Morgunblaðið - 15.11.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
Sigurgeir B. Kristgeirsson, fram-kvæmdastjóri Vinnslustöðv-
arinnar, lýsir á vef fyrirtækisins at-
burðarás sem hann telur að geti
ekki verið tilviljun. Greinilegir
þræðir hafi legið á milli Seðlabank-
ans, ríkisstjórnarinnar og Kastljóss
Rúv. „Megna pólitíska myglulykt
lagði af þessu samráðsferli þá og
leggur enn,“ sagði Sigurgeir og
rakti atburðarásina:
26.mars 2012: Steingrímur J.lagði fram á Alþingi frum-
vörp Jóhönnustjórnarinnar um
stjórn fiskveiða og veiðigjöld.
27. mars 2012: Húsleit Seðla-
bankans hjá Samherja fyrir norðan
og sunnan. [Og Rúv. tilbúið fyr-
irfram með myndavélarnar.]
27. mars 2012: Þrælundirbúinn
Kastljósþáttur um meinta undir-
verðlagningu Samherja (augljós-
lega farið að undirbúa þáttaseríuna
löngu fyrir húsleitina).
28. mars 2012: Framhalds-
Kastljós um sama mál.
29. mars 2012: Kastljós III um
sama mál, Þorsteinn Már Baldvins-
son í „yfirheyrslu“. Í inngangi var
sagt m.a.: „Allur útflutningur Sam-
herja er til rannsóknar!“
2. apríl 2012: Vinnslustöðin tekin
fyrir í seríu Kastljóss um verðlagn-
ingarmál. Forráðamönnum Hugins
í Eyjum gerðar upp skoðanir.“
Í tíð vinstristjórnarinnar var rík-ur vilji til að veitast að sjávar-
útveginum. Atlögunni sem fram fór
í réttarkerfinu hefur verið hrundið.
Eftir stendur óútskýrður þátturRíkisútvarpsins sem spilaði
með í aðförinni. Hvenær ætli Rúv.
geri grein fyrir honum? Eða biðjist
afsökunar?
Aðförin að
sjávarútveginum
STAKSTEINAR
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Nettoline fær 5 stjörnur frá
dönskum gagnrýnendum
ÚRVAL INNRÉTTINGAVIð höNNum oG TeIkNum STuRTuTÆkI SpeGLAR oG LjóS
styrkur - ending - gæði
BAðheRBeRGISINNRÉTTINGAR
hÁGÆðA DANSkAR
opIð:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Laugardagar kl. 11 til 15
Við gerum þér
hagstætt tilboð, bæði í
innréttingu, spegla, vaska
og blöndunartæki
BLöNDuNARTÆkI
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Samþykkt var á fundi efnahags- og
viðskiptanefndar Alþingis í gær
frumvarp um breytingar á lögum um
vörugjald af ökutækjum, eldsneyti,
bifreiðagjald og virðisaukaskatt með
það að markmiði að koma í veg fyrir
að ósamræmi skapist við álagningu
skatta og gjalda á ökutæki sem að
óbreyttu hefðu komið til fram-
kvæmda 1. janúar næstkomandi.
„Helstu breytingar eru þær að
lagðar eru til breytingar á viðmiðum
koltvísýringslosunar við álagningu
vörugjalds á ökutæki og bifreiða-
gjalds auk þess sem gert er ráð fyrir
að skilgreining sendibifreiðar verði
lagfærð, vörugjaldi af tilteknum öku-
tækjum til vöruflutninga verði
breytt, vörugjald af golfbifreiðum
verði samræmt markmiðum um
orkuskipti og að gerðar verði breyt-
ingar í því skyni að treysta hagsmuni
ríkissjóðs við veitingu ívilnana,“ seg-
ir í tilkynningu sem Bílgreinasam-
bandið sendi frá sér vegna málsins.
Breytingarnar sagðar góðar
Að mati Bílgreinasambandsins
eru breytingarnar jákvæðar fyrir
þróun bílgreinarinnar og afkomu
ríkissjóðs „enda nema tekjur ríkisins
af vörugjöldum og virðisaukaskatti
af nýjum bílum milljörðum króna á
ári hverju. Um leið eru breytingarn-
ar jákvæðar í umhverfislegu tilliti.“
María Jóna Magnúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Bílgreinasambands-
ins, fagnar niðurstöðu nefndarinnar
og gerir ráð fyrir að málið fari nú til
þriðju umræðu á Alþingi og atkvæði
verði greidd á næstu dögum.
„Við gerum fastlega ráð fyrir að
frumvarpið fari óbreytt í gegn enda
eru miklir hagsmunir í húfi. Verði
mótvægisaðgerðirnar sem frum-
varpið felur í sér að veruleika munu
nýir bílar því aftur lækka í verði þar
sem áhrif af breyttum mæliaðferð-
um munu í flestum tilvikum jafnast
út,“ segir María Jóna.
Breytingar sam-
þykktar í nefnd
Nýir bílar lækka að líkindum aftur
Morgunblaðið/Hari
Teppa Umferð í Reykjavík er ósjald-
an þung og fara menn þá hægt yfir.
Matreiðslumeistarar frá Michelin-veitingastaðn-
um Kadeau í Kaupmannahöfn verða gestir á
minnsta veitingastað landsins um helgina, ÓX,
sem er inn af Sumac Grill & Drinks á Laugavegi
28. Verða þeir með svonefnt PopUp þar sem gest-
ir fá að bragða á nokkrum réttum þessa vinsæla
veitingastaðar í Kaupmannahöfn.
Kadeau skartar tveimur Michelin-stjörnum og
hefur skipað sér í hóp mest spennandi veitinga-
staða Kaupmannahafnar, segir Þráinn Freyr Vig-
fússon, matreiðslumeistari á Sumac og ÓX.
„Matreiðslumeistarar Kadeau eru þekktir fyrir
að rækta mestallt sitt grænmeti og jurtir sjálfir á
eyjunni Bornholm,“ segir Þráinn Freyr en Ka-
deau og ÓX hafa útbúið 15 rétta matseðil fyrir
gesti ÓX á föstudags- og laugardagskvöld.
Aðeins 11 sæti eru á ÓX. Þráinn Freyr segir
viðtökurnar hafa verið frábærar síðan opnað var í
apríl á þessu ári. Hann hafði lengi átt þann draum
að opna svona stað hér á landi en innréttingarnar í
eldhúsið fékk hann úr eldhúsi ömmu sinnar og afa
á bænum Hlíðarholti í Staðarsveit.
Fullbókað er á ÓX um helgina en hægt er að
skrá sig á biðlista á vefnum https://ox.restaurant.
Michelin-kokkar mæta á ÓX
Kokkar frá Kadeau í Kaupmannahöfn elda á minnsta veitingastað landsins
Veitingastaður ÓX er sá minnsti á landinu.