Morgunblaðið - 15.11.2018, Síða 57

Morgunblaðið - 15.11.2018, Síða 57
stofnunarinnar 2013. Hann var for- seti Íslendingafélagsins í New York 1980-85, stjórnarmaður Íslensk- ameríska verslunarráðsins í rúm 20 ár og aðalfulltrúi Íslands í stjórn American Scandinavian Foundation (ASF) frá 1984. Hann var stjórn- arformaður ASF við byggingu og opnun Norræna hússins í New York og hefur veitt formennsku í ýmsum nefndum stofnunarinnar, hefur setið í stjórn Össurar frá 1999 og er vara- formaður stjórnar frá 2012. Kristján og Hrafnhildur eyða öll- um sínum sumrum á Íslandi, einkum í húsi sínu á Hnausum á Snæfells- nesi. Fjölskylda Kristján kvæntist 9.4. 1966 Hrafn- hildi Ágústsdóttur, f. 3.12. 1945, skurðdeildarhjúkrunarfræðingi og glerlistamanni. Hún er dóttir Ágústs Jónssonar frá Varmadal, f. 5.7. 1900, d. 4.13. 1978, og k.h. Hólmfríðar Jónsdóttur, f. 21.6. 1909, d. 18.2. 1990. Dætur Kristjáns og Hrafnhildar eru 1) Hólmfríður Hildur, f. 23.5. 1967, hjúkrunarfræðingur, gift William Schmidt krabbameinslækni og eru barnabörnin Kristjan Ragn- ar, f. 1999, Magnús Þór, f. 2000, og Þór Gert, f. 2005; 2) Vigdís Vaka, f. 24.9. 1971, næringarfræðingur, gift Gavin Burke, bankamanni, fyrri eig- inmaður Howard Boulton sem lést í árásunum á tvíburaturnana í New York 11.9. 2001 og eru barnabörnin Frederick Tómas, f. 2001, Annika Mary, f. 2006, og Kristjan Tomas, f. 2008; 3) Þórunn Lára, f. 14.2. 1973, sjúkraþjálfari, gift Benjamín Zim- mermann lögfræðingi og eru barna- börnin Ella Soffía, f. 2001, Nína Lára, f. 2004, Sundy Soffía, f. 2006, og 4) Kristin Asta, f. 12.11. 1982, tal- meinafræðingur, gift Clinton Garner framkvæmdastjóra og eru barna- börnin Björn Ágúst, f. 2015, og Freyja Valdis, f 2017. Systkini Kristjáns: Lára Margrét, f. 9.10. 1947, d. 29.1. 2012, for- stöðumaður þróunardeildar Rík- isspítalanna og alþingismaður; Árni Tómas, f. 19.1. 1950, gigtarlæknir í Reykjavík; Ásta Kristrún, f. 25.8. 1952, námsráðgjafi á Eyrarbakka, og Hallgrímur Tómas, f. 25.1. 1961, framkvæmdastjóri í Hafnarfirði. Foreldrar Kristjáns: Ragnar Tómas Árnason, f. 13.3. 1917, d. 3.3. 1984, útvarpsþulur og versl- unarmaður í Reykjavík, og k.h., Jón- ína Vigdís Schram, f. 14.6. 1923, d. 28.3. 2007, læknaritari. Kristján Tómas Ragnarsson Vigdís Magnúsdóttir húsfr. í Rvík Jón Þórðarson skipstj. í Rvík Lára Jónsdóttir húsfr. í Rvík Jónína Vigdís Schram læknaritari í Rvík Kristján Schram skipstj. í Rvík Magdalena Árnadóttir húsfr. í Rvík Ellert Schram skipstj. í Rvík Guðmundur H.T. Hallgrímsson héraðslæknir á Siglufirði Gunnar G. Schram prófessor, sendiherra, alþm. og ritstjóri Vísis Þóra Björk Schram framkvstj. í Rvík Gunnar Schram símstöðvarstj. á Akureyri Margrét Schram húsfr. í Rvík Hallgrímur Helgason rithöfundur Gunnar Helgason leikari Tómas H.Tómasson bankaritari í Rvík Ísak G.T.Hallgrímsson læknir í Rvík Jón Þ.T.Hallgrímsson yfirlæknir við LSH Ásta Kristrún Ragnarsdóttir framkvstj. í Rvík Lára Margrét Ragnarsdóttir alþm. Árni Tómas Ragnarsson gigtarlæknir í Rvík Hallgrímur Tómas Ragnarsson viðskiptafr. og framkvstj. Björgvin Schram stórkaupm. í Rvík og form.KSÍ Ólafur Magnús Schram framkvstj. Fjallafara Magnús Orri Schram fv. alþm. í Rvík Ellert B. Schram fv. fyrirliði landsliðsins í knattspyrnu, form. ÍSÍ, alþm. og ritstj.DV Höskuldur Schram fréttam. Margrét Schram húsfr. í Rvík Árni Hauksson fjárfestir Snæfríður Baldvinsdóttir aðjúnkt við Bifröst Bryndís Schram fv. fegurðardrotting, leikkona, dagskrárgerðark. og framkvstj.Kvikmyndasjóðs Hrafnhildur Schram listfræðingur Anna Hlín Schram kennari í Kaup- mannahöfn Friðrik Schram landsliðsmarkmaður í knattspyrnu Jakob Þór Eiríksson flugumferðar­ stjóri í Rvík Ágúst Schram starfsm. hjá Glóbus Unnur Lísa Schram leiðsögumaður í Vorsabæ á Skeiðum Karl Schram kaupm. í Rvík Tómas Hallgrímsson læknaskólakennari í Rvík, bróðursonur Benedikts í Hólmum, afa Geirs Hallgrímssonar forsætisráðherra, af Reykjahlíðarætt Ásta Thorgrímsson frá Húsinu á Eyrarbakka Kristrún Tómasdóttir húsfr. í Rvík ÁrniBenediktsson stórkaupm. í Rvík Benedikt Kristjánsson hreppstj. í Selárdal Ragnhildur Þórðardóttir bróðursonardóttir Ísleifs Einarssonar háyfirdómara, langafa Guðnýjar, ömmu Halldórs Laxness Úr frændgarði Kristjáns Tómasar Ragnarssonar Ragnar Tómas Árnason útvarpsþulur og verslunarm. í Rvík ÍSLENDINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 Óli B. Jónsson fæddist í Vest-urbænum í Reykjavík og ólstupp í Stóra-Skipholti á Bráð- ræðisholtinu þar sem allt gekk út á KR og knattspyrnu. Foreldrar hans voru Jón Jónsson afgreiðslumaður og k.h. Þórunn H. Eyjólfsdóttir hús- freyja. Kona Óla var Guðný Guðbergs- dóttir skrifstofumaður. Börn Óla og Guðnýjar eru: Hólm- fríður María hárgreiðslumeistari í Reykjavík, gift Guðmundi Hallvarðs- syni, fv. alþingismanni og formanni Sjómannafélags Reykjavíkur; Jón Már, rafeindavirki í Reykjavík, og Jens Valur, tölvunarfræðingur hjá Hjartavernd, búsettur í Reykjavík.. Óli hóf starfsævina 13 ára við upp- skipun úr togurum en vann síðan verslunarstörf hjá Jes Zimsen og í veiðarfæradeild Geysis í allmörg ár. Hann starfaði um skeið hjá Essó og var síðan starfsmaður Vegagerðar ríkisins um langt árabil. Óli stundaði nám í íþróttakennslu og útskrifaðist sem íþróttakennari árið 1946. Hann hóf knattspyrnu- þjálfun 1944 og þjálfaði meistara- flokk KR í fjölda ára en hann var knattspyrnuþjálfari í 30 ár. Þá var hann landsliðsþjálfari öðru hvoru. Óli bar höfuð og herðar yfir aðra knattspyrnuþjálfara hér á landi á sinni tíð og náði reyndar langbestum árangri þeirra. Hann gerði KR-inga að Íslandsmeisturum sjö sinnum, auk þess sem Valsmenn hrepptu titilinn undir hans handleiðslu og Keflvík- ingar urðu Íslandsmeistarar í fyrsta sinn undir hans stjórn. Sjálfur æfði og keppti Óli í knatt- spyrnu með KR en þeir bræðurnir, fjórir að tölu, urðu allir Íslandsmeist- arar með meistaraflokki KR, þar af Óli þrisvar sinnum. Óli, Sigurjón og Guðbjörn léku auk þess með landslið- inu á sínum tíma. Síðar varð Óli liðtækur golfari. Öll félagsstörf Óla snerust um KR og KSÍ. Hann sat í tæknideild KSÍ í fjölda ára og var formaður hennar um árabil. Óli lést 8.2. 2005. Merkir Íslendingar Óli B. Jónsson 90 ára Jón Guðmundsson 85 ára Birgir E. Breiðdal Jóhannes Pálsson Mohamed Adnan Moubarak Svanhildur J. Ingimundardóttir 80 ára Björn Arnórsson Garðar Ingvar Sigurgeirsson Guðrún G. Eyjólfsdóttir Hilmar E. Guðjónsson Ólafur Magnússon 75 ára Ásta Jónsdóttir Freygerður Pálmadóttir Hafþór Edmond Byrd Helgi Kristinn Magnússon Lárus Jónsson Sigurða Pálsdóttir 70 ára Árni J. Gunnlaugsson Bjarni Eyjólfsson Guðfinna Þorgilsdóttir Kristjana Vilborg Ketilsdóttir Lísbet Ringsted Sigurðardóttir Pétur Kjartansson Smári Jónsson Stella María Vilbergs Þóra Ragnarsdóttir 60 ára Audrone Podreziene Árný Hallfríður Herbertsdóttir Bryndís Bender Ingunn Björgvinsdóttir Karl Heiðar Brynleifsson Kristín Harðardóttir Kristján Halldórsson Laicy Mörköre Margrét Gunnlaugsdóttir Sigrún Edda Hálfdánardóttir 50 ára Anna Kristín Jörundsdóttir Barbara Boguslawa Gorska Bjarney Ragnhildur Jónsdóttir Hjörtur Arnar Hjartarson Ingólfur Haraldsson Jón Þór Guðmundsson Steinunn Linda Jónsdóttir Ævar Austfjörð 40 ára Bryndís Davíðsdóttir Bryndís Jónasdóttir E Fei Guðrún Helga Marteinsdóttir Hallgrímur Ingvar Steingrímsson Helga S. Ísfeld Þórsdóttir Hildur Ósk Kolbeins Ingibjörg Lilja Diðriksdóttir Níní Jónasdóttir Runólfur Þór Runólfsson Þórhildur Þórmundsdóttir 30 ára Adam Óttarsson Andreea-Nicoleta Iosif Baldur Kristjánsson Calum Oliver Ian Phelan Dagný Ósk Björnsdóttir Hildur Björg Ragnarsdóttir Hugrún Ólafsdóttir Joseph Paul Laum Goc-Ong Margrét S. Runólfsdóttir Marta Silfá Birgisdóttir Patchara Srinoikhao Tinna Torfadóttir Unnur R.E. Ásgeirsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Tinna býr í Mos- fellsbæ, starfar á tauga- lækningadeild Landspít- alans í Fossvogi og er að ljúka BSc-prófi í hjúkr- unarfræði í vor. Maki: Sveinn Ingi Ragn- arsson, f. 1977, forstjóri Elite Seefood. Synir: Torfi Snær, f. 2010; Hrannar Ingi, f. 2011, og Bergur Breki, f. 2013. Foreldrar: Olga Kristjáns- dóttir, f. 1963, og Torfi Sigurðsson, f. 1963. Tinna Torfadóttir 30 ára Marta ólst upp í Mosfellsbænum, býr þar, lauk stúdentsprófi frá MS og er í fæðingarorlofi. Maki: Þorsteinn Lúðvíks- son, f. 1987, húsasmiður. Synir: Aron Logi, f. 2011; Birgir Elí og Atli Leví, f. 2018. Foreldrar: Sigrún Jens- dóttir, f. 1965, lesblindu- ráðgjafi, og Birgir Ingva- son, f. 1963, fram- kvæmdastjóri. Þau búa í Mosfellsbæ. Marta Silfá Birgisdóttir 30 ára Margrét ólst upp í Hafnarfirði, býr þar, lauk BSc-prófi í lífefnafræði og BSc- og MSc-prófi í lyfja- fræði og er lyfjafræðingur hjá SA Lyfjaskömmtun. Maki: Vilhelm Már Bjarnason, f. 1987, íþróttakennari. Dóttir: Kolfinna Rán, f. 2016. Foreldrar: Ragnheiður Helgadóttir, f. 1961, og Runólfur Bjarnason, f. 1962. Margrét Soffía Runólfsdóttir Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 Hönnun og vellíðan Tosca Blu skór

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.