Morgunblaðið - 15.11.2018, Side 48
Morgunblaðið/Eggert
Marta María
mm@mbl.is
„Viðskiptavinir mínir höfðu samband
við mig með algjöra endurnýjun á
eldhúsinu í huga. Gamla eldhúsið var
búið að þjóna þessu húsi í Vest-
urbænum í áratugi, það var orðið slit-
ið og lítil nýting á skápaplássi. Ég
byrjaði á því að spjalla lengi við þau
um eldhúsdraumana og fljótlega var
ákveðið að sníða útlitið að dálæti
heimilisföðurins á tiltekinni eldavél
og heimilismóðurinnar á ítölskum
ekta marmara. Verkefnið var dálítinn
tíma í þróun en að lokum fórum við af
stað með mjög mótaða leið sem við
vorum öll hæstánægð með,“ segir
Sesselja.
Aðspurð hvaða stíl hún vildi fram-
kalla segir hún að eigendur hafi verið
með ákveðnar hugmyndir og þetta
hafi verið samsuða af nokkrum stílum.
„Þar sem ég reyni alltaf að inn-
rétta með þarfir og ákveðna stemn-
ingu í huga mætti nú kalla þetta eld-
hús samsuðu af nokkrum stílum. Ég
tók smá shaker, smá Ítalíu og smá
scandic og hrærði því saman í skál.
Þrátt fyrir að eldhúsið sé í minna
lagi held ég að það sé mjög gaman að
töfra saman geggjaða rétti í þessu
rými, með kertaljósum, hvítlauks-
lykt og Ellu Fitzgerald í botni eða
það var allavega fyrirmyndin hjá
mér. Ég get ekki sagt að þetta til-
tekna eldhús sé samt ekta Fix-
eldhús því þau eru ótrúlega ólík
verkin sem ég hef gert.“
Innréttingin í eldhúsinu kemur frá
Parka en marmarinn í eldhúsinu úr
Figaro.
„Ég lagði mikla áherslu á stemn-
ingu í þessu tiltekna eldhúsi. Miklir
kontrastar á gólfefnum og borðplötu
á móti dökkum innréttingum voru
lykilatriði hér. Þau eru mörg í heimili
sem fá sér kaffi og kornflex á morgn-
ana og því fannst okkur sérsmíðaður
bekkur inn í hornið líka lykilatriði.
Suðulist og Zenus gerðu bekkinn fyr-
ir mig og Sóló húsgögn smíðuðu borð-
ið. Til að allir þættir spiluðu rétt sam-
an í þessu eldhúsi var nauðsynlegt að
tefla fram miklum andstæðum og
hafa þyngri innréttingar öðrum meg-
in í eldhúsinu og léttara yfir hinum
megin. Því faldi ég viftuna inni í
kassa, teiknaði opnar hillur með
skápum og lét lofta dálítið um líka.
Blái tónninn á veggjunum er bæði til
að „kæla“ niður rýmið en einnig til
þess að skápar og innréttingar falli
betur að formi rýmisins,“ segir Sess-
elja.
Eru eldhús landsmanna að breyt-
ast?
„Mér finnst viðhorf almennings til
eldhússins fyrst og fremst vera að
breytast. Þau eru persónulegri. Það
hentar ekkert öllum það sem er í
tísku hverju sinni, þess vegna er allt-
af betra að hanna út frá persónuleika
viðskiptavinarins, því hann verður
alltaf til staðar en tískan breytist.“
Hvað vill fólk núna sem það vildi
ekki áður?
„Ég get auðvitað aðeins talað út frá
sjálfri mér og mínum viðskiptavinum.
Mér finnst fyrst og fremst að per-
sónulegur stíll sé að koma miklu bet-
ur fram. Fólk er ekki jafn hrætt við
að hafa innréttingar öðruvísi, í litum
jafnvel, og mér finnst viðskiptavinir
mínir opnari fyrir áhættu og húmor.
Og ég er auðvitað í skýjunum með
það!“
Rýmið nýtt
til fulls
Sesselja Thorberg, innanhússhönnuður og eigandi
Fröken Fix, hannaði eldhús fyrir fjölskyldu í Reykja-
vík. Hún segir að eldhúsið sé blanda af nokkrum
þáttum. Þar mætast dökkir skápar og marmari og
áherslan er lögð á persónulegan stíl.
Eldhúskrókur Í eldhús-
inu er sérsmíðaður bekk-
ur til að sem flestir kom-
ist fyrir í þessu horni.
Vel skipulagt Marm-
arinn á borðplötunum
kemur frá Figaro en inn-
réttingin er frá Parka.
Fröken Fix
Sesselja
Thorberg
er innan-
hússhönn-
uður.
Gott skápapláss
Fröken Fix gætti
þess að nóg væri
af skápaplássi.
Öðruvísi hillur
Eldhúsinnréttingin
er í tveimur litum.
Stemning
Til að búa til
góðan mat er
nauðsynlegt
að nota ólífu-
olíu og edik.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta
Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda
og hagræða málin fyrir húsfélög
Traust - Samstaða - Hagkvæmni
eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005
Ráðgjöf
Veitum faglega ráðgjöf
til húsfélaga
Bókhald
Höfum umsjón með
bókhaldi fyrir húsfélög
Þjónusta
Veitum persónulega þjónustu
sem er sérsniðin að hverju
og einu húsfélagi