Morgunblaðið - 15.11.2018, Side 45
UMRÆÐAN 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
Búnaður í Jaguar F-Pace er m.a.: 18" álfelgur, halógen-aðalljós með dagljósum, framsæti með vönduðu
áklæði og átta stefnu handvirkri stillingu, baksýnisspegill með sjálfvirkri deyfingu, gljásvart króm á
skrautlista, 10" Touch Pro, upplýstar sílsahlífar úr málmi með Jaguar-áletrun.
B
ún
að
ur
b
íls
á
m
yn
d
er
fr
áb
ru
g
ð
in
n
au
g
lý
st
u
ve
rð
i
VERÐ FRÁ: 8.190.000 KR.
Jaguar F-Pace.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
0
7
8
7
VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
JAGUAR
HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 525 6500
JAGUAR F-PACE
ÞAÐ VILJA EKKI ALLIR
VERA EINS OG ALLIR HINIR.
Árið 2017 samþykkti
meirihluti stjórnar
Orkuveitunnar
greiðslu 750 milljóna
króna arðs til Reykja-
víkurborgar fyrir
rekstrarárið 2016.
Minnihluti stjórnar,
þau Áslaug María
Friðriksdóttir og
Kjartan Magnússon,
mótmælti áformunum
enda arðgreiðsluskil-
yrði ekki uppfyllt. Í aðdragandanum
voru slegin lán til að fjármagna
veisluna. Þarna misnotaði pólitíkin
Orkuveituna sem tekjutusku fyrir
óskilgreind verkefni borgarstjóra.
Ég gerði arðgreiðslurnar að um-
talsefni á dögunum. Steig þá Gylfi
Magnússon á stokk,
föndraði fínar tölur og
sakaði mig um ásetning
til útúrsnúnings. Einu út-
úrsnúningarnir voru þó
hans slaufukennda töl-
fræði og sérbökuðu stað-
reyndir. Hann skautaði
að fullu framhjá umræðu-
efninu – arðgreiðslum
sem ekki uppfylltu tilsett
skilyrði. Hann var auðvit-
að í varnarstöðu. Hann er
einn þeirra sem tóku
ákvörðunina á sínum
tíma.
Í kjölfar hrunsins réðust flest fyr-
irtæki landsins í aðgerðir til að rétta
reksturinn. Þar var Orkuveitan ekki
undanskilin. Orkuveitan bjó hins veg-
ar við þann munað – ólíkt öðrum fyr-
irtækjum – að geta velt stórum hluta
sinna rekstrarvandræða yfir á borg-
arbúa. Þannig hækkaði fyrirtæki í
einokunarstöðu gjaldskrár á versta
tíma fyrir sína viðskiptavini. Með
einu pennastriki. Samhliða var slegið
lán hjá borgarsjóði, sem auðvitað er
fjármagnaður af skattgreiðendum.
Nauðsynlegum innviðafjárfestingum
var frestað. Allar bitnuðu ráðstaf-
anirnar á borgarbúum.
Nú hefur rekstur Orkuveitunnar
náð betra jafnvægi. Myndi maður
þá ætla að borgarbúar nytu ágóð-
ans, en aldeilis ekki. Ávinninginn af
árangrinum ætlar núverandi meiri-
hluti í borgarstjórn að setja lóðbeint
í bauk borgarsjóðs. Áform standa til
ríflega 14 milljarða arðgreiðslna til
borgarinnar næstu sex árin. Tak-
mörkuð áform standa til gjald-
skrárlækkana. Þetta er kunnuglegt
stef hjá stjórnmálafólki – kunn-
uglegur freistnivandi meirihlutans –
engum er betur treystandi fyrir
peningum en kjörnum fulltrúum.
Ég aðhyllist ekki sama stef. Ég tel
engum betur treystandi fyrir fjár-
munum en einmitt þeim sem afla
þeirra. Borgarbúum.
Rekstrarárangur Orkuveitunnar á
mun fremur að renna beint til rétti-
legra eigenda Orkuveitunnar –
borgarbúa – með lækkun gjald-
skrár. Það er ekki lögmál að skattar
og gjöld geti eingöngu hækkað en
aldrei lækkað.
Borgarstjóri innheimtir nú þegar
hæsta lögleyfða útsvar, hefur skuld-
sett borgina upp í rjáfur, innheimtir
fasteignagjöld sem valda smærri
fyrirtækjum verulegum vandræðum
og eyðir því sem aflögu er í gælu-
verkefni. Afrakstur þessara sömu
gæluverkefna er svo færður einka-
aðilum undir markaðsverði. Sam-
hliða setur borgarstjóri arðgreiðslu-
kröfur á Orkuveituna – og
skuldsetur svo fyrirtækið fyrir æv-
intýrinu. Allt á kostnað borgarbúa.
Auðvitað eru arðgreiðslur til eig-
enda í góðu árferði sjálfsagðar og
eðlilegar í hefðbundnum fyrirtækja-
rekstri. Orkuveitan er þó annars
eðlis – hún er orkufyrirtæki í al-
mannaeigu. Kjarnahlutverk hennar
er að veita góða þjónustu á hag-
stæðu verði. Á næsta borgarstjórn-
arfundi mun ég leggja til að horfið
verði frá arðgreiðsluáformum og
þjónustugjöld lækkuð til samræmis.
Óþarflega háar gjaldskrár sem leiða
til arðgreiðslna í hendur stjórnmála-
manna eru ekkert annað en dulbúin
skattheimta á borgarbúa.
Eftir Hildi
Björnsdóttur »Óþarflega háar gjald-
skrár sem leiða til arð-
greiðslna í hendur stjórn-
málamanna eru ekkert
annað en dulbúin skatt-
heimta á borgarbúa.
Hildur
Björnsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
hildurb@reykjavik.is
Dulbúin skattheimta
Það sagði mér mað-
ur, afar áreiðanlegur
og traustur, sannorður
og einlægur, virtist vel
tengdur inn í Samfylk-
inguna á dögum R-
listans, 1998 eða 1999,
að eftirfarandi formúla
við gerð reikninga til
Reykjavíkurborgar
væri vel liðin og nyti
velþóknunar:
1. Þú finnur út eðli-
legt verð sem þú myndir rukka vin
þinn.
2. Þú tvöfaldar þá
upphæð.
3. Þú bætir við einu
núlli.
Þannig væri sem
dæmi 100.000 kr. eðli-
legt verð sem viðkom-
andi tvöfaldar upp í
200.000 kr. og sendir
síðan reikning upp á
2.000.000 kr. sem gjald-
keri greiðir út innan
þriggja mánaða. Innan
mánaðar ef sendandinn
veit í hvaða embætt-
ismenn er áhrifaríkast
að hringja. Innan viku ef hann er
„vel tengdur“ eins og það kvað kall-
ast. Samdægurs, segir sagan, þegar
um er að ræða „afar sterkt tengsl-
anet“ en það mun sjaldgæft.
Það er því engin furða að fjármál
höfuðborgarinnar, í höndum þessa
gerspillta vinstraliðs, skuli vera í
miklum ólestri. Þessi eitraða form-
úla sem viðgengist hefur allt of lengi
innan borgarkerfisins er að eyði-
leggja þjóðfélagið innan frá. Lygar
og svik eru það sem þetta byggist á
og getur aldrei endað vel.
Eftir höfðinu dansa limirnir segir
máltækið og þegar dansstjórinn er
brosmilt glæsimenni, þá dunar hann
af áfergju; allt er leyfilegt að draga
fram í dagsljósið, jafnvel dönsk
grasstrá. Borgarstjórinn lítur mildi-
lega allt þetta bruðl og útgjöld, virð-
ist hreinlega vinna gegn borginni og
þar með þjóðinni allri. Þrátt fyrir
skrifleg mótmæli tuga þúsunda Ís-
lendinga réðst hann gegn Reykja-
víkurflugvelli og byrjaði á því að
loka sjálfri neyðarflugbrautinni –
þeirri einu á suðvesturhorninu við
vissar aðstæður.
Stefna Dags B. Eggertssonar og
hans liðs; þrengingar umferðaræða,
þétting byggðar og fækkun bíla-
stæða í miðborginni, „borgarlínan“
og núna síðast „Miklabraut í stokk“,
er bersýnilega afleiðing hroðalegs
misskilnings og þröngsýni.
Ekki er unnt að spá fallega fyrir
svo skammsýnum borgarstjóra. Það
segir í ævafornum sútrum, helgirit-
um trúarbragða sem eru sýnu eldri
en þau sem við best þekkjum flest –
og þó taka undir: Karma. Eins og
maðurinn sáir, þannig mun hann
uppskera. Orsök og afleiðing. Ekki
alltaf í sömu jarðvist, því fólk fæðist
líf eftir líf í eilífðinni og lærir í hverri
jarðvist.
Eina leið umrædds manns, að ég
held, til ásættanlegs lífsástands, er
einlæg iðrun. Og upplausn þessa
skelfilega meirihluta sem mergsýg-
ur borgarsjóð og hann ber ábyrgð á.
Eftir Pál Pálmar
Daníelsson
Páll Pálmar
Daníelsson
» Það er því engin
furða að fjármál
höfuðborgarinnar, í
höndum þessa gerspillta
vinstraliðs, skuli vera
í miklum ólestri.
Höfundur er leigubílstjóri.
Eitruð formúla of margra