Morgunblaðið - 15.11.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 15.11.2018, Qupperneq 18
SVIÐSLJÓS Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Þorbjörg Gísladóttir tók við starfi sveitarstjóra Mýrdalshrepps í haust. Hún segir íbúa hreppsins taka til- vist Kötlu með stóískri ró. Rýming- aráætlun og allur undirbúningur miðist við verstu hugsanlegu að- stæður. Íbúar hér þekki vel hvernig þeir eigi að bregðast við. Það þurfi samt sem áður að huga að betrum- bót þar sem margt nýtt fólk hafi flutt í hreppinn og mikill straumur ferðamanna fari í gegnum Mýrdals- hrepp. „Lögreglstjórinn á Suðurlandi lét gera nýja hermun á hlaupi úr Múla- kvísl og þar kom í ljós að við verstu aðstæður myndi núverandi varnar- garður ekki halda og flóð af völdum Kötlugoss gæti náð til Víkur. Við er- um ekki að tala um vatnsflóð heldur aur- og jökulflóð. Ef garðurinn yrði betrumbættur þá værum við með al- gjörlega nýtt landslag, nýtt bygg- ingarland og gætum byggt fyrirhug- aða björgunarmiðstöð á láglendi í stað þess að byggja uppi í brekku með tilheyrandi kostnaði,“ segir Þorbjörg og bætir við að ekki þyrfti að rýma Vík með umbótum á varn- argarðinum. Hún segir að Vega- gerðin áætli að kostnaðurinn sé 80 til 100 milljónir en tjónið sem gæti orð- ið ef flóð úr Múlakvísl næði til Víkur gæti hlaupið á 6 til 13 milljörðum. Mikil fólksfjölgun Þorbjörg segir að gríðarleg fólks- fjölgun hafi átt sér stað í Mýrdals- hreppi. „Um áramót vorum við 630 en nú nærri 700. Ég held að þetta sé mesta fólksfjölgun á landinu. Ferðaþjón- ustan dregur til sín fólk. En mest fáum við fólk á aldrinum 20 til 40 ára sem stoppar flest ekki lengi. Okkur vantar fjölskyldufólk og börn en húsnæðisskortur er hamlandi þrátt fyrir að 30 nýjar íbúðir hafi verið teknar í notkun á þessu ári,“ segir Þorbjörg sem hefur litlar áhyggjur af návíginu við Kötlu. „Við erum vel undirbúin. Fjöldi vísindamanna, lögreglan og al- mannavarnanefnd fylgjast vel með og taka stöðuna reglulega. Það veitir óneitanlega öryggiskennd.“ Þorbjörg segir mannlífið í Vík gott og líf og fjör á staðnum. Það hafi komið á óvart þegar þau komu til Víkur að komast ekki inn á veit- ingastað vegna þess að allt var fullt þrátt fyrir að 16 veitingastaðir séu í hreppnum. „Nýju íbúarnir eru alls staðar úr heiminum. Við þurfum að kortleggja þekkingu þeirra og hæfi- leika.“ Þorrablótið eitt eftir „Það þarf að bæta innviði sam- félagsins með fjölgun íbúa og straumi ferðamanna,“ segir Sæ- munda Ósk Fjeldsted og tekur sem dæmi vöntun á apóteki sem hún hef- ur fulla trú á að komi. Sæmunda flutti til Víkur fyrir 15 árum þegar 300 manns bjuggu í hreppnum. Hún segir mikla breytingu á mannlífinu. Áherslan sé á nýja hluti og sem dæmi sé þorrablótið í félagsheim- ilinu Leikskálum eina ballið sem eft- ir sé af þeim gömlu. Katla truflar Sæmundu lítið en hún segir meira hafa verið talað um Kötlugos meðal íbúanna fyrir 20 ár- um og Mýrdalssandi hafi oft verið lokað ef mælingar sýndu hættu á gosi. Með bætri mælingum hafi lok- unum verið hætt. Sæmunda segir gott upplýsingaflæði frá almanna- vörnum til íbúa hjálpa til en hún hafi eins og aðrir áhyggjur af ferða- mönnum og nýjum íbúum. „Ég sef róleg yfir gosi í Kötlu en líst illa á hugsanlegt öskufall. Við fengum alveg upp í kok í Eyjafjalla- gosinu af öskunni og viðbjóðnum sem fygldi henni,“ segir Sæmunda. Áhyggjur af ferðamönnunum Elías Guðmundsson fram- kvæmdastjóri rekur nýtt hótel, Kríuhótel, Icelandair hótel, auk veit- ingastaða í samstarfi við aðra. Elías er fæddur í Pétursey þar sem hann ólst upp við sveitastörf. Hann flutti aftur í Mýrdalinn að loknu námi og segir að Katla trufli sig ekki dags- daglega. Hann hafi litlar áhyggjur af hlaupinu en meiri áhyggjur af ösku- falli. Elías segist engar áhyggjur hafa af íbúum í Mýrdal þar sem rýmingaráætlanir séu öllum kunnar nema helst nýjum íbúum, en hann finni til ábyrgðar gagnvart ferða- mönnum á svæðinu. Elías segir að allt að 10.000 manns fari í gegnum Vík á góðum degi. Það komi honum á óvart hvað ferðamenn viti mikið um Kötlu en auðvitað séu einhverjir sem viti ekkert um hana og sumum finn- ist það spennandi að gista við Kötlu- rætur. Morgunblaðið/Eggert Tignarlegt Vík í Mýrdal liggur í fallegu bæjarstæði með útsýni til Reynisdranga. Íbúar láta eldfjallið Kötlu ekki ræna sig svefni en eru tilbúnir ef hún vaknar. Íbúar búa sig undir það versta  Mýrdælingar gera sig klára fyrir Kötlugos  Bæta þarf varnargarð við Víkurklett og hækka um þrjá metra  10.000 ferðamenn á dag  Styrkja þarf innviði vegna fjölgunar íbúa og ferðamanna Sveitarstjóri Þorbjörg Gísladóttir. 18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Jóladagatöl fyrir alla 1999 kr.pk. Jóladagatal, súkkulaði og lakkrískúlur 3999 kr.pk. Osta jóladagatal Sjáðu úrvalið á kronan.is Viðbúnaður vegna Kötluhlaups „Eldra fólk sem upplifði Kötlugosið 1918 myndu ekki vilja uplifa það aftur. Jónas Jakobsson, afi minn, var sex ára með föður sínum uppi á heiði að athuga með fé þegar Jakob sér mökkinn koma frá Kötlu og haskar sér heim með drenginn,“ segir Jónas Erlendsson í Fagradal, bæ sem stendur á hól fyrir ofan Múlakvísl. Jónas segir langafa sinn hafa tekið afa hans undir höndina og hlaupið með hann heim. „Við það sama og þeir komu inn var allt orðið svart úti. Afi sagði mér að honum hefðu fundist dynk- irnir verstir og glamparnir sem sáust af eldingunum í öskufallinu. Þar sem allt var svart urðu bloss- arnir enn sterkari,“ segir Jónas og bætir við að afa hans hafi fundist gaman af því veturinn eftir Kötlu- gosið að sitja og horfa á ána því ál- arnir voru allir svartir. Jónas segir eldingahættu fylgja Kötlugosi og hann viti til þess að einn hafi dáið af völdum eldingar úr slíku gosi. Hann segir að eftir gosin í Eyja- fjallajökli og Grímsvötnum viti Mýrdælingar meira hvað í vændum sé ef Katla gjósi. Líkur á öskufalli í Mýrdal sé 20% og 40% líkur í Skaft- ártungu en allt fari þetta eftir átt- um og vindum. Jónas segir meiri ösku hafa borist í Mýrdalinn af völdum Heklu en Kötlu. „Það komu hingað vísindamenn og tóku snið úr jarðveginum hér í leit að gömlum kornökrum alveg aftur til landnáms. Þeir fundu fimm lög af ösku úr Kötlu en mun fleiri og þykkari lög af ösku úr Heklu sem er mun ljósari en Kötluaskan.“ Jónas segir Kötlu ekki trufla daglegt líf í Mýrdal og Vík sé óðum að breytast úr þorpi í bæ. Líkur á öskufalli 20% Staðkunnugur Jónas Erlendsson fylgist vel með í Mýrdalnum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.