Morgunblaðið - 15.11.2018, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
Lífstíðarábyrgð
Allar Canada Goose dúnúlpur eru framleiddar úr bestu
fáanlegu hráefnum á vistvænan hátt. Okkar verð er
sambærilegt eða betra en í flestum öðrum löndum.
CANADA GOOSE FÆST Í NORDIC STORE LÆKJARGÖTU
www.nordicstore.is
Opið kl . 9 -22 alla daga
C
a
n
a
d
a
G
o
o
se
L
a
n
g
fo
rd
P
a
rk
a
k
r.
11
9
.9
9
0
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Guðrún Sóley er þekkt fyrir að vera
yfirmáta sjarmerandi og hnyttin og
eitt það fyrsta sem hún tilkynnir
mér þegar við setjumst niður er að
þetta sé ekkert meinlæta megr-
unarfóður sem boðið sé upp á í bók-
inni. Um sé að ræða uppskriftir sem
séu hver ann-
arri girni-
legri enda
fráleitt að
gefa ein-
hvern afslátt
af gæðunum
þó að engar
dýraafurðir
séu í þeim.
Það sé hróp-
andi þversögn og algjörlega fjar-
stæðukennt.
Það verður að vera eitthvað
stökkt í matnum, segir Guðrún með-
an við flettum í gegnum bókina og
ég dáist að hugkvæmninni eins og
að kalla beikon feikon. Ég velti
þessu fyrir mér, var ekki viss hvort
við ættum að kalla þetta veikon eða
feikon, en svo varð feikon fyrir val-
inu, segir Guðrún enda er feikon
klárlega feik beikon. Ergo: feikon.
Selskapsdrottningin sem
elskar að halda matarboð
Guðrún segir að ástríða hennar
gagnvart mat sé aðallega tilkomin
vegna þess að henni þyki svo gaman
að halda matarboð. Það sé fátt
skemmtilegra en að breiða út
skrautfjaðrirnar og halda svo mikið
sem eina góða veislu þar sem boðið
sé upp á góðan mat. Hennar mat-
arboð séu vitanlega vegan en af
hverju ætti það að breyta einhverju?
Spurð um ástæður þess að hún
sneiði alfarið hjá dýraafurðum þá sé
það aðallega af dýraverndunar-
ástæðum.
Hún hafi upphaflega gerst græn-
metisæta og fikrað sig yfir í veg-
anismann sem sé mjög algengt ferli
hjá fólki. Kostirnir séu mýmargir en
fyrst og fremst líði henni afskaplega
vel á líkama og sál, fái alla þá nær-
ingu sem hún þurfi og geti borðað
eins mikið og hún vilji auk þess sem
enginn hafi dáið til að komast á disk-
inn hennar.
Nauðsynleg bók fyrir grænkera
Í bókinni fer Guðrún Sóley gaum-
gæfilega yfir fyrstu skrefin, hvað sé
nauðsynlegt að eiga alltaf í búrinu
og býður lesendum sínum mjög ein-
læga handleiðslu í gegnum heim
grænkera sem í huga margra er
ansi hreint flókinn og skrítinn. En
hér er ekkert skrítið á ferð. Ímyndið
ykkur besta meðlæti í heimi og það
er nákvæmlega það sem við erum að
tala um. Einföldunin er algjörlega
komin frá blaðamanni en Guðrún
Sóley tekur undir með mér þegar ég
játa að mér þyki yfirleitt meðlætið
best.
Vegan-matur á það til að hljóma
undarlega í eyrum þeirra sem til
þekkja; sætkartöflusúkkulaðikaka
og fleira í þeim dúr. Eitthvað sem er
hreint ekki rökrétt. En hér erum við
að kljást við viðjar vanans. Það eitt
að gera marengs úr kjúklingabauna-
safa sýnir hversu mögnuð fæðan
okkar er og hvað hægt er að gera.
Aðalatriðið er að allir hafi frjálst val
til að velja og að valmöguleikarnir
séu aðgengilegir og einfaldaðir. Og
það er akkúrat það sem Guðrún ger-
ir í bókinni sem spannar alla flokka.
Allt frá einföldum morgunmat upp í
flóknari rétti og jafnvel kokteila.
Kærleikskrásir
Hér er ekkert til sparað og það
sem meira er; bókin er svo falleg.
Það er Rut Sigurðardóttir sem tók
myndirnar en hún hefur fyrir löngu
skipað sér á bekk sem einn fremsti
ljósmyndari landsins. Guðrún segir
að vinnuferlið hafi ekki verið neitt til
að grínast með. Hún hafi verið vökn-
uð fyrir allar aldir til að hefja und-
irbúning, Rut hafi síðan komið
skömmu síðar og svo hafi verið
myndað fram eftir degi og oft langt
fram á kvöld. Þetta hafi verið ein-
staklega krefjandi tímabil en um
leið óskaplega skemmtilegt, gefandi
og nærandi í alla staði. Það fór mikil
ást í þessa bók og alla matargerðina
sem í henni birtist. Það skiptir máli,
segir hún og við erum sammála um
það. Maturinn á að næra bæði lík-
ama og sál.
Matarást
alla leið
Á dögunum kom út bókin Grænkerakrásir Guð-
rúnar Sóleyjar vegan-uppskriftir fyrir mannúðleg
matargöt eftir fjölmiðlakonuna Guðrúnu Sóleyju
Gestsdóttur. Bókin kemur eins og kölluð enda hefur
áhugi á girnilegu grænkerafóðri aldrei verið meiri
auk þess sem bókin kemur sterk inn í matarbóka-
senuna sem fyrsta íslenska bók sinnar tegundar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gourmet grallari
Guðrún Sóley er
mörgum afbragðs
kostum prýdd og
einn þeirra eru af-
burða eldhúsgreind.
Þessi mexíkóska dásemd er fyrir
löngu búin að smeygja sér inn í ís-
lenska matarmenningu og er
reglulegur gestur á borðum
landsmanna. Ég hef enn ekki hitt
manneskju sem ekki kann að
meta taco enda er endalaust hægt
að leika sér með samsetningar og
sósur. Taco (og burrito) hentar af-
burðavel í grænmetiselda-
mennsku enda byggjast upp-
skriftir mikið á guacamole,
baunum og salsa.
Í bókinni eru uppskriftir að
nokkrum óvenjulegum tilbrigðum
við taco, hvet ykkur til að prófa!
Mjúkar taco-skeljar:
½ dl ólífuolía
1 tsk. sjávarsalt
1 tsk. vínsteinslyftiduft
3½ dl hveiti
2 dl volgt vatn
Aðferð: Blandið saman á litlum
hraða í hrærivél. Fletjið út með
kökukefli í litlar kökur. Kælið í
um 10 mínútur. Hitið á meðan olíu
á pönnu. Takið kökurnar úr kæli
og steikið þar til þær taka á sig
gullinbrúnan lit, í um það bil 5-7
mínútur á hvorri hlið.
Portobello- og sætkartöflutaco
1 portobellosveppur
Kryddlögur:
1 dl ólífuolía
2 msk. tamari- eða sojasósa
1 hvítlauksgeiri
1 msk. balsamikgljái/síróp
1 msk. vegan-worcestershiresósa
1 sæt kartafla
1 msk. ólífuolía
paprikukrydd
salt
pipar
kanill á hnífsoddi
kóríander, ferskt
guacamole (hægt að kaupa tilbúið
eða blanda saman stöppuðu avó-
kadói, rauðu chili, söxuðum lauk og
kóríander, sítrónu, salti og pipar)
salsasósa
Aðferð: Blandið kryddlöginn í
skál. Skerið portobellosveppinn í
sneiðar og veltið vandlega upp úr
blöndunni. Látið marinerast í
hálftíma.
Hitið ofninn í 200°C. Skerið
sætu kartöfluna í teninga og velt-
ið bitunum upp úr blöndu af ólífu-
olíu, paprikukryddi, kanil, salti
og pipar. Setjið í ofnskúffu og
bakið í 14-16 mínútur.
Veiðið sveppi upp úr mariner-
ingu og steikið á pönnu við miðl-
ungshita. Bætið örlitlu af mar-
ineringunni við og steikið í 8-10
mínútur þar til sveppirnir eru
mjúkir. Takið af pönnu og sigtið
vökva frá.
Deilið sætkartöfluteningum og
sveppum í taco og bætið guaca-
mole, salsasósu og ferskum kórí-
ander við.
Taco