Morgunblaðið - 15.11.2018, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 15.11.2018, Qupperneq 62
62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Nánar á artasan.is Aldrei haft jafn þykkt hár „Eftir að hafa misst allt hár í krabbameinsmeðferð byrjaði ég að taka Hair Volume frá New Nordic. Eftir 4-6 vikur fór hárið að vaxa aftur og ég hef aldrei haft jafnt löng augnhár, þykkar augabrúnir og þykkt hár eins og núna og það hvarflar ekki að mér að hætta að taka þetta bætiefni inn.“ Edda Dungal Hair Volume inniheldur jurtir og bætiefni sem sem eru mikilvæg fyrir hárið og getur gert það líflegra og fallegra. Er hárlos eða þunnt hár að plaga þig? VIÐTAL Árni Matthíasson arnim@mbl.is Sigríður Hagalín Björnsdóttir sendi á síðasta ári frá sér sína fyrstu skáldsögu, Eyland, og var henni vel tekið af gagnrýnendum og öðrum lesendum. Ný skáldsaga hennar, Hið heilaga orð, kom svo út fyrir stuttu. Hið heilaga orð hefst hlýjan og bjartan morgun í lok ágúst þegar Edda gengur út af heimili sínu og hverfur. Hún skilur nýfætt barn sitt eftir heima, en engar vísbend- ingar um hvert hún hafi farið eða hvers vegna. Einar bróðir hennar er kallaður til að leita systur sinn- ar, en til að skilja hvert hún fór þarf hann að skilja hvar hún var. Sigríður segir að saga Eddu og Einars hafi komið til hennar í brot- um frá því hún var unglingur. „Upphaflega hugmyndin var eig- inlega byggð á misskilningi – það voru krakkar sem voru með mér í skóla sem ég hélt að væru systkini sem væru samfeðra en mæður þeirra hefðu alið þau upp saman. Svo reyndist þetta bara vera vit- leysa, en sagan var góð og er kom- in niður á bók núna.“ Andstæður á andstæður ofan – Þegar ég las bókina punktaði ég hjá mér nokkur atriði og það fyrsta sem ég skrifaði var þessi setning: Tvær konur eignast barn með sama manninum, Örlygi, yfirborðskenndum flysjungi. „Ég held að hann sé nú ekkert afleitur í upphafi, ég held hann vilji vel og sé að gera sitt besta. Hann er náttúrlega geysilega veik- lyndur en svo kemur sífellt betur í ljós að hann er siðlaus – hann er þannig að hann getur réttlætt hvað sem er, getur alltaf fundið afsak- anir fyrir sjálfan sig.“ – Mæðurnar, Júlía og Ragnheið- ur, eru andstæður; önnur sveim- hugi og listamaður, hin jarðtengt hörkutól, og svo eru börnin líka andstæður; Einar með sína les- blindu og Edda með sinn oflestur. „Mér var bent á það þegar ég var búin að skrifa handritið að bókinni að mæðurnar stæðu hvor fyrir sitt heilahvelið, en ég hafði aldrei hugsað það þannig, þær urðu bara svona til, spruttu fram svona ólíkar, vildu vera svona. En þær þurftu líka að finna þessa tengingu, það þurfti að vera eitt- hvað sem næði að tengja þær sam- an og það er oft þannig að bestu vinirnir eru þeir sem eru ólíkastir manni. Það er þó alltaf einhver snertiflötur þar sem fólk nær sam- an og þær ná fyrst saman í gegn- um bókmenntirnar og síðan í gegn- um börnin sín. Einar og Edda bæta hvort ann- að upp í frumbernsku og alast upp saman og það eru hæfileikar þeirra, hvort sem þeir þróast þannig af því þau alast upp saman eða hvort þau eru svona að upp- lagi, svona skert og heil hvort á sínu sviði, þá tekst þeim að halda sameiginlega út nokkurn veginn fúnkerandi tilveru þangað til þau komast á unglingsaldurinn. Það gerist oft þegar krakkar komast á unglingsaldurinn að þá bæði losnar um töfraraunsæi barnæskunnar og svo stendur fólk allt í einu frammi fyrir manneskjunni sem það á eftir að vera það sem það á eftir ólifað. Það er líka þekkt með þessa hý- perlexíu, oflæsið, að með aldrinum rjátlast hún af ákveðnum hluta þeirra sem fæðast með þennan hæfileika eða þessa tegund ein- hverfu. Það er gaman að gera sér í hugarlund hvernig það er fyrir manneskju sem hefur lifað lífi sínu í gegnum bækurnar að vakna upp einn góðan veðurdag og vera orðin ein af venjulega fólkinu, búin að missa þennan töfraheim sem hún hefur lifað, en hefur ekki lykilinn að samskiptum við annað fólk og þarf að læra það frá grunni.“ Lifað í lygi – Edda leysir það með því að ljúga, fara að lifa í lygi, og vegna þess að hún býr til persónu á svo skipulegan hátt nær hún fram- úrskarandi árangri í hinum yfir- borðskennda heimi Instagramsins og Snappsins. „Það er kannski ósanngjarnt að stilla því þannig upp því auðvitað er fullt af vel heilu fólki og djúp- vitru á samfélagsmiðlum og við notum þá flest, þetta er það sem bætist ofan á samskipti okkar við annað fólk, ekki eitthvað sem kem- ur í staðinn fyrir þau. Þetta er aft- ur á móti leikur af því við stöndum frammi fyrir svo mikilli upplýs- ingabyltingu, eiginlega annarri eða þriðju stóru upplýsingabyltingunni síðan fyrir mörg þúsund árum. Hvernig værum við án ritmálsins?  Í Hinu heilaga orði veltir Sigríður Hagalín Björnsdóttir því fyrir sér hvort ritmálið hafi orðið til óþurftar Árni Matthíasson arnim@mbl.is Sigurjón Bergþór Daðason kvaddi sér hljóðs með skáldsögunni Hendings- kasti fyrir þremur árum og á næst- unni kemur út önnur bók sem hann nefnir Óbundið slitlag. Segja má að Hendingskast hafi verið hefðbundin skáldsaga, þroskasaga ungs manns, en Óbundið slitlag er öllu tilrauna- kenndari. Sagan skiptist í fjóra hluta sem segja ekki endilega sömu söguna en skarast, sömu persónur birtast í þeim og atburðir en sjónarhornið víxlast. Sigurjón segist hafa byrjað á að skrifa bók með hefðbundinni framvindu þar sem kaflarnir skiptust á, einn kafli um eina persónu og annar kafli um aðra. „Upphaflega voru þetta tvö sjón- arhorn sem skiptust á, en mér fannst það rjúfa frásögnina að hafa hana þannig svo ég ákvað að fara aðra leið. Fyrstu tveir hlutarnir gerast sam- tímis, ég byrjaði á að skrifa þá, en seinni hlutarnir áttu að gerast mun seinna. Ég færði þá þó nær í tíma til að hafa meira flæði í frásögninni. Þetta var svolítið erfitt, ekki alveg lógískt, en mig langaði til að gera eitt- hvað allt annað. Fyrri bókin gerðist í Reykjavík og ég vildi að þessi gerðist úti á landi og formið yrði öðruvísi.“ – Bókin gerist úti á landi á ótil- greindum stað, en staðurinn virðist ekki skipta höfuðmáli. „Það var aðallega bara að hafa þetta langt frá. Ég sá upphaflega fyrir mér að skrifa sögu um lítið samfélag, en ég er fæddur og uppalinn í Reykja- vík og þegar ég fór að skrifa fann ég að ég hafði ekki nógu mikla innsýn í hvernig lítil samfélög væru og virk- uðu. Ég gat þess vegna ekki skrifað einhverja samfélagssögu og einbeitti mér því að einstaklingunum sem búa þar. Sagan breyttist því svolítið þegar fór að líða á skrifin; fyrst átti það að skipta voða miklu máli að þetta væri Mikil áskorun  Sigurjón Bergþór Daðason sendir frá sér til- raunakennda skáldsögu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.