Morgunblaðið - 15.11.2018, Síða 55
MINNINGAR 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
✝ Geir Sigurðs-son fæddist á
Patreksfirði 5. októ-
ber 1966. Hann lést
í Stokkhólmi 24.
október 2018.
Foreldrar Geirs
voru hjónin Ágústa
Kristín Þorvalds-
dóttir, f. 5. ágúst
1935 í Kirkju-
landshjáleigu í A-Landeyjum, d.
12. október 2008, og Sigurður
Jóhannes Þórðarson frá Patreks-
firði, f. 7. mars 1933, d. 20. ágúst
1998.
Geir átti fjögur systkini, þau
eru: Ólína Þórunn, f. 11.6. 1961,
maki Friðrik Kristjánsson og
eiga þau fjögur börn; Ástþór, f.
22.2. 1963, maki Helga Odds-
dóttir; Ómar Freyr,
f. 16.2. 1964, d. 6.5.
2017; Einar Mar-
teinn, f. 23.9. 1972.
Eftirlifandi eigin-
kona Geirs er Berg-
lind Elfarsdóttir, f.
8.1. 1970, foreldrar
hennar eru Guð-
björg Guðjóns-
dóttir, f. 30.8. 1951,
og Guðsteinn Elfar Helgason, f.
8.2. 1948, d. 17.12. 2016. Uppeld-
isfaðir Berglindar er Stefán Þór-
isson, f. 21.8. 1946. Synir Geirs
og Berglindar eru: 1) Ágúst
Guðni, f. 10.10. 1991, í sambúð
með Oddrúnu Önnu Róberts-
dóttur, f. 26.5. 1993. Börn Ágúst-
ar Guðna eru Breki, f. 6.9. 2009,
og Kamilla Rut, f. 24.9. 2015. 2)
Geir Aron, f. 28.10. 1992. Dóttir
hans er Amelía Ósk, f. 19.3. 2015.
Geir ólst upp til fimm ára ald-
urs á Patreksfirði en þá flutti
fjölskyldan til Reykjavíkur.
Hann kláraði grunnskólagöngu í
Austurbæjarskóla og stundaði
iðnnám við Iðnskólann í Reykja-
vík. Lengst af bjó fjölskyldan í
Stífluseli 5, Reykjavík.
Geir og Berglind hófu búskap
1990 á Njálsgötu í Reykjavík en
fluttu fljótlega til Hafnarfjarðar
og hafa búið þar að mestu síðan.
Geir hóf störf hjá Vatnsveitu
Reykjavíkur 1984 og starfaði þar
með litlum hléum til ársins 1997.
Þá hóf hann sjálfstæðan rekstur
sem hann hefur starfað við síðan
og í félagi við syni sína síðustu
árin.
Útför Geirs fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 15.
nóvember 2018, og hefst athöfn-
in klukkan 15.
Elsku hjartans ástin mín.
Hjartað mitt er brotið í þúsund
mola.
Í um 30 ár höfum við tekist á
við lífið og tilveruna saman.
Byrjuðum að búa saman rúm-
lega tvítug. Svo komu strákarnir
okkar í kjölfarið, fæddir 1991 og
1992.
Við giftum okkur 1994 og vor-
um búin að ákveða að fagna 25 ára
brúðkaupsafmæli okkar á sólar-
strönd með afkomendunum á
næsta ári.
Við erum svo lánsöm að hafa
eignast tvo frábæra stráka, þeir
hafa gefið okkur þrjú barnabörn.
Þau sakna þín mikið, eins og við
öll, en börn voru í sérstöku dálæti
hjá þér.
Þú vildir kynnast þeim öllum,
knúsa og stríða smá. Enda varstu
kallaður afi Geiri af mörgum
þeirra.
Þú vildir allt fyrir alla gera og
þoldir illa ef þú sást einhvern
beittan órétti.
Þú hélst fast utan um hópinn
þinn og vildir alltaf vita hvar allir
væru. Strákunum okkar fannst
það nú fullmikið af því góða stund-
um þegar þeir voru að fá þriðja
eða fjórða símtalið á deginum.
Þið voruð nánir feðgarnir, enda
er erfitt hjá þeim núna þegar þeir
fá ekki daglegu símtölin frá
pabba.
Skrápurinn var harður, en
hjartað viðkvæmt, en það fengu
fáir að sjá.
Sorgin og söknuðurinn er mik-
ill, en hjarta mitt er fullt af þakk-
læti.
Takk fyrir að elska mig og bera
mig á höndum þér.
Takk fyrir að gefa mér okkar
frábæru stráka sem halda núna
fast utan um mömmu sína.
Takk fyrir að vera besti eigin-
maður, pabbi og afi sem hægt er
að hugsa sér. Hafðu ekki áhyggj-
ur elsku hjartað mitt, ég vinn í
því að ná brotna hjartanu mínu
til baka, drengirnir okkar
styrkja, vernda og passa mömmu
sína. Ég held utan um hópinn
okkar eins og ungamamma.
Ég elska þig og sakna þín svo
mikið, og ég veit að við samein-
umst á ný í Sumarlandinu.
Við gengum tvö, við gengum tvö
í rökkurró,
við leiddumst hljóð, við leiddumst
hljóð
um ungan skóg.
Þú varst yndi, þú varst yndi
og ástin mín,
og stundin áfeng, stundin áfeng
eins og vín.
Við hlýddum tvö, við hlýddum tvö
í húmi ein,
er blærinn kvað, er blærinn kvað
við blöð og grein.
Ég var nóttin, ég var nóttin
þögla þín,
og þú varst eina, þú varst eina
stjarnan mín.
Á meðan norðurljósin leiftra
um bláan himininn,
þá sit ég ein og þrái
kveðjukossinn þinn.
(Friðrik Jónsson)
Ástarkveðja.
Þín
Berglind.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
Þú þreyttur varst orðinn og þrekið
smátt,
um þrautir og baráttu ræddir fátt
og kveiðst ekki komandi degi.
(Hugrún)
Takk fyrir allt, elsku pabbi.
Geir Aron, Ágúst Guðni og
Oddrún Anna.
Í dag fylgjum við kærum mági
okkar Geir hinstu sporin.
Berglind systir okkar kynnti
Geira inn í fjölskylduna þegar við
vorum litlar stelpur. Missir henn-
ar er mikill eftir langa samveru,
en þau Geiri kynntust ung að
árum og hafa alla tíð verið mjög
samrýnd. Við skyndilegt fráfall
hans, langt fyrir aldur fram, leitar
hugurinn til baka. Stundir á
Njálsgötunni sem litlar stelpur
þar sem var alltaf gaman að vera í
pössun því maður fékk að fara í
sjoppu á neðstu hæðinni og kaupa
nammi. Ferðir í appelsínugula
Volvo og hvíta Skoda sem létu að-
eins í sér heyra. Bubbi í plötuspil-
aranum. Við, 12 og 14 ára, að
barma okkur yfir móðursystur-
titlinum sem var svo ellilegur að
okkar mati. Það skyggði þó ekki á
gleðina og spennuna að fá tvo litla
frændur í fjölskylduna með árs
millibili. Brúðkaup þeirra hjóna
þar sem við unglingarnir vorum
brúðarmeyjar í bleikum kjólum
með stórum slaufum, blómabúðin
á Skólavörðustígnum, heimsóknir
og fjörugar umræður í eldhúsinu
hjá þeim hjónum eru bara hluti
þeirra minninga sem koma upp í
hugann á kveðjustund.
Geiri var hörkuduglegur í
vinnu alla tíð. Hann var handlag-
inn og listrænn. Þá hlið fengum
við að sjá þegar hann fór að smíða
fallega kertastjaka fyrir fjölskyld-
una og í blómabúðinni þeirra, þar
sem hann var enginn eftirbátur
listrænu systur okkar í blóma-
skreytingum. Geiri var mikill
tækjakall og duglegur að bæta í
safnið. Hvort sem það var ný
grafa, bíll eða bátur var hann allt-
af eitthvað að gera við og græja.
Geiri var ekki mikið fyrir marg-
menni eða stórar veislur en það
voru ávallt líflegar umræður þeg-
ar maður kom í heimsókn og
Geira þótti fátt skemmtilegra en
að vera ósammála manni og að
stríða manni örlítið. Hann bar
ávallt hag manns fyrir brjósti og
var áhugasamur um að vel gengi.
Geiri var barngóður mjög, góður
faðir og naut þess að umgangast
barnabörnin sín.
Við þökkum Geira fyrir sam-
fylgdina með orðum Bubba
Morthens.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
Elsku Begga, Ágúst Guðni,
Geir Aron og fjölskyldur, missir
ykkar er mikill. Við biðjum Guð og
góðar vættir að styðja ykkur í
sorginni og vottum ykkur okkar
dýpstu samúð. Megi minningarn-
ar ylja og lifa í hjörtum okkar allra
um ókomna tíð.
Hulda, Rannveig og
fjölskyldur.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Presthólum)
Við elskum þig, afi.
Breki, Amelía Ósk og
Kamilla Rut.
Geir Sigurðsson
✝ Loftur ÞórSigurjónsson
fæddist í Reykjavík
31. janúar 1939.
Hann lést 4.
nóvember 2018 á
Landspítalanum í
Fossvogi.
Foreldrar hans
voru Guðjóna
Loftsdóttir sauma-
kona, f. 5. febrúar
1909, d. 6. febrúar
1995, og Henry Hank Morrison,
kanadískur tónlistarmaður.
Loftur var ættleiddur af móður-
systur sinni, Sigríði Sóleyju
Loftsdóttur húsmóður, f. 25.7.
1906, d. 9. ágúst 1994, og manni
hennar, Sigurjóni Péturssyni
ágúst 1968, börn þeirra eru a)
Þórunn Edda, f. 2. júlí 1990, m.
Hannes Þór Arason, f. 3. októ-
ber 1990, b) Halldór Hrafnkell,
f. 16. september 1999, c) Katla
f. 19. september 2011. 2) Kjart-
an Þór, viðskiptafræðingur, f.
2. ágúst 1970, m. Hulda Sigrún
Bjarnadóttir rithöfundur, f. 2.
febrúar 1971, dætur þeirra eru
a) Sólrún Harpa, f. 8. maí 2008,
b) Hekla Særún, f. 20. október
2011. Núverandi eiginmaður
Þórunnar er Leifur Magnússon
bifreiðastjóri, f. 9. október
1938.
Loftur gekk í Melaskóla,
Gagnfræðaskólann við Hring-
braut og Vesturbæjarskóla við
Öldugötu.
Hann starfaði m.a. hjá Ræsi
hf., Sveini Egilssyni hf., Heild-
versluninni Eddu og Seðla-
banka Íslands.
Útför Lofts fer fram frá
Fossvogskapellu í dag, 15.
nóvember 2018, klukkan 11.
framkvæmda-
stjóra, f. 15. júlí
1905, d. 1. október
1952, en Sigurjón
lést óvænt áður en
ættleiðingin gekk í
gegn og varð hann
því löglega sonur
Sigríðar með leyfi
til að vera skráður
Sigurjónsson.
Systir Lofts er Þór-
unn Edda Sigur-
jónsdóttir bókari, f. 29. maí
1941. Synir hennar með fyrri
eiginmanni, Halldóri K. Kjart-
anssyni, f. 8. júlí 1943 (skildu),
eru: 1) Sigurjón, tæknimaður, f.
24. maí 1966, m. Gunnlaug
Thorlacius félagsráðgjafi, f. 15.
Loftur frændi minn átti stór-
an þátt í uppeldi mínu en hann
bjó ásamt ömmu minni og
ömmusystrum á Víðimel 47. Ég
var mikið hjá þeim og má segja
að þar hafi verið mitt annað
heimili. Hann var 27 ára þegar
ég fæddist og mér er sagt að
hann hafi ekki séð sólina fyrir
litla drengnum sem kominn var
í fjölskylduna. Hann leiddi mig
mín fyrstu spor sem þróaðist út
í lengri göngutúra sem urðu síð-
ar fastir liðir hjá okkur frænd-
unum þegar ég var á Viðimeln-
um en ég sótti í að vera þar
allar helgar og þegar ég átti frí.
Áður en skólaganga mín hófst
dvaldi ég þar virka daga á með-
an foreldrar mínir voru í vinnu.
Ég beið alltaf spenntur eftir því
að klukkan yrði fimm og Loftur
kæmi heim úr vinnunni en iðu-
lega var hann með pakka handa
mér sem innihélt bíl eða eitt-
hvað spennandi sem hann hafði
keypt á heimleiðinni. Það má því
segja að hann hafi ofdekrað mig
frá því að ég fæddist. Foreldrar
mínir reyndu að útskýra fyrir
mér að það væri ekki eðlilegt að
fá gjafir á hverjum degi en gjaf-
mildi Lofts var engu lík. Hann
var mikill tónlistarunnandi og
djassgeggjari, fræddi mig um
sögu blús og djass, enda vel að
sér í þeim fræðum, og því má
segja að hann hafi mótað minn
tónlistarsmekk. Hann bauð mér
á fjölda tónleika með þekktum
djasstónlistarmönnum og kjall-
araherbergið sem hann bjó í var
mér sem ævintýraheimur. Þar
voru stæður af hljómplötum,
bókum og gömlum tímaritum
sem við gleymdum okkur í og
eyddum mörgum stundum í að
hlusta á og grúska í tónlist. Þeg-
ar vel lá á honum greip hann
stundum í melódíku og spilaði
með. Loftur var einstaklega
góður og hrekklaus maður og
reyndist mér og mínum alltaf
vel. Hann veiktist alvarlega sem
barn og þau veikindi höfðu tals-
verð áhrif á líf hans og í raun
var hann nær mér í þroska en
árin sögðu til um þegar ég var
barn. Börnin mín eiga að sama
skapi margar góðar minningar
tengdar Lofti frænda sínum.
Hann var vel lesinn og vissi
margt en sökum þess hvað hann
var bernskur náði hann vel til
þeirra. Hann lifði einföldu lífi,
stundaði vinnu sína af samvisku-
semi og leysti vel þau verkefni
sem hann réð við. Hann átti að
einhverju leyti erfitt með að lesa
í aðstæður og því miður varð ég
stundum vitni að því að fólk
nýtti sér góðmennsku hans. Í
seinni tíð fækkaði samveru-
stundum okkar og samskiptin
fóru meira fram í síma en við
áttum góð tengsl og það var allt-
af gott að hitta hann. Ég á eftir
að sakna Lofts og vil þakka hon-
um hans framlag, blessuð sé
minning hans.
Sigurjón Halldórsson.
Í lagskiptu skipulagi stofnana
erum við öll sendlar sem fara
eftir skipunum, lagaákvæðum,
ákvörðunum, sjónarmiðum eða
öðru sem starfinu stýrir. Loftur
Þór Sigurjónsson var hins vegar
sendill Seðlabanka Íslands með
stóru S-i um áratuga skeið.
Hann kom upplýsingum um
gengi krónunnar á réttan stað á
pappírsformi svo gangur efna-
hagslífsins héldist eðlilegur,
upplýsingum til fjármálafyrir-
tækja um þá vexti sem áttu að
miðlast um hagkerfið og öðrum
þeim upplýsingum sem nauðsyn-
legt var fyrir Seðlabankann að
senda frá sér.
Þessu starfi sinnti Loftur af
alúð og festu og var aldrei kall-
aður annað en Loftur póstur í
bankanum. Hann var hvers
manns hugljúfi, kátur, hress og
greiðvikinn. Í tómstundum var
hann mikill tónlistaráhugamaður
og miðlaði af þeim áhuga sínum
meðal starfsmanna.
Það var svo undarleg tilviljun
að um það leyti sem Loftur var
að hætta störfum tók við ný
tækni sem gerði starf hans að
nokkru leyti óþarft, þ.e. bréfa-
sendingar í tölvupósti og þess
háttar tækni.
Loftur hóf störf í Seðlabank-
anum 1. október 1974 og var
fastráðinn í ársbyrjun 1976.
Hann sinnti alla tíð sendlastörf-
um á rekstrarsviði bankans og
lét af störfum 31. janúar 2004.
Starfsmenn Seðlabankans
minnast Lofts með mikilli hlýju
og þakklæti fyrir öll árin sem
við áttum saman. Blessuð sé
minning hans.
Stefán Jóhann Stefánsson.
Ég kveð hann Loft, minn
góða félaga úr Melaskólanum og
ævivin. Við Loftur vorum saman
í bekk í Melaskólanum og lukum
barnaskólaprófi vorið 1952. Síð-
ar á lífsleiðinni unnum við í
sömu stofnun, hjá Seðlabankan-
um. Loftur var þar sendill og ég
hygg ég geti talað fyrir alla sem
með honum unnu að hann var
hvers manns hugljúfi, vildi öll-
um gott gera og lét aldrei æðru-
orð falla sér úr munni.
Nú, þegar Loftur er horfinn
til nýrra heima óska ég honum
velfarnaðar á þeirri leið sem
hann hefur nú lagt út á. Við sem
eftir sitjum erum minnug þess
að hlýja hans og vinátta verður
okkur áfram góð fyrirmynd.
Björn Matthíasson.
Loftur Þór
Sigurjónsson Faðir minn, tengdafaðir og afi,ÞÓRÐUR JÓNSSON,
málara- og netagerðarmeistari
frá Akranesi,
Dalbraut 27, Reykjavík,
lést mánudaginn 29. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Jón S. Þórðarson Ragnheiður Aradóttir
og börn
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug og vináttu við andlát og útför
elskulegs föður, tengdaföður, afa og
langafa okkar,
BJARNA SIGHVATSSONAR
frá Ási, Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða
og Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum fyrir hlýja og
góða umönnun.
Sigurlaug Bjarnadóttir Páll Sveinsson
Guðmunda Á. Bjarnadóttir Viðar Elíasson
Sighvatur Bjarnason Ragnhildur S. Gottskálksdóttir
Ingibjörg R. Bjarnadóttir Halldór Arnarson
Hinrik Örn Bjarnason Anna Jónína Sævarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar innilegustu þakkir færum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu
og hlýhug við fráfall okkar ástkæra
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
GUNNARS BRYNJÓLFSSONAR
framkvæmdastjóra Verkfæralagersins,
Kríuhólum 4, Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 23. september á Tenerife.
Sérstakar þakkir færum við öllum þeim sem önnuðust hann í
veikindum á undanförnum árum.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Brynjólfur Gunnarsson Ásta Bjarnadóttir
Tómas Haraldsson Selma Smáradóttir
Móeiður Tómasdóttir
Sara Brynjólfsdóttir Alma Brynjólfsdóttir