Morgunblaðið - 15.11.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
Haugur af útivistarfatnaði og öðr-
um óskilamunum úr skálum Ferða-
félags Íslands berst á hverju hausti
á skrifstofu félagsins. Væntanlega
hafa bæði erlendir og innlendir
ferðamenn saknað búnaðar í ferða-
lok, í sumum tilvikum jafnvel lítt
notaðs og dýrs fatnaðar.
Stefán Jökull Jakobsson, umsjón-
armaður skála Ferðafélagsins,
heldur utan um óskilamunina, en
eftir 1. desember verður ósóttum
munum komið til hjálparstofnana.
Eins og sjá má á myndinni kennir
þarna margra grasa, en hæpið er
að regnhlífin hafi dugað lengi í
lægðagangi og linnulítilli úrkomu
sumarsins á suðurhluta landsins.
Ferðafélag Íslands á og rekur
sjálft sextán skála á hálendinu, á
Ströndum og Hornströndum. Mikil
umferð hefur síðustu sumur verið
um Laugaveginn, en þar rekur
Ferðafélagið skála í Landmanna-
laugum, Hrafntinnuskeri, Álfta-
veri, Emstrum og Þórsmörk. Á veg-
um FÍ er áætlað að um tólf þúsund
manns hafi farið Laugaveginn í
sumar.
Hluti af farangri ferðamanna verður eftir í skálum Ferðafélagsins
Haugur af
óskilamun-
um af fjöllum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er farið líta á margt sem eðli-
legt í tengslum við þessa auknu
neyslu og tilefni til að hafa ákveðnar
áhyggjur,“ segir Karl Steinar Vals-
son yfirlögregluþjónn.
Fréttir af aukinni hörku hand-
rukkara í fíkniefnaheiminum og
fjölgun dauðsfalla meðal ungs fólks í
neyslu hafa vakið athygli síðustu
daga. Morgunblaðið greindi frá því í
gær að það sem af væri ári hefðu
fleiri látist í aldurshópnum undir 39
ára heldur en allt árið í fyrra.
Dauðsföllum í þessum aldurshópi
meðal fólks sem komið hefur í með-
ferð hjá SÁÁ hefur fjölgað hratt síð-
ustu þrjú ár.
Karl Steinar segir í samtali við
Morgunblaðið að í tölum lögregl-
unnar sjáist ekki merki um sérstaka
fjölgun sjálfsvíga. „Við höfum ekki
séð núna aukningu í tölum hjá okk-
ur, þetta er af svipuðum toga og
verið hefur. Við sjáum heldur ekki
þessi kveðjubréf vegna ótta við
skuldir við handrukkara. Þessi
veruleiki kemur ekki til okkar. Það
kann hins vegar að vera að þessi
mál skili sér ekki til okkar, við get-
um ekki útilokað það,“ segir hann
en ítrekar að lögreglan fylgist vel
með áhættuþáttum og hvaða þróun
sé í gangi.
Karl Steinar segir hins vegar að
ástæða sé til að vera á varðbergi
hvað varðar þróun fíkniefnaneyslu
hér á landi. „Undanfarið hefur verið
aukning á aðgengi að lyfjum til
dæmis. Þróunin í Bandaríkjunum
hefur verið að samhliða því er skref-
ið tekið yfir í heróín meðal annars.
Það er eitthvað sem við höfum ekki
séð en aðrar Evrópuþjóðir telja
áhyggjuefni og maður hlýtur að
spyrja sig hvort ástæða sé fyrir
okkur að hafa áhyggjur af. Hingað
til höfum við ekki talið að ástæða sé
til að hafa áhyggjur af heróínneyslu,
enda hefur umhverfið ekki verið til
staðar og ekki verið kominn neyt-
endahópur. En þegar kominn er
svona hópur eins og við sjáum í dag
þá er í raun verið að búa til þennan
grunn. Við höfum því áhyggjur og
deilum nú áhyggjum annarra Evr-
ópuþjóða í því. Það eru merki um
stóraukna heróínframleiðslu í Afg-
anistan og fleiri löndum sem hafa
sérhæft sig í því. Við stöndum að ég
held frammi fyrir talsverðum áskor-
unum á þessu sviði.“
Karl Steinar játar því aðspurður
að vinnuumhverfi lögreglunnar hafi
breyst með auknum fíkniefnavanda
hér. „Já. Við höfum verið að breyta
og aðlaga skipulag okkar og við-
brögð í takt við það svo við getum
brugðist rétt við. Við erum í góðu
samtali við stjórnvöld um það sem
við teljum að þurfi að gera. Mér
finnst viðhorf stjórnvalda jákvæð-
ara en áður. Þar er hlustað á fagleg
rök með skilvirkari hætti en áður
var.“
Vigfús kemur fyrir þingnefnd
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu á þriðjudag lýsti Ásmundur
Friðriksson alþingismaður áhuga á
því að sr. Vigfús Bjarni Albertsson
yrði fenginn til að koma á fund vel-
ferðarnefndar Alþingis í kjölfar við-
tals við hann í blaðinu. Þar lýsti
Vigfús frásögnum af skefjalausri
hörku sem handrukkarar beita í
fíkniefnaheiminum. Að sögn Hall-
dóru Mogensen, formanns velferð-
arnefndar, barst beiðni Ásmundar
þessa efnis fyrst í gærmorgun.
„Mér heyrist á nefndarmönnum að
það sé áhugi fyrir því að taka þetta
mál upp í nefndinni og mun ég finna
tíma á næstu vikum,“ segir Hall-
dóra.
Hafa áhyggjur af heróínneyslu hér
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lögregla Tilefni er til að hafa áhyggjur af fíkniefnaneyslu hér á landi.
Yfirlögregluþjónn segir að þróunin í fíkniefnaheiminum gefi tilefni til að hafa áhyggjur af innreið
heróíns Stóraukin framleiðsla í Afganistan og víðar Laga skipulag lögreglu að breyttu umhverfi
Sala á jólabjór hefst í Vínbúðunum í
dag, 15. nóvember.
Alls er 61 tegund af jólabjór í
boði að þessu sinni og hefur úrvalið
aldrei verið meira. Vert er að geta
þess að úrvalið er misjafnt eftir
verslunum.
Hægt er að fá ágæta yfirsýn yfir
úrvalið á vefsíðu Vínbúðanna og
þar er líka hægt að leggja inn sér-
pöntun, vilji áhugasamir vera
öruggir um að ná að smakka
ákveðnar tegundir. Vinsælasti jóla-
bjórinn hefur verið hinn danski Tu-
borg en jólabjór minni framleið-
enda nýtur þó sífellt meiri
vinsælda.
Í fyrra seldust 757 þúsund lítrar
af jólabjór í Vínbúðunum og hefur
salan aukist jafnt og þétt síðustu ár.
Er þá ótalið það sem selst á börum
og veitingastöðum eða í Fíhöfninni
í Leifsstöð. hdm@mbl.is
Jólabjórinn í sölu hjá
Vínbúðum í dag
Morgunblaðið/Ómar
Vínbúðir Jólabjórinn kemur í dag.