Morgunblaðið - 15.11.2018, Page 36

Morgunblaðið - 15.11.2018, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 etrarfatnaður yrir börnin icewear.is V f KEILIR | Snjógalli f. börnKr. 14.990.- KEILIR | VetrarúlpaKr. 11.990.- KEILIR | SnjóbuxurKr. 8.990.- BREKKA | HúfaKr. 1.690.- fjölgi í kjölfarið sem hverfa af yf- irborði jarðar. Tengslin áfram til staðar Þrátt fyrir að einhver þeirra ung- menna sem tóku þátt í verndarverk- efninu séu orðin átján ára gömul og því formlega hætt að vera börn þá rofna tengsl móður og barns ekki svo glatt. Mæðgin sem blaðamaður ræddi við segja að hann sé orðinn hluti af fjöl- skyldunni og verði það áfram „Hann er og verður drengurinn minn, sama hvað gengur á,“ segir hún en hún og eiginmaður hennar eiga einnig tvær eldri dætur. Drengurinn er átján ára og hefur verið á Ítalíu í tvö ár. Spurður út í ástæðuna fyrir því að hann yfirgaf heimalandið, sem er í Vestur-Afríku, er svarið erfiðar aðstæður heima fyr- ir. Pabbi hans dó þegar hann var tólf ára og eftir það varð hann fyrir miklu ofbeldi af hálfu náins ættingja. Hann segir að það hafi verið skelfilegt að kveðja móður sína og systkini „en ég varð að forða mér. Ég vildi ekki deyja.“ Hann fór til Senegal og þaðan til Malí þar sem hann vann um tíma fyr- ir fargjaldinu til Alsír. Þar var hann í hálft ár að vinna og svo lá leiðin til Líbíu. Stærstan hluta tímans þar var hann í þrælkunarbúðum líkt og fjöl- margir þeirra sem eru á flótta frá Afríku til Evrópu lenda í. Á Ítalíu fékk hann dvalarleyfi af mannúðarástæðum og hélt til Rómar þar sem hann taldi tækifærin vera. Raunin var önnur því þar bjó hann á götunni um tíma eða þangað til and- leg heilsa hans var komin í þrot og hann endaði á sjúkrahúsi. Hann ákvað að fara aftur til Sikil- eyjar enda leið honum miklu betur þar en í Róm. „Svo kynntist ég minni ítölsku móður og hún bjargaði lífi mínu. Ég væri væntanlega ekki hér án hennar stuðnings. Hún sinnir mér svona eins og mömmur gera, kaupir handa mér föt og fleira og skammar mig stundum en yfirleitt ekki að ástæðulausu,“ segir hann og hlær en hann dreymir um að vinna við raf- virkjun í framtíðinni. Ekkert endilega alltaf sammála Mamma hans tekur undir þetta og segir að þau séu alls ekki alltaf sam- mála, ekkert frekar en flestir for- eldrar og unglingar þeirra. „Ég er alltaf að segja honum hvað það skipti miklu máli að standa sig vel í skólanum og mæta í tíma. Ef hann geri það ekki þá verði erfitt fyrir hann að láta draumana rætast.“ Þau hafi hins vegar miklar áhyggj- ur af framhaldinu því hann er að verða 19 ára og aðeins með mann- úðarleyfi. „Ég er alltaf að segja hon- um að gæta sín og vanda valið á vin- um því nú sé hann orðinn fullorðinn og í miklu meiri hættu á að vera send- ur úr landi. Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda að hann verði tekinn frá okkur og sendur í burtu. Því hvað bíður hans þá?“ Aldrei gengið í skóla Hann er á sextánda aldursári og kemur frá Fílabeinsströndinni. Þegar hann kom til Sikileyjar var hann þrettán ára gamall. Hann hafði aldrei gengið í skóla, var bæði ólæs og óskrifandi. Hann hafði aldrei hand- leikið ritföng en í dag er hann í skóla og allt gengur honum í haginn. Ein af ástæðum þess er að sú sem kenndi honum fyrst þegar hann kom í skólann í Palermo tók að sér að verða hans ítalska móðir. „Ég sakna mömmu minnar oft en núna gengur allt betur hjá mér því ég hef líka eignast fjölskyldu hér á Sikil- ey og það skipti líka miklu máli að ég þekkti hana áður og vissi að hún væri góð manneskja.“ Ein ítalska móðirin hefur tekið að sér þrjá drengi, þar á meðal einn pilt frá Búrkína Fasó sem er gríðarlega góður námsmaður og hefur átt mjög auðvelt með að aðlaga sig að ítölsku þjóðfélagi. Hann á marga vini og vonar að hans framtíð verði á Ítalíu. En eins og staðan er í dag þá er óvíst hvað verð- ur þegar hann nær 18 ára aldri. Breytingar reynast oft erfiðar Allar ítölsku mæðurnar sem blaða- maður ræddi við og höfðu tekið að sér að vernda unga flóttadrengi eru sam- mála um að stundum reyni á sam- bandið enda hafi gengið á ýmsu í þeirra lífi. Flótti frá heimalandinu hafi ekki verið að ástæðulausu og eft- ir að hafa verið lengi á vergangi geti reynst þrautin þyngri að setjast á skólabekk í ókunnugu landi og læra nýtt tungumál. „Við sem eigum unglinga vitum hvað það getur verið erfitt fyrir þá að vakna á morgnana og þeir eru ekkert öðruvísi en aðrir unglingar þegar kemur að því,“ segir ein þeirra og brosir. „Stundum er ég ekki sátt við stað- ina sem hann sækir og finnst hann vaka of lengi fram eftir. Þetta breytir því ekki að ég vil fá að annast hann áfram og vona að hann fái tækifæri til þess að þroskast og vaxa úr grasi hér á Sikiley.“ Voru 270 en eru núna 85 Silvia Calcavecchio stýrir flótta- mannamiðstöðinni Centro Asante í Palermo en þangað til í sumar var miðstöðin aðeins heimili drengja á aldrinum fimmtán til sextán ára. Þeir bjuggu þar þangað til þeir urðu átján ára og voru þá fluttir annað. Frá því í júní hefur Asante verið skipt upp í tvennt og eru þar nú búsettir 44 ung- lingspiltar og 41 karlmaður sem hef- ur náð 18 ára aldri. Alls eru íbúarnir því 85 en á sama tíma í fyrra voru íbúarnir 150 unglingar og árið 2016 bjuggu þar 270 ungmenni. Rekið á vegum borgarinnar Asante er rekin af borgaryfir- völdum í Palermo sem greiða 35 evr- ur, sem eru tæpar 5 þúsund krónur, á dag með hverjum íbúa í Asante. Peningarnir eru nýttir til að greiða húsnæðiskostnað og fæði auk annarra útgjalda. Það sem eftir stendur, 75-80 evrur alls, fá þeir greitt út sem vasa- pening í lok mánaðar. Það verður að duga fyrir öllum öðrum kostnaði, svo sem síma, fatnaði snyrtivörum o.fl. Silvia segir að börnin hafi flest ver- ið send á önnur minni heimili og bæt- ir Chiara því við að Asante hafi að- eins átt að vera fyrsti viðkomustaður fylgdarlausra barna og þau hafi átt að búa þar að hámarki í einn mánuð. Raunin var önnur og þau hafi yfirleitt dvalið þar í tæpt ár. Sum mun lengur enda allar móttökumiðstöðvar fyrir flóttafólk yfirfullar á þessum tíma. Íbúar Palermo jákvæðir Að sögn Silviu var reynt að bjóða ungmennunum upp á afþreyingu af ýmsu tagi á meðan þau dvöldu í As- ante, oft með stuðningi UNICEF. Til að mynda var rekin útvarpsstöð þar, boðið upp á myndlistarnámskeið og kennslu í pizzabakstri sem hópur pilta nýtti sér og höfðu gaman af. Þeir fengu síðan starfsþjálfun á pizzastöðum í Palermo. Að sögn við- mælenda er viðhorf flestra íbúa Pa- lermo jákvætt í garð flóttafólks. Sama á við um meirihlutann í borg- arstjórninni en staðan er ekki sú sama alls staðar á Sikiley. Silvia segir að lykilatriðið sé að reyna að hjálpa fólki á flótta við að finna vinnu því aðgerðaleysið fari illa með fólk. Starfsfólk Asante aðstoði íbúana við að fylla út atvinnuumsóknir og benda þeim á að mögulega vinnu. Jafnframt fari allir á ítölskunámskeið sem þar búa. Erfitt að fá hæli Þeir sem eru orðnir fullorðnir sækja um alþjóðlega vernd hjá ann- aðhvort lögreglu eða héraðsstjórn- inni. Áður var starfandi lögfræðingur hjá Asante en svo er ekki lengur þar sem útlit er fyrir enn frekari fækkun á umsóknum um hæli á Ítalíu á næst- unni. Mjög erfitt er að fá alþjóðlega vernd, segir Silvia, og örfáir þeirra sem hafa verið í Asante hafi fengið slíka vernd, en margir hafi fengið tímabundna mannúðarvernd. Ef umsókn um hæli er synjað er hægt að áfrýja niðurstöðunni og vegna þess hversu ólík málin eru þá er miðstöðin í samvinnu með ólíkum lögmönnum sem annast áfrýjun fyrir skjólstæðinga miðstöðvarinnar. Daginn áður en blaðamaður heim- sótti Asante hafði lögfræðingur kom- ið og haldið fund með íbúum þar sem hann fór yfir stöðu mála, hvernig lög- in væru og hvernig þau myndu breyt- ast. Margir þeirra sem sækja um hæli á Ítalíu þekki ekki lögin og telji fyrirfram að þeir geti sótt um al- þjóðlega vernd og fengið. Sem er eins og áður sagði nánast ómögulegt að sögn Silviu. Umsóknarferlið tekur langan tíma og þeir sem komu til Sikileyjar fyrir lok maí á þessu ári, þegar ákvörðunin var tekin um að breyta lögunum, eru enn að bíða eftir því að fá fund þar sem umsókn þeirra er tekin fyrir. Eftir að umsókn er tekin fyrir tekur við bið sem er aldrei styttri en 5 eða 6 mánuðir eftir viðtali. Eftir það, eftir 1 eða 2 mánuði, fá þeir svarið við um- sókn um hæli. Ef þeim er synjað, sem væntanlega verður um nánast alla þar sem ekki er lengur hægt að sækja um mannúðarvernd, tekur við bið á meðan niðurstöðunni er áfrýjað og það ferli tekur yfirleitt um eitt ár. Biðin reynir mjög á andlega líðan þeirra. Því hefur miðstöðin óskað eft- ir því að fá sálfræðinga með breiða þekkingu til starfa til að styðja við íbúana á meðan beðið er. Samkvæmt frumvarpi til laga, sem öldungadeild ítalska þingsins samþykkti í síðustu viku, er ekki hægt að sækja um alþjóðlega vernd af mannúðar- ástæðum þar í landi lengur og þeir sem hafa fengið slíka vernd tímabundið fá hana ekki framlengda. Með frumvarpinu, sem verður tekið fyrir í neðri deild þingsins síðar í mánuðinum, verður auðveldara að fella úr gildi ríkisborgararétt þeirra sem þegar hafa fengið slíkan rétt tímabundið, yfirleitt til tveggja ára. Þegar öldungadeildin samþykkti frumvarpið með 163 atkvæðum gegn 59 skrifaði innanríkisráðherra Ítalíu, Matteo Salvini, sem er guðfaðir frumvarpsins, á Twitter að um sögulegan dag væri að ræða. Talið er fullvíst að frumvarpið verði samþykkt í neðri deildinni enda ríkisstjórnin með meirihluta þar. Lögin fella úr gildi fyrri heimildir um að veita hæl- isleitendum dvalarleyfi til tveggja ára á grundvelli mannúðarástæðna. Um 25% þeirra sem sóttu um hæli á Ítalíu í fyrra fengu dvalarleyfi með þessum hætti á síðasta ári. Þess í stað verður heimilt að veita fólki sérstaka vernd í sex til tólf mánuði, meðal ann- ars vegna náttúruhamfara í upprunalandinu. Salvini segir að Ítalía taki á móti þeim sem eru að flýja stríð samkvæmt skilgreiningu samnings Sam- einuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttafólks en ekki öðru fólki sem er á flótta og sækir um alþjóðlega vernd á Ítalíu. „Allir þeir sem eru að flýja stríð eru bræður mínir en þeir sem koma hingað til að selja eiturlyf og skapa ringulreið verða að fara heim til sín,“ sagði Salvini nýverið. Samkvæmt frumvarpinu má svipta innflytjendur ríkisborgararétti ef þeir eru sakfellir fyrir brot á hryðjuverkalöggjöf landsins. Vernd af mannúðarástæðum afnumin ÚTLENDINGALÖGIN HERT Á ÍTALÍU AFP Lögin hert Matteo Salvini, innanríkisráðherra Ítalíu, berst fyrir hertum útlendingalögum. Flóttamenn á Sikiley

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.