Morgunblaðið - 09.11.2018, Page 10

Morgunblaðið - 09.11.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018 www.skoda.is KODIAQ OG KAROQ. FYRIR FÓLKIÐ ÞITT OG NÁTTÚRUNA. Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Hvort sem þú velur margverðlaunaðan KODIAQ eða glænýjan og snjallan KAROQ gerir þú hvort tveggja. Komdu og prófaðu jeppabræðurna frá ŠKODA. Hlökkum til að sjá þig! HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum ENDURNÝJAÐU TENGSLIN MEÐ KODIAQ OG KAROQ. 4.690.000 kr.5.790.000 kr. SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Getur verið að unga drengi vanti hlut- verk í lífinu? Af hverju er tíðni sjálfs- víga meðal þeirra svo há sem raun ber vitni? Er kynvitund drengja bjöguð vegna áhrifa klámvæðingarinnar? Hvað er hægt að gera til að þeir finni sig betur innan skólakerfisins og hverfi síður frá námi? Þurfa ungir drengir betri aðgang að sálfræðing- um? Þarf að grípa fyrr inn í? Þetta eru spurningar sem varpað var fram í sérstakri umræðu um vanda drengja á Alþingi í gærmorgun. Málshefjandi var Karl Gauti Hjalta- son, varaformaður þingflokks Flokks fólksins, en til andsvara var Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Fjöldi þingmanna tók til máls og virtust flestir sammála um að úrbóta væri þörf, þótt þeir hafi ekki endilega verið samstiga í því hvaða málefni væru mikilvægust eða hvaða leiðir ætti að fara. Margir nefndu þó að bæta þyrfti aðgang að sálfræðiþjónustu fyrir ungt fólk, að úrræði þyrftu að vera fyrir hendi fyrir þá sem væru í vanda staddir. Karl Gauti hóf mál sitt á að vísa til ljóðs Gríms Thomsen, Á fætur, því þörf væri á því að rísa á fætur til hjálp- ar drengjum í vanda. Því næst tæpti hann á ýmsum vanda er hann taldi steðja að drengjum á Íslandi í dag. Meðal þess sem Karl Gauti nefndi er há tíðni sjálfsvíga, geigvænlegur lestrarvandi, að brottfall úr skólum sé meira en hjá stúlkum, nýgengi örorku sé hærra meðal drengja og lyfjanotk- un meiri. Þá nefndi hann að hlutfall karlkyns kennara færi sífellt minnk- andi og fáir karlar hefðu einir forsjá yfir börnum sínum. Algengast væri að foreldrar hefðu sameiginlega forsjá en í þeim tilfellum þar sem bara annað foreldri hefði forsjá væri hlutfallið einn faðir á móti 58 mæðrum. „Það er sama hvar drepið er niður fæti, það er eitthvað að,“ sagði Karl Gauti. Velti hann í kjölfarið fyrir sér ástæðum þess að samfélagið missti unga menn í aðgerðaleysi, örorku, af- brot og jafnvel sjálfsvíg. „Hvað er að? Skortir þá föður- ímynd? Feður eru oft fjarverandi og kennarar langoftast kvenkyns. For- eldrar hafa ekki tíma og börnin eru kannski áhorfendur að lífi foreldr- anna,“ sagði Karl Gauti. Hann velti því einnig upp hvort oft á tíðum neikvæð og harkaleg umræða um karlmenn hefði áhrif á sjálfsmynd ungra drengja, hvort drengi vantaði hlutverk í lífið, hvort kynvitund drengja væri bjöguð vegna áhrifa klámvæðingarinnar og hvað mætti gera til að drengir fyndu sig betur í skólakerfinu. Sálfræðiþjónusta mikilvæg Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra sagði að mikilvægt væri að Um- boðsmaður barna fengi aukið hlutverk við að afla gagna um stöðu drengja og stúlkna. Það væri nauðsynlegt til að geta tekið réttar ákvarðanir í málum sem sneru að ungmennum. Katrín kvaðst deila áhyggjum Karls Gauta vegna fjölda þeirra sem fengju lyfjum ávísað. Hún sagði að Landlæknisembættið hefði tekið þessi mál til sérstakrar skoðunar. „Við þurfum að huga að kynjavinklinum þar en ekki síður stéttavinklinum. Eru þetta drengir úr krefjandi félagsleg- um aðstæðum?“ sagði forsætisráð- herra. Þá sagði hún að rannsóknir sýndu að karlmenn og drengir leituðu frekar eftir aðstoð í heilbrigðiskerfinu með aðstoð tækninnar. Þeir veigruðu sér við að mæta á staðinn. „Við þurfum að skoða möguleika sem þar eru,“ sagði Katrín sem nefndi jafnframt að tölvu- notkun væri ólík milli kynja. Stúlkur væru duglegri við notkun samfélags- miðla en tölvuleikir væru vinsælli hjá drengjum. Það þyrfti að hafa í huga við mótun stefnu í þessum málum. Hún vísaði einnig til þess að brott- fall úr skólum virtist ekki síst ráðast af félagslegum og sálfræðiaðstæðum. Því væri aðgangur að sálfræðiþjón- ustu mikilvægur. „Grípum fyrr inn í“ Páll Magnússon, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, nefndi einn anga vand- ans sem hann taldi mikilvægan en auðvelt væri að laga. Sá vandi sneri að kerfinu sjálfu og væri ekki bara vandi drengja, þótt þeir væru í miklum meirihluta. „Það er þessi þrýstingur á ungt fólk í skólum, grunn- og framhaldsskólum, fólk sem er enn á barnsaldri í skilningi laganna, að fá greiningu. Því það standa engin úrræði til boða fyrir þau sem eru í vanda, enginn stuðningur, sálfræðiaðstoð, fyrr en greiningin, stimplunin, er komin. Fyrr er ekkert gert. Þú ert kvíðinn, ofvirkur og þarft að fá greiningu sem slíkur, pillurnar, svo færðu aðstoðina. Þetta brýtur sjálfs- myndina, að stimplunin skuli vera komin,“ segir Páll sem telur að um- rætt fólk sé líklegra til að fara á ör- orkubætur en aðrir. „Breytum þessu. Grípum fyrr inn í. Gefum því aðgang að sálfræðingum áður en það fær stimplun.“ Sigurður Páll Jónsson, Miðflokkn- um, lýsti áhyggjum af tíðni sjálfsvíga hjá ungum mönnum. „Það eru alltof margir ungir menn sem sitja í fang- elsum landsins. Getur verið að við höf- um gleymt drengjunum okkar? Við verðum að skoða hvað veldur brott- falli og tryggja fé í unglingageðdeildir og meðferðir fyrir ungt fólk.“ Píratinn Helgi Hrafn Gunnarsson sagði það rétt sem fram hefði komið að tölvunotkun og tölvuleikir gætu verið hluti af skýringunni af hverju ungir drengir villtust af leið. Ekki væri hins vegar sama um hvaða tölvu- leiki væri að ræða. „Það eru líka til tölvuleikir sem fræða. Ég nefni Kerbal Space Pro- gram. Það er hægt að nýta tæknina til að þroska og hjálpa fólki.“ Er afreksstefna í íþróttum ungmenna til góðs? Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, VG, kvaðst fagna umræðu um aukið að- gengi að sálfræðingum. Eins taldi hún máli skipta að skólar byðu upp á náms- og starfsráðgjöf. Margrét Tryggvadóttir, Samfylk- ingu, sagði að pressa væri á ungmenn- um vegna tilbúinnar gerviveraldar samfélagsmiðla. Hún velti því jafnframt upp hvort sú afreksstefna sem rekin væri í mörgum íþróttagreinum væri til góðs. Talaði Margrét um að ungir drengir ætluðu sér að verða atvinnumenn í fótbolta en þegar í ljós kæmi að það yrði ekki, á viðkvæmum aldri, væri kannski ekki mikið eftir. Gripið verði fyrr inn í vandann  Umræða um vanda drengja á Alþingi  Þingmenn spurðu hvort drengir hefðu gleymst í samfélaginu  Skortur á sálfræðiþjónustu  Lýsa áhyggjum af brottfalli úr skólum, tíðni sjálfsvíga og ávísun lyfja Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Málshefjandi Karl Gauti Hjaltason, þingmaður úr Flokki fólksins. Morgunblaðið/Hari Í vanda Fjöldi ungmenna glímir við vandamál er krefjast úrlausna. Þingmenn ræddu vanda ungra drengja í gær. Brynjar Níelsson Sjálfstæðisflokki sagði að nauðsyn- legt væri að viðurkenna það að drengir og stúlkur væru ólík frá náttúrunnar hendi, með örfáum undan- tekningum þó. Hann sagði að lausatök einkenndu umönnun og uppeldi, aga skorti. „Við megum ekki bara tala um réttindi barna, við þurfum að tala um ábyrgð.“ Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, sagði það aftur á móti ekki nýtt að drengir sýndu af sér meiri áhættuhegðun en stúlkur. Í gerbreyttum heimi ætti að hans mati að leggja upp úr því að fræða unga menn um jafn- réttisumræðu nútímans. Hann vill jafnframt að úrræði verði fyrir hendi til að grípa fyrr inn í gegn vanlíðan barna í skólakerfinu. „Þurfum að tala um ábyrgð“ BRYNJAR NÍELSSON SEGIR AGA SKORTA Í SAMFÉLAGINU Brynjar Níelsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.