Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Nanso
FYRIR VINNUNA-
ODDFELLOW-VEISLURNAR
OG HÁTÍÐIRNAR
NÝ BASIC lína - passar allt saman - krumpufrítt
SKOÐIÐ LAXDAL.IS
B E R N H A R Ð
L A X D A L
Laugavegi 63 • S: 551 4422
3 snið jakkar
stutt pils
kjólar - buxur
Extra síð pils.
Skipholt 29b
Við erum á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Buxnaleggings
kr. 6.900
Str. S-XXL
Jakki
kr. 8.900
Litur: svart, drappað
kr. 6.900
Litur: svart, dökkblátt
Toppur
Smart föt, fyrir smart konur
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
20%afsláttur
af öllum úlpum
Dúnúlpa
Kr. 36.980
Kr. 29.584
Eldhestar í Ölfusi
Í frétt á bls. 2 í blaðinu í gær um
lagningu nýs kafla á Suðurlandsvegi
er ranglega sagt að hann liggi fram
hjá Íshestum. Fyrirtækið sem rekur
hestaleigu og hótel í Ölfusinu heitir
Eldhestar. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
LEIÐRÉTT
Lögreglan á höf-
uðborgarsvæð-
inu hefur frá 1.
október sl. feng-
ið tilkynningar
um innbrot í
rúmlega 100
ökutæki. Um það
bil helmingur
þessara innbrota
átti sér stað í miðborginni.
Lögreglan vill brýna fyrir eig-
endum og umráðamönnum að
ganga tryggilega frá ökutækjum
sínum og geyma engin verðmæti í
þeim, segir í tilkynningu frá lög-
reglunni. Einnig sé gott að huga að
því að leggja bifreiðum í stæði sem
séu með góðri lýsingu sé möguleiki
á því. „Ökutæki sem lagt er í
myrkri eru auðveldari bráð fyrir
þjófa,“ segir lögreglan.
Innbrot í 100 bíla
á sex vikum
Allt um sjávarútveg Bílar
Erlingur Sigurðarson,
skáld og fv. kennari,
lést á Sjúkrahúsinu á
Akureyri 12. nóvember
sl., sjötugur að aldri.
Erlingur fæddist á
Grænavatni í Mývatns-
sveit 26. júní 1948, son-
ur hjónanna Sigurðar
Þórissonar, bónda og
oddvita, og Þorgerðar
Benediktsdóttur, kenn-
ara og húsfreyju.
Erlingur varð stúd-
ent frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1969.
Hann lauk BA-prófi í íslensku og
sögu frá HÍ 1976, cand. mag.-prófi
frá sama skóla 1987 og prófi í upp-
eldis- og kennslufræði 1981. Hann
stundaði einnig nám við Colby
College í Maine í Bandaríkjunum og
háskólann í Tübingen í Þýskalandi.
Erlingur var kennari
við Menntaskólann á
Akureyri 1978-97 og
forstöðumaður Sig-
urhæða – Húss skálds-
ins á Akureyri 1997-
2003.
Á yngri árum og
skólaárunum vann
hann við bústörf á
Grænavatni, var blaða-
maður við Tímann og
Þjóðviljann og síðar við
blaðið Norðurland á
Akureyri. Hann sinnti
þáttagerð fyrir RÚV og var m.a. um-
sjónarmaður þáttarins Daglegt mál
1986-87. Hann birti fjölda greina og
ljóða í blöðum og tímaritum og gaf
út tvær ljóðabækur: Heilyndi 1997
og Haustgrímu 2015. Hann var einn-
ig þekktur fyrir þátttöku í spurn-
ingaþáttum, m.a. í Útsvari.
Erlingur gegndi einnig fjölda
trúnaðarstarfa. Síðast sat hann í
Stjórnlagaráði sem starfaði árið
2011. Áður hafði hann m.a. starfað á
vegum Stúdentaráðs og fyrir Al-
þýðubandalagið auk þess sem hann
sat í nefndum fyrir Akureyrarbæ og
í stjórn Útgerðarfélags Akureyrar
1987-95, í stjórn Mecklenburger
Hochseefischerei 1993-95, í Ferða-
málaráði 1987-91 og í stjórn Hins ís-
lenska kennarafélags 1989-91. Er-
lingur naut starfslauna listamanns
hjá Akureyrarbæ 2005 og fékk heið-
ursviðurkenningu Menningarsjóðs
Akureyrar fyrir ritlist árið 2016.
Eiginkona Erlings var Sigríður
Stefánsdóttir, fv. kennari, bæjar-
fulltrúi og stjórnandi hjá Akureyr-
arbæ. Þau eiga þrjú uppkomin börn,
Ernu, Sigurð og Kára.
Útförin verður frá Akureyrar-
kirkju 22. nóvember nk. kl 13.30.
Andlát
Erlingur Sigurðarson