Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
Ljósmyndarar fréttaveitunnar AFP
hafa fest marga ólíka viðburði á
filmu síðustu daga og eru á þessari
síðu teknar saman nokkrar af frétta-
myndum þeirra. Kennir þar ýmissa
grasa, allt frá stórfljóti á Indlandi og
ferð þriggja vina þar um, yfir í ró-
legan fjörð í Noregi þar sem ein af
freigátum heimamanna liggur nær
öll undir yfirborði sjávar eftir óhapp
á æfingu Atlantshafsbandalagsins
(NATO).
„Þetta er ótrúlega dapurt. Við er-
um fyrst og fremst ánægð með að
áhöfnin slapp heil frá þessu. En að
missa skip er hrikalega dapurt,“
sagði Nils-Andreas Stensønes, yf-
irmaður norska sjóhersins, við NRK.
AFP
Á ferðalagi Þessi þriggja manna hópur skólakrakka frá Indlandi varð á vegi ljósmyndara AFP þar sem þeir sigldu báti sínum yfir fljótið Dal nýverið. Veðrið var þó ekki hið besta, rigning og kuldi.
Nei Nokkrir andstæðingar útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu mótmæltu
við þingið í gær, en Bretar ganga úr sambandinu á næsta ári.
Skipsflak Freigátan Helge Ingstad, áður stolt Norðmanna, er að líkindum
ónýt eftir að hafa siglt utan í olíuflutningaskip á æfingu NATO nýverið.
Átakasvæði Orrustuþotur Ísraels vörpuðu meðal annars sprengjum á sjón-
varpsstöð á Gasaströndinni í vikunni. Þrír eru sagðir látnir eftir árásirnar.
Kuldalegir Honum virtist fremur kalt reiðhjólamanninum sem hjólaði fram hjá þessum böngsum sem sátu á
torgi einu í Úkraínu. Vetur konungur er farinn að gera vart við sig í landinu með tilheyrandi snjókomu og frosti.
Sokkið stolt
og vinahóp-
ur á flakki
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
AIR OPTIX® COLORS
Linsur í lit
Str.
38-58
Flott föt, fyrir flottar konur
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Til stendur að
flytja þekktan
vita á Jótlandi í
Danmörku 60-80
metra inn á land
en hann er talinn
vera í hættu á
núverandi stað
vegna ágangs
sjávar.
Vitinn stendur
á Rubjerg Knude
á norðvesturströnd Jótlands og hef-
ur lengi haft talsvert aðdráttarafl
fyrir ferðamenn. Að sögn danska
ríkisútvarpsins koma árlega um
250 þúsund ferðamenn til að skoða
vitann.
Vitinn var reistur árið 1899 en
tekinn úr notkun árið 1968. Bæj-
arstjórn Hjørring áætlar að með
því að flytja vitann inn í landið ætti
hann að vera óhultur fyrir sjávar-
gangi að minnsta kosti næstu ára-
tugina.
Danskur viti fluttur
vegna ágangs sjávar
Vitinn á Rubjerg
Knude