Morgunblaðið - 15.11.2018, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
fyrir alla fagurkera...
Náttúruleg efni – Sjálfbær framleiðsla – Himneskur svefn
LÁTTU DRAUMINN RÆTAST
Ármúla 26 | 108 Reykjavík | Sími 578 4400 | heimilioghugmyndir.is
HEIMILI & HUGMYNDIR
SVIÐSLJÓS
Guðrún Hálfdánardóttir
guna@mbl.is
Lengi hefur loðað við unga ítalska
karlmenn að þeir fari seint úr for-
eldrahúsum – vilji helst búa sem
lengst á „hótel mömmu“.
Flest þeirra ungmenna sem eru
fylgdarlaus á flótta og koma til Sikil-
eyjar eru afrískir unglingsdrengir.
Ítölsk lög kveða á um að öll fylgd-
arlaus börn, sem sækja um alþjóð-
lega vernd, eigi rétt á talsmanni sem
annist málefni þeirra. Ekki er óal-
gengt að slíkir talsmenn, yfirleitt
lögfræðingar, séu með um 500 börn
undir sínum verndarvæng og gefur
það augaleið að tengslin eru lítil sem
engin.
UNICEF, í samstarfi við umboðs-
mann barna í sikileysku borginni
Palermo, hefur komið á laggirnar
nýrri útfærslu á þessu kerfi sem hef-
ur gefið afar góða raun.
Rosario Andrea Lio stýrir verk-
efninu og ræddi blaðamaður við
hann og Chiara Saturnino, sem
starfar hjá UNICEF í Palermo, um
verkefnið auk ungmenna sem eru
þátttakendur í því ásamt „ítölskum
mæðrum“ sínum.
Byggist á barnasáttmálanum
Chiara og Rosario segja að hug-
myndin hafi komið frá Barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna sem felur
í sér að öll börn eigi að njóta ákveð-
inna réttinda.
Hugmyndin var þegar til á Ítalíu
en þar var frekar horft á fjárhags-
stöðu ungmenna en í Palermo er
einkum horft til þess að bæta stöðu
barna á flótta og auðvelda þeim að
aðlaga sig að ítölsku umhverfi.
„Áður voru það lögfræðingar sem
sinntu þessu hlutverki en hér í Pa-
lermo höfum við víkkað þetta út og
getur fólk, sem hefur getu til og
áhuga á að styðja við bakið á fylgd-
arlausum börnum á flótta, sótt um
að taka þátt í verkefninu,“ segir
Rosario.
147 sambönd
mynduð á einu ári
Hann segir að þau hafi byrjað
snemma á síðasta ári að þjálfa fólk í
að taka að sér slíkt hlutverk og eru
foreldrarnir orðnir rúmlega sjötíu
talsins.
Fyrsta heila starfsárið, það er frá
júní 2017 til júní 2018, urðu til 147
slík sambönd barns og foreldris.
Þau segja að verndarkerfið hafi
gefið góða raun meðal annars vegna
þeirrar áherslu sem lögð hefur verið
á að þjálfa foreldrana og leiðbeina
þeim.
„Því börn sem eru á flótta hafa
mjög oft upplifað skelfilega hluti og
oft ekki notið leiðsagnar fullorðinna
í langan tíma. Þau hafa þurft að
bjarga sér sjálf í aðstæðum sem oft
eru hræðilegar,“ segja þau.
Börnin hafa oft horft upp á ætt-
ingja og vini deyja, glímt við hungur
og vosbúð. Stundum hafa þau verið
beitt líkamlegu og andlegu ofbeldi
og þurfa mjög oft á sálrænum
stuðningi að halda.
Nokkrir ungir flóttamenn og
„ítalskar mæður“ þeirra sögðu
blaðamanni frá reynslu sinni af
samstarfinu og var það samdóma
álit þeirra að þetta hafi gefið þeim
mjög mikið.
Sakna mömmu minna núna
„Mín ítalska móðir hefur dregið
úr söknuðinum eftir alvöru mömmu
minni,“ segir einn þeirra.
Annar segir að það að hafa
kynnst „mömmu“ á Sikiley hafi
bjargað andlegri heilsu hans.
Faðmlag geti skipt sköpum þegar
þér líður illa og mamma hans sé allt-
af til staðar fyrir hann.
Sambandið á milli barnsins og til-
sjónarmanns getur tekið á, segir
Chiara enda oft mikill menning-
armunur og talsmaðurinn sjálf-
boðaliði en ekki sérfræðingur í mál-
efnum barna.
Hún segir að alls séu rúmlega 12
þúsund fylgdarlaus börn á flótta á
Ítalíu og eru um 40% þeirra á Sikil-
ey.
Mjög hefur dregið úr komu flótta-
fólks til Ítalíu í ár og fyrstu níu mán-
uði ársins nemur fækkunin 80%.
Fyrstu tíu mánuði ársins komu
3.330 fylgdarlaus börn til Ítalíu sem
er um 15% af öllu flóttafólki sem
kom þessa mánuði þangað.
Ungmenni sem hverfa
Eitt af því sem starfsmenn UNI-
CEF hafa áhyggjur af er sá mikli
fjöldi barna sem „hverfa“ þegar þau
verða 18 ára. Við það missa þau
réttarstöðu barns og bera ábyrgð á
sér sjálf.
Með hertri löggjöf varðandi komu
flóttafólks til Ítalíu missa fjölmargir
þeirra, sem eru með tímabundið
dvalarleyfi af mannúðarástæðum,
heimild til þess að vera í landinu
áfram. Búast má við því að þeim
Morgunblaðið/Guðrún Hálfdánardóttir
Á leið til lífs Hluti hópsins sem tekur þátt í verkefni sem felst í að fólk sem hefur áhuga og getu til tekur að sér að styðja við bakið á börnum sem eru fylgdarlaus á flótta og eru á Sikiley.
Samstarf Chiara Saturnino, starfsmaður UNICEF, og Fatou Sanneh, sem
flúði frá Gambíu, vinna saman að verkefni á vegum UNICEF.
„Mín ítalska móðir“
„Palermo-módelið“ hefur vakið verðskuldaða athygli
enda hefur það gefið góða raun og bætt líf flóttabarna
SJÁ SÍÐU 36
Flóttamenn á Sikiley