna lagði SÁÁ lið í ákalli til stjórn- valda um að bjarga lífi þeirra sem eru í hættu, með þjóðarátaki til varnar sjúkrahúsinu Vogi. Meðal listamanna sem fram komu á tónleikum í Háskólabíói í gærkvöldi voru rappararnir í Geisha Cartel. Á sama tíma er hafin söfnun und- irskrifta þar sem skorað er á stjórnvöld að auka framlög til sjúkrahússins til að útrýma biðlista eftir áfengis- og vímuefnameðferð. Morgunblaðið/Hari Ákall um að bjarga lífi þeirra sem eru í hættu Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í gær íslenskan karl- mann, fæddan árið 1965, í gæsluvarðhald að kröfu lögreglu- stjórans á Suður- landi. Var krafan gerð á grundvelli almannahags- muna, en lögreglan telur uppi rök- studdan grun um að maðurinn hafi valdið eldsvoða í húsi við Kirkjuveg 18 á Selfossi hinn 31. október sl. Mun maðurinn sæta gæslu- varðhaldi allt til klukkan 16 hinn 29. nóvember næstkomandi. Kona sem einnig sætti gæsluvarðhaldi vegna sama máls var í gær í skýrslutöku hjá lögreglu. „Ekki er að vænta frekari frétta frá lögreglu af rann- sókninni að sinni,“ segir í tilkynn- ingu sem birt er á heimasíðu lög- reglunnar. Tvennt lést í eldsvoðanum á Selfossi, karlmaður og kona. Maðurinn áfram í varðhaldi Bruni Fjölmennt lið var kallað út.  Er grunaður um að hafa valdið bruna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.