Morgunblaðið - 15.11.2018, Side 41

Morgunblaðið - 15.11.2018, Side 41
Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 BRAGÐGÓÐAR HUGMYNDIR gottimatinn.is Hvítlauksostur Pepperoniostur Mexíkóostur Piparostur Paprikuostur Villisveppaostur Kryddostar Til tíðinda dró í sænskum stjórn- málum í gærmorgun þegar þingið hafnaði tilnefningu Ulfs Kristerssons, formanns hægriflokksins Moderat- erna, í embætti forsætisráðherra. Rúmur helmingur þingmanna sagði nei við tillögunni. Þetta eru söguleg úrslit. Aldrei áður hefur þingið hafnað tillögu þingforsetans í þetta embætti. Formenn Miðflokksins og Frjáls- lynda flokksins lýstu því yfir við upp- haf þingfundarins að flokkar þeirra myndu ekki styðja Kristersson. Flokkarnir þrír hafa verið í bandalagi í sænskum stjórnmálum um langt árabil. Í kjölfarið hafa vaknað spurn- ingar um framtíð þess. Hugmynd Kristerssons var að mynda minnihlutastjórn Moderat- erna og Kristilegra demókrata og vænti hann stuðnings við það frá sam- starfsflokkunum, auk þess sem hann taldi að Svíþjóðardemókratar myndu styðja stjórnina. Forseti sænska þingsins, sem einnig kemur úr röðum Moderaterna, tilnefndi Kristersson í embættið í síðustu viku, en sam- kvæmt sænskri stjórnskipan er það í verkahring hans. Tilnefningin þótti þó óvenjuleg fyrir þær sakir að Krist- ersson hafði ekki tekist að tryggja sér meirihlutastuðning áður en að tilnefn- ingunni kom. Samkvæmt sænskum lögum verða þingkosningar að fara fram í landinu á ný, sé tilnefningu þingforsetans hafnað fjórum sinnum. Stjórnarkeppa Í þingkosningunum í september fékk bandalag fjögurra mið- og hægriflokka, Alliansen, 143 þingsæti af 349, rúm 40% atkvæða. Það dugði ekki til myndunar meirihlutastjórnar. Flokkarnir höfðu allir hafnað sam- starfi við þjóðernisflokkinn Svíþjóð- ardemókrata í aðdraganda kosning- anna, en flokkurinn hlaut rúm 17% atkvæða og 63 þingsæti. Stjórn- arkreppa hefur því verið í landinu. Við atkvæðagreiðsluna í þinginu í gær fékk tillaga um Kristersson sem forsætisráðherra 154 atkvæði. Studdu Svíþjóðardemókratar hana auk Moderaterna. Á móti voru 195 þingmenn úr röðum hinna þriggja flokka vinstribandalagsins auk Mið- flokksins og Frjálslynda flokksins. Formenn Miðflokksins og Frjáls- lynda flokksins sögðu að atkvæði þeirra væru ekki gegn Kristersson sem slíkum í embættið, heldur teldu þeir óviðunandi að ríkisstjórn Sví- þjóðar þyrfti að reiða sig á stuðning hægriöfgamanna í flokki Svíþjóðar- demókrata. AFP Svíþjóð Ulf Kristersson kemur til þingfundarins í gærmorgun þar sem gamlir samherjar hans í Alliansen höfnuðu honum sem forsætisráðherra. Kristersson ekki forsætisráðherra  Hafnað af samstarfsflokkunum Uppnám er í ísraelskum stjórnmál- um eftir að varnarmálaráðherrann, Avigdor Lieberman, sagði af sér í gær og hvatti til þess að þing yrði rofið og gengið til kosninga. Afsögn- in er í mótmælaskyni við vopnahlé á Gaza sem forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, hefur fallist á. Flokkur Liebermans hefur jafn- framt ákveðið að slíta samstarfinu í ríkisstjórn. Það leiðir til þess að Net- anyahu hefur aðeins eins atkvæðis meirihluta á þingi. Egyptar höfðu frumkvæði að samningum um vopnahléið sem for- ystumenn Hamas, og annarra fylk- inga Palestínumanna á Gaza, og Ísr- aelar samþykktu á þriðjudagskvöld. Lieberman segir að vopnahléð feli í sér að Ísrael kaupi sér stundarfrið en til lengri tíma muni öryggi þjóð- arinnar bíða tjón af. Hann vildi halda áfram loftárásum á Gaza og ganga á milli bols og höfuðs á hermdarverka- sveitum Hamas. Búist er við því að Netanyahu muni fyrst um sinn bæta varnarmál- unum við verkefni sín í ríkisstjórn- inni. Talsmaður flokks hans sagði að þingkosningum yrði ekki flýtt vegna afsagnar Liebermans. Þær eiga að fara fram í nóvember á næsta ári. Vopnahlé veldur uppnámi í Ísrael  Varnarmálaráðherrann segir af sér AFP Gaza Hreinsað til í byggingu sem varð fyrir skemmdum í loftárás Ísraela.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.