Morgunblaðið - 15.11.2018, Side 40

Morgunblaðið - 15.11.2018, Side 40
40 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 n getur minnkað ugum, hvarmabólgu og æð áhrif á augnþurrk, sroða í hvörmum/ m og vanstarfsemi í m. Dekraðu við augun stu apótekum og Eyesland gleraugnaverslunum Augnhvíla þreytu í a haft jákv vogris, ró augnloku tukirtlu Augnheilbrigði helFæst í Augnhvíla Dekraðu við augun Margnota augnhitapoki Frábær jólajöf Breska ríkisstjórnin samþykkti á löngum fundi síðdegis í gær sam- komulag Theresu May forsætisráð- herra við Evrópusambandið (ESB) um útgöngu landsins úr samband- inu, Brexit. Samkomulagið verður kynnt í breska þinginu í dag, en óljóst er hvort meirihluti er fyrir því innan þess. Atkvæði verða að líkind- um greidd um málið í byrjun desem- ber. Ákafar deilur eru um málið utan þings. Leiðtogar ESB koma saman til fundar 25. nóvember til að ræða samkomulagið og leggja blessun sína yfir það. Öll aðildarríkin þurfa síðan að samþykkja það með formlegum hætti. Útganga Bretlands úr ESB á að taka gildi 29. mars á næsta ári þann- ig að tíminn til stefnu er orðinn naumur. Hermt var í gær að tveir ráð- herrar bresku ríkisstjórnarinnar sem gátu ekki fellt sig við samkomu- lagið myndu tilkynna afsögn. Þetta eru Penny Mordaunt, ráðherra þró- unarmála, og Esther McVey sem fer með ákveðna þætti félagsmála í ráðuneyti May. Theresa May undirbjó ríkisstjórn- arfundinn í gær af kostgæfni með því að kalla alla ráðherrana á einkafundi daginn áður þar sem hún gerði þeim grein fyrir efni samkomulagsins. Sagt er að skjalið sé um 400 síður, mestmegnis lagatexti. Í fyrirspurnatíma í breska þinginu í gærmorgun sagði May að sam- komulagið við ESB væri samræmi við niðurstöðu bresku þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Hún full- yrti að það myndi veita Bretum full yfirráð yfir landamærum sínum, lög- gjöf og efnahagsmálum á ný. Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka- mannaflokksins, segir að stjórnar- andstaðan muni beita sér fyrir nýj- um samningi við ESB ef þingið fellir samkomulagið. Flokkurinn hefur lýst því yfir að hann virði niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem samþykkti úrsögnina á sínum tíma. Hann er hins vegar lítt hrifinn af samkomulaginu sem nú hefur verið gert. Samkomulagið um Brexit hefur ekki verið birt opinberlega en meginatriði þess hafa kvisast út. Samið hefur verið um fjárhagslegt uppgjör í tengslum við útgönguna svo hægt sé að standa við fyrri skuld- bindingar. Þá eru réttindi ESB- borgara sem nú búa og starfa í Bret- landi tryggð til frambúðar. Samið er um sérstakt fyrirkomulag við landa- mæri Írska lýðveldisins og Norður- Írlands. Það á að tryggja núnings- laus viðskipti milli landanna eftir Brexit. Þá fylgir samkomulaginu viljayfirlýsing um viðskiptaleg sam- skipti Bretlands og ESB í framtíð- inni. Hvatt hefur verið til þess að Brexit-samkomulagið verði lagt und- ir dóm kjósenda í þjóðaratkvæða- greiðslu. Litlar líkur eru hins vegar á því og er May andvíg hugmyndinni. Samið um skilnað Breta og ESB  Stefnt er að leiðtogafundi Evrópusambandsins 25. nóvember til að staðfesta samkomulagið við Breta  Deilur um málið skekja Bretland  Órói í Íhaldsflokknum og óvissa um meirihlutastuðning í þinginu AFP Brexit Hópur fólks kom saman við bústað breska forsætisráðherrans í London í gær til að mótmæla samkomulaginu um útgönguna úr Evrópusambandinu. Fólkið vildi að Bretland yfirgæfi sambandið án nokkurra samninga. Annar hópur mótmælenda mætti og hvatti til þess að hætt yrði við útgönguna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.