Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
S:587 2123
FJÖRÐUR
S: 555 4789
VERNDUM
VIÐKVÆM AUGU
BLUE
STOP
Bluestop er vörn gegn skaðlegum blágeislum sem er
að finna í símum, spjaldtölvum, flúorljósum og víðar.
Bluestop hjálpar okkur að vernda augun fyrir geislum
sem þessi tæki gefa frá sér, vinnur gegn augnþreytu
og virkar sem forvörn gegn hrörnum í augnbotnum
og skýi á augasteini.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Framkvæmdir eru komnar vel á
veg við gas- og jarðgerðarstöð
Sorpu í Álfsnesi. „Það sést breyting
frá degi til dags,“ segir Björn H.
Halldórsson, framkvæmdastjóri
Sorpu, en vonir standa til að starf-
semi hefjist í nýju stöðinni eftir
rúmlega eitt ár. Fyrstu hugmyndir
að þessu verkefni komu fram fyrir
15 árum. Í stöðinni verður mögulegt
að endurnýta um 95% af úrgangi
frá heimilum á höfuðbogarsvæðinu.
Fyrsta skóflustunga var tekin 17.
ágúst eftir að samið var við verk-
takafyrirtækið Ístak um byggingar-
framkvæmdir. Eftir útboð síðasta
vetur var öllum tilboðum hafnað, en
í kjölfarið farið í samnings-
kaupaferli þar sem ÍAV og Munck
tóku þátt ásamt Ístaki. Í kjölfarið
kærði ÍAV til Úrskurðarnefndar um
upplýsingamál synjun SORPU á að-
gengi að ákveðnum gögnum tengd-
um útboðinu og töku tilboðs frá Ís-
taki. Málið er enn fyrir þeirri nefnd.
Kostnaður alls 3,6 milljarðar
Áætlað er að framkvæmdir kosti
um 3,6 milljarða króna án virðis-
aukaskatts og er þá kostnaður við
ýmsan búnað og hliðarverkefni
meðtalinn. Verkefnið verður að
hluta til fjármagnað af rekstri
SORPU og síðan með lánum frá
Lánasjóði sveitarfélaga og Íslands-
banka.
Eigendur Sorpu eru sveitarfélög-
in sex á höfuðborgarsvæðinu og
leggja þau fram stofnframlag, sam-
tals 550 milljónir í ár og á næsta ári.
Þar er hlutur Reykjavíkur stærstur
eða alls tæplega 57%, en hlutur Sel-
tjarnarness er minnstur, rúmlega
2%.
Stærð lóðar Sorpu í Álfsnesi er
rúmlega 82 þúsund fermetrar og
grunnflötur stöðvarinnar verður
12.800 fermetrar eða rúmlega tveir
fótboltavellir.
Í kynningu á verkefninu er fram-
kvæmdir hófust kom m.a. fram hjá
framkvæmdastjóra Sorpu að stöðin
dregur úr urðun á lífrænum úr-
gangi og nýtir næringarefni og orku
sem í honum felast. Með tilkomu
gas- og jarðgerðarstöðvar verði
urðun á lífrænum heimilisúrgangi
hætt og framleiðsla á metani og
jarðvegsbæti muni draga úr út-
blæstri gróðurhúsalofttegunda.
Samhliða verði flokkun á gleri,
spilliefnum, raftækjum og plasti
aukin.
Ljósmynd/ Fannar Guðmundsson/Ístak
Framkvæmdir Byggingakranar setja svip á svæðið í Álfsnesi. Grunnflötur hússins verður á við tvo fótboltavelli.
Framkvæmdir hafnar við
nýja stöð Sorpu í Álfsnesi
Ný gas- og jarðgerðarstöð í gagnið eftir rúmlega eitt ár
Framtíðin Áformað er að taka nýja stöð í gagnið í byrjun árs 2020.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Fyrirhuguð uppskipting velferðar-
ráðuneytisins í heilbrigðisráðuneyti
og félagsmálaráðuneyti mælist mis-
jafnlega fyrir. Samband íslenskra
sveitarfélaga (SÍS) minnir á, í um-
sögn til stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar Alþingis, að í þessu felist að
snúið er aftur til þeirrar skipunar
sem var við lýði fram til 1. janúar
2011 þegar breyting var gerð á skip-
an ráðuneyta.
Sambandið studdi eindregið þá
breytingu hvað varðar velferðar-
ráðuneytið en varaði þá við afleið-
ingum þess ef hnökrar yrðu á sam-
einingunni. Eftir á að hyggja virðist
nú sem innistæða hafi verið fyrir
þeim varnaðarorðum að því er fram
kemur í umsögn Karls Björnssonar,
framkvæmdastjóra sambandsins.
Ýmsar samverkandi ástæður eru
sagðar vera fyrir því að markmið
með sameinuðu velferðarráðuneyti
náðust ekki. Þar vegi þyngst að þau
átta ár sem liðin eru hafi ekki verið
nýtt til að móta heildstæða stefnu
um velferðarþjónustu.
Stöðugt á borðum ráðherra
og æðstu embættismanna
„Skortur á stefnu hefur leitt til
þess að stór hluti velferðarmála er
stöðugt á borðum ráðherra, ráðu-
neytisstjóra og annarra æðstu emb-
ættismanna í stað þess að fá úrlausn
á viðeigandi vettvangi í samræmi við
markaða stefnu. Alþekkt dæmi um
þetta er samspil Sjúkratrygginga ís-
lands og heilbrigðishluta velferðar-
ráðuneytisins,“ segir í umsögn
Karls.
Hann tekur undir að málafjöldi og
umfang kunni að hafa reynst ofviða
því fyrirkomulagi að einn ráðuneyt-
isstjóri héldi um alla þræði. Þetta
eigi sérstaklega við þar sem stefnu-
mörkun skorti í mörgum af stærstu
málaflokkum sameinaðs ráðuneytis,
þar sem heilbrigðis- og öldrunarmál
vega þyngst.
Stangast á við Evrópusáttmála?
Tillaga um að málefni er varða
mannvirki verði flutt frá umhverfis-
og auðlindaráðuneytinu í félags-
málaráðuneyti hefur verið umdeild.
Samband sveitarfélaga telur einboð-
ið að málefni skipulagsgerðar verði
að vera samferða mannvirkjamálum.
Gerð er alvarleg athugasemd við að
tillaga sé mótuð um þennan verk-
efnaflutning án samráðs við sveitar-
félögin „þegar haft er í huga hve
mikilvæg skipulags- og byggingar-
mál eru gagnvart stefnumörkun og
stjórnsýsluframkvæmd sveitar-
félaga. Má jafnvel leiða líkur að því
að tilurð tillögunnar stangist á við
Evrópusáttmála um sjálfstjórn
sveitarfélaga og þau viðmið um sam-
ráð milli stjórnsýslustiga sem Sveit-
arstjórnarþing Evrópuráðsins hefur
mótað“, segir í umsögn Karls.
Samtök iðnaðarins hafa harðlega
mótmælt fyrirætlunum um flutning
mannvirkjamála til nýstofnaðs ráðu-
neytis félagsmála en Íbúðalánasjóð-
ur fagnar hins vegar tilfærslu mann-
virkjamála undir ráðherra félags-
mála í umsögn sinni. Það muni stuðla
að stöðugleika á húsnæðismarkaði til
lengri tíma og efla stjórnsýslu mála-
flokksins.
Fyrsti barnamálaráðherrann
Ýmsar aðrar breytingar eru fyrir-
hugaðar skv. frumvarpinu, m.a.
meiri áhersla á málefni barna og
ungmenna en embættisheiti ráð-
herra félagsmála á að verða félags-
og barnamálaráðherra. Barnavernd-
arstofa fagnar þessu í umsögn. „Ef
af breytingunum verður er þetta í
fyrsta sinn barnamálaráðherra yrði
við völd á Íslandi. Er það í eðli sínu
til þess fallið að þarfir og réttindi
barna verði í forgrunni […].“
Átta ár ekki nýtt til að móta stefnu
Velferðarráðuneytið Það tók til starfa 1. janúar 2011 en þá voru heilbrigð-
isráðuneytið og félags- og tryggingamálaráðuneytið sameinuð í eitt.
Skiptar skoðanir á verkaskiptingu ráðuneyta Markmið með sameinuðu velferðarráðuneyti náðust
ekki að mati SÍS Tilurð tillögu talin geta stangast á við Evrópusáttmála um sjálfstjórn sveitarfélaga
„Þetta er verkefni sem við erum að
skoða og vinna með Ás styrktar-
félagi,“ segir Ásgerður Halldórs-
dóttir, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.
Nýlega var tekin fyrir á fundi
skipulags- og umferðarnefndar bæj-
arins tillaga um að nýju sambýli fyr-
ir fatlaða yrði fundinn staður á lóð
við Kirkjubraut 20. Var byggingar-
fulltrúa í kjölfarið falið að ræða við
Styrktarfélagið Ás um hvort sú lóð
hentaði. „Þar sem Nesið er nánast
fullskipulagt hugnast skipulags-
nefnd mjög vel þessi staðsetning
innst á Kirkjubrautinni. Þetta er ná-
lægt miðbænum, sundlauginni og
verslunum á Eiðistorgi,“ segir Ás-
gerður í samtali við Morgunblaðið.
Ásgerður segir að Styrktarfélagið
Ás sé nú að byggja samskonar hús
og ráðgert er að rísi á Kirkjubraut í
Garðabæ. Það rúmar sex íbúa. Í dag
rekur Seltjarnarnesbær sambýli
fyrir fjóra íbúa á Sæbraut og segir
Ásgerður að hugmyndin sé að sam-
býlið á Kirkjubraut taki við af því í
framtíðinni.
„Það þarf að fara í deiliskipulags-
breytingu og þetta verður kynnt fyr-
ir íbúum,“ segir Ásgerður um næstu
skref í málinu en umrætt svæði er
skipulagt sem grænt svæði í dag.
Hún segist reikna með að skipulags-
ferli taki um hálft ár og bygging
hússins um tvö ár, gangi allt að ósk-
um. hdm@mbl.is
Byggja nýtt sambýli
á Seltjarnarnesi
Fundinn staður á Kirkjubraut