Morgunblaðið - 09.11.2018, Page 6

Morgunblaðið - 09.11.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Einstök jólagjöf Barna- myndatökur  Leyft verði að framkvæma aðgerðir á einkastofum  Telja að hægt verði að ná fram sparnaði og klára biðlista eftir aðgerðum  Fólk þurfi ekki að líða kvalir Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þessi hugmyndafræðilega nálgun, að ríkið eigi að sinna öllu, kemur í veg fyrir að fólk fái meina sinna bót,“ seg- ir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Þorgerður og fleiri þingmenn Við- reisnar og Miðflokksins hafa lagt fram tillögu um breytingar á lögum um sjúkratryggingar er lýtur að kostnaði við þjónustu sem hægt hefur verið að sækja til annarra aðildar- ríkja EES-samningsins. Nái frum- varp þeirra fram að ganga verður hægt að framkvæma fjölda aðgerða á einkastofum hér. Segir í greinargerð með frumvarp- inu að alkunna sé að hér á landi hafi um árabil verið langir biðlistar eftir ýmsum aðgerðum og ekki séu horfur á að þeir styttist verulega í náinni framtíð. Af þessum sökum hafi all- margir sem sjúkratryggðir eru á Íslandi feng- ið slíkar aðgerðir framkvæmdar er- lendis á síðustu árum og kostnað- ur við þær þá ver- ið greiddur af Sjúkratrygging- um Íslands. „Sú undarlega staða er uppi að Sjúkratryggingar Íslands telja sér ekki heimilt að greiða kostn- að við sams konar aðgerð hér á landi, enda þótt hún hafi verið gerð af aðila sem uppfyllir öll lagaskilyrði til að framkvæma hana. Synjunin hefur þá verið rökstudd með þeim hætti að ekki hafi verið fyrir hendi samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og við- komandi læknis um framkvæmd slíkra aðgerða, og stofnunin hefur talið sér óheimilt að gera slíkan samning vegna afstöðu ráðherra. Þessi afstaða hefur í reynd leitt til þess að kostnaður við aðgerðirnar er miklu meiri en nauðsyn krefur því að- gerðir framkvæmdar erlendis eru mun dýrari en sams konar aðgerðir framkvæmdar utan ríkisspítalanna hér á landi.“ Þorgerður Katrín segir í samtali við Morgunblaðið að tillagan leysi vanda fjölda fólks sem sé á biðliðst- um eftir aðgerðum hér. „Við leggjum til að þeir sjálfstæðu aðilar sem upp- fylla öll skilyrði fái að gera þessar að- gerðir hér heima. Það er 150 millj- ónum varið árlega í að senda fólk út í aðgerðir og út á það fáum við 70 að- gerðir. Fyrir þá upphæð fengjum við ríflega 120 aðgerðir hér heima. Að- gerðum myndi því fjölga og við hjálp- um fólki sem bíður mánuðum og jafn- vel árum saman og þarf að líða miklar kvalir. Það þarf að horfast í augu við þennan vanda. Menn eiga ekki að fara í tafaleiki út af hug- myndafræðilegri nálgun. Við skulum taka þá umræðu þegar við erum búin að klára biðlistana.“ Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra segir að afstaða hennar muni koma fram í þinglegri meðferð málsins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Getum „klárað biðlistana“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Skurðstofa Hægt er að fjölga að- gerðum hér á landi umtalsvert. Háttvirtur þingmaður og hæstvirtur ráðherra eru ávarpsorð frá liðinni tíð sem ber að afleggja. Þau endur- spegla þjóðfélag þar sem þótti við hæfi að sýna fólki mismunandi fram- komu eftir þjóðfélagsstöðu og sam- rýmast ekki þeirri lífsskoðun að samfélagið skuli byggt á jafnrétti. Þetta er mat fimm þingmanna Samfylkingar og Pírata, þeirra Mar- grétar Tryggvadóttur, Loga Einars- sonar, Guðjóns S. Brjánssonar, Smára McCarthy og Björns Levís Gunnarssonar sem í gær lögðu fram þingsályktunartillögu um að þessi þingvenja yrði aflögð. Tillöguna rökstyðja þau m.a. með því að þingmenn og ráðherrar í ná- grannalöndunum séu ekki ávarpaðir á svo formlegan hátt. T.d. séu þeir kallaðir herra og frú á danska þinginu og þar séu ráðherrar ávarp- aðir með embættisheiti. Í Finnlandi og Noregi sé ekkert að finna í þing- skapalögum um hvernig ávarpa skuli þingmenn og ráðherra. Flutningsmenn tillögunnar segja að ávarpsorðin séu flestum almenn- um borgurum framandi og að þau séu stundum notuð til að hæðast að stjórnmálamönnum. „Notkun þeirra í ræðustól á Alþingi kann að auka enn á þá tilfinningu þeirra að stjórn- málamenn séu í litlum tengslum við raunveruleikann og að það sem fram fari í þingsal sé líkara leikriti en inni- haldsríkum umræðum,“ segir í til- lögunni. Ráðherrar og þingmenn hætti að vera hátt- og hæstvirtir  Þingmenn leggja til að ávarpsorðum á Alþingi verði breytt Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alþingi Lagt er til að konur og karl- ar á þingi hætti að vera háttvirt. Útgerð Fjordvik fer nú alfarið með björgun sementsflutn- ingaskipsins á strandstað við Helguvík, að sögn Kjartans Más Kjart- anssonar, bæjarstjóra í Reykjanesbæ, en Fjordvik situr enn fast í Helguvík eftir að hafa strandað þar aðfara- nótt laugardags. „Það er ekki lengur verið að bjarga mannslífum og við teljum að það sé búið eins og hægt er að koma í veg fyrir hættu á umhverfis- slysi vegna strandsins,“ segir Kjart- an Már við Morgunblaðið. Í yfirlýsingu sem SMT shipping, sem gerir út Fjordvik, sendi frá sér kom fram að vinna væri í fullum gangi við að koma skipinu á flot og í örugga höfn. ge@mbl.is Björgun í höndum út- gerðarinnar Slys Fjordvik sést hér á strandstað.  Mengunarslys frá Fjordvik ólíklegt „Íslenska ríkið sem og aðstandendur Hauks Hilmarssonar eiga rétt á að fá að vita afdrif Hauks. Einhver hlýtur að vita það,“ sagði Margrét Tryggva- dóttir, þingmaður Samfylkingar- innar, í óundirbúnum fyrirspurnar- tíma á Alþingi í gær. Spurði hún hvort íslensk stjórnvöld hefðu spurt tyrknesk stjórnvöld með beinum hætti um afdrif Hauks Hilm- arssonar, sem talinn er hafa fallið í Afrin-héraði í Sýrlandi í ársbyrjun, og hvort utanríkisráðherra hefði krafið tyrknesk stjórnvöld svara. Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík- isráðherra kom til svara og sagði allra leiða hafa verið leitað til að kom- ast að afdrifum Hauks. Íslensk stjórnvöld hefðu ítrekað spurst fyrir um þau og fengið þau svör að Haukur væri talinn af. Hann sagði þætti borg- araþjónustunnar í málinu lokið og að ráðuneytið réði borgurum eindregið frá því að ferðast á þessum slóðum. „Það er óviðunandi að það sé ekki hægt að komast að hinu sanna í mál- inu,“ sagði Margrét. „Ég hef gert allt það sem í mínu valdi stendur til að hjálpa til í þessu máli,“ svaraði Guð- laugur Þór. „Ef það er eitthvað frek- ar sem við getum gert til að aðstoða í þessu erfiða máli munum við auðvitað gera það.“ Hef gert allt sem í mínu valdi stendur Hlýindin að undanförnu hafa kallað á meiri úti- vist. Þessir ungu drengir voru í boltaleik á Ing- ólfstorgi þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þarna leið um. Þeir sýndu góða takta og aldrei að vita nema þarna séu framtíðarlandsliðsmenn á ferðinni. Fótboltafimi á fallegum vetrardegi Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.