Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
Ath
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a
595 1000
Frá kr.
95.995
NÝJA ÍSLENDINGA HÓTELIÐ KOMIÐ Í SÖLU
eið
ré
ttin
ga
ás
lík
u.
Ath
.a
ðv
er
ðg
e Castle Harbour
j
g Tenerife
Frá kr.
79.995
etu
rb
re
yst
án
fyr
irv
ar
a. 14. janúar í 7 nætur
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
hlutina eins vel og hægt er í svona
prentun. Við erum á pari við það
besta sem gerist í heiminum og get-
um tryggt auglýsendum og les-
endum gæði sem þeir eiga alltaf að
geta treyst. Þetta þýðir líka að við
verðum stöðugt að vanda okkur til
að standa undir nafni. Það er aldrei
lát á því aðhaldi sem við fáum frá
WAN-IFRA. Með þessu fyrir-
komulagi er tryggt að prentgæðin
séu stöðug og eins alla daga. Við
stefnum að því að vera áfram í
fremstu röð,“ sagði Guðbrandur
Magnússon, framkvæmdastjóri
Landsprents. gudni@mbl.is
henti Guðbrandi Magnússyni, fram-
kvæmdastjóra Landsprents, viður-
kenningarskjöl og verðlaunagrip af
þessu tilefni í gær.
Landsprent tók fyrr á árinu þátt í
keppninni „International Color Qua-
lity Club“ og náði þar mjög góðum
árangri. Keppnin byggist á því að
prentunin er skoðuð og mæld yfir
langt tímabil. Aftarlega í blaðinu er
daglega prentaður lítill reitur með
mislitum punktum og eru gæði
prentunarinnar mæld eftir þeim. En
hvað þýðir þessi árangur fyrir
Landsprent?
„Hann þýðir að við erum að gera
Alþjóðleg samtök blaðaútgefenda,
WAN-IFRA, hafa útnefnt Lands-
prent, prentsmiðju Morgunblaðsins,
í svokallaðan Stjörnuklúbb („Star
Club“) bestu blaðaprentsmiðja
heims. Þar eru fyrir einungis 48
prentsmiðjur víðs vegar um heim. Í
stjörnuhópinn komast aðeins þær
prentsmiðjur sem hafa sannað stöð-
ug gæði í prentun með því að ná góð-
um árangri í alþjóðlegri gæða-
samkeppni WAN-IFRA um langt
árabil, líkt og Landsprent hefur
gert.
Manfred Werfel, aðstoðarforstjóri
WAN-IFRA, kom til Íslands og af-
Verðlaun Manfred Werfel, aðstoðarforstjóri WAN-IFRA, afhenti Guðbrandi Magnússyni, framkvæmdastjóra
Landsprents, viðurkenningarskjöl og verðlaunagrip í tilefni þess að Landsprent var útnefnt í stjörnuhóp bestu
blaðaprentsmiðja heims. Á myndinni eru f.v. Ólafur Brynjólfsson, fv. gæðastjóri Morgunblaðsins, Guðbrandur
Magnússon, Manfred Werfel og Gylfi Guðjónsson, verkstjóri í Landsprenti.
Landsprent í Stjörnu-
klúbbi prentsmiðja
Verðlaun í alþjóðlegri gæðasamkeppni blaðaútgefenda
Nítján skipverjum á Helgu Maríu
AK, ísfisktogara HB Granda, sem
gerður er út frá Akranesi, hefur
verið sagt upp. Ástæðan er óvissa
um hvað gera skuli við skipið, en
síðustu tvö ár hefur HB Grandi tek-
ið við þremur nýjum ísfisktogurum.
Ægir Páll Friðbertsson, fram-
kvæmdastjóri HB Granda, sagði að
um væri að ræða þá skipverja sem
nytu þriggja mánaða uppsagnar-
frests samkvæmt kjarasamningi.
Fimmtán eru í áhöfn hverju sinni
og sagði Ægir að 21 maður hefði
verið ráðinn á skipið með afleys-
ingamönnum. „Þetta eru samtals
nítján sem fengu uppsagnarbréf,“
sagði Ægir. Uppsagnarbréfin bár-
ust skipverjum í síðustu viku.
Helga María AK er enn gerð út.
Verði útgerð hennar hætt verður
leitast við að bjóða skipverjum
pláss á öðrum skipum útgerðar-
innar, að sögn Ægis.
Fjórum starfsmönnum í bræðslu
HB Granda á Akranesi var sagt upp
fyrir síðustu mánaðamót. Skömmu
áður var ellefu starfsmönnum fyrir-
tækisins á Vopnafirði sagt upp. Um
18 mánuðir eru síðan HB Grandi
sagði upp 86 starfsmönnum í fisk-
vinnslu á Akranesi. sh@mbl.is
Nítján sagt upp á
Helgu Maríu AK
Óvíst hvað gert verður við skipið
Meirihluti fjárlaganefndar leggur
til nokkrar breytingar á heimildum
til fjármála- og efnahagsráðherra í
fjárlagafrumvarpinu. Breytinga-
tillagan var birt á vef Alþingis í
gærkvöld.
Varðandi sölu húsnæðis er lagt
til að bæta við heimild til að selja
eignarhlut ríkisins í fasteign á Hall-
dórsstöðum í Laxárdal. Hvað varð-
ar sölu lóða og jarða er lagt til að
heimila sölu á lóð í eigu ríkisins við
Þjórsárgötu og Þorragötu í Reykja-
vík og eignarhlut ríkisins í lóð við
Austurveg 4 á Selfossi.
Varðandi kaup á fasteignum er
lagt til að gengið verði til samninga
um kaup ríkisins á „Villa Nova“ við
Aðalgötu 23 á Sauðárkróki. Einnig
að keypt verði viðbótaraðstaða fyr-
ir starfsemi safnsins á Gljúfrasteini
í Mosfellsbæ.
Þá er lagt til að heimilað verði að
þiggja að gjöf fasteignir á Litlabæ í
Skötufirði, Hraunskirkju í Keldu-
dal og Þverárkirkju í Laxárdal til
varðveislu í húsasafni Þjóðminja-
safns Íslands. Einnig að ganga til
samninga um kaup á réttindum að
Íslenskri orðabók og eftir atvikum
sambærilegum orðabókum og fela
stofnun Árna Magnússonar að
miðla þeim rafrænt í opnum að-
gangi. gudni@mbl.is
Vilja heimila
kaup á
„Villa Nova“
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
LBI ehf. hefur fellt niður skaðabóta-
mál sem höfðuð voru á hendur
bankaráðsmönnum gamla Lands-
bankans en heldur áfram málum
gegn báðum fyrrverandi bankastjór-
um gamla Landsbankans og einum
fyrrverandi forstöðumanni hjá bank-
anum. Jafnframt hefur LBI ehf. náð
samkomulagi um uppgjör ábyrgða
við 24 af þeim 26 tryggingafélögum
sem það stefndi til skaðabóta og fall-
ið frá málum á hendur þeim. Þessar
tvær ákvarðanir eru sagðar ótengd-
ar.
Aðalmeðferð stendur yfir
LBI ehf. er í eigu kröfuhafa gamla
Landsbankans. Það stefndi þremur
fyrrverandi yfirmönnum gamla
Landsbankans, fjórum bankaráðs-
mönnum og fjölda erlendra trygg-
ingafélaga á árunum 2011 og 2012,
meðal annars vegna gáleysis sem
leiddi til þess að greiddir voru veru-
legir fjármunir út úr Landsbanka Ís-
lands hinn 6. október 2008 þegar fyr-
ir lá að bankinn var ógjaldfær, eins
og fram kom í einni stefnunni. Nema
skaðabótakröfurnar tugum milljarða
króna. Þetta var síðasti dagurinn áð-
ur en Fjármálaeftirlitið tók yfir
rekstur bankans.
Síðan hefur málið, raunar í þrem-
ur hlutum, verið rekið fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur. Aðalmeðferð hef-
ur staðið frá því 29. október, nú með
skýrslutökum, og lýkur samkvæmt
dagskrá með málflutningi undir lok
mánaðarins.
Bankaráðsmenn úr málinu
LBI ehf. (áður slitastjórn Lands-
banka Íslands hf.) gerði kröfu um
skaðabætur á hendur bankaráðs-
mönnunum fyrrverandi Andra
Sveinssyni, Kjartani Gunnarssyni,
Svöfu Grönfeldt og Þorgeiri Bald-
urssyni. Eftir breytingar stefnanda
á málinu sem tilkynntar voru í fyrra-
dag eru þau ekki lengur aðilar að
því. Björgólfur Guðmundsson, fyrr-
verandi formaður bankaráðsins, var
ekki sóttur til greiðslu bóta þar sem
hann var talinn ógjaldfær.
Enn eru uppi skaðabótakröfur á
hendur bankastjórunum fyrrver-
andi Sigurjóni Þ. Árnasyni og Hall-
dóri J. Kristjánssyni, og Jóni Þor-
steini Oddleifssyni, fyrrverandi
forstöðumanni fjárstýringar bank-
ans.
Þá eru uppi kröfur á hendur þeim
tveimur tryggingafélögum sem ekki
hefur verið samið við, QBE Int. In-
surance Ltd og QBE Ltd. Plant.
Place.
Efnið er trúnaðarmál
Efni samkomulagsins við trygg-
ingafélögin 24 er sagt trúnaðarmál, í
tilkynningu sem LBI ehf. hefur birt.
Það tekur til nærri helmings
ábyrgðartrygginga yfirmanna bank-
ans og bankaráðsmanna sem málið
var upphaflega höfðað gegn. Tekið
er fram að féð sem fæst með um-
ræddu samkomulagi verði ráðstafað
í næstu greiðsluáætlun LBI ehf.
Stjórnendur og lögmenn LBI ehf.
tjá sig ekki um málið en vísa til til-
kynningar sinnar.
Mál bankaráðs felld niður
LBI ehf. hefur náð samkomulagi við hluta tryggingafélaga vegna ábyrgða
stjórnenda gamla Landsbankans Enn krafist skaðabóta af bankastjórum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsbankinn Slitastjórn gamla Landsbankans hefur verið í málaferlum
gegn stjórnendum bankans. Mál bankaráðsins hafa verið felld niður.