Morgunblaðið - 15.11.2018, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 15.11.2018, Qupperneq 72
72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottu útliti. Fatnaður fyrir fagfólk Vala Hafstað valahafstad@msn.com „Ég upplifi að ég komist nær sjálfri mér og geti sagt miklu persónulegri hluti í gegnum ljóðin en í gegnum skáldsöguna,“ segir Eyrún Ósk Jónsdóttir. „Ég leyfi mér meira. Ég ritskoða mig minna í gegnum þau og kannski er það af því að þegar ég fæ hugmynd að skáldsögu bý ég til strúktúrinn á meðan ljóðin ráð- ast á mig; þau verða að komast út.“ Í nýútkominni ljóðabók sinni, Í huganum ráðgeri morð, yrkir hún um leikhús og tengsl þess við til- veruna, hugarheim listamannsins, jafnréttisbaráttu og ást á lífinu. Þetta er fjórða ljóðabók Eyrúnar, sem einnig hefur skrifað fjórar skáldsögur. Fyrir síðustu ljóðabók sína, Góðfúslegt leyfi til sígarettu- kaupa, sem út kom 2016, fékk hún verðlaun Tómasar Guðmundssonar. „Ljóðin hellast einhvern veginn yfir mig. Bæði þessi bók og Góðfús- legt leyfi til sígarettukaupa urðu til á nokkrum dögum. Þá verð ég við- þolslaus, eins og ljóðin séu að ásækja mig, og þá kemur þetta allt í einni bunu. Þegar þessi bók er að verða til þá … fór ég að hugsa: Hver er ég sem listamaður? Hug- myndir hentust inn á blaðið, oft aft- an á kvittanir úr búðinni, hripaðar niður í strætó.“ Leikhús í logum Ljóðin eru sambland sterkra til- finninga og minninga, sem fléttaðar eru saman við leiklistarsöguna. Aft- ur og aftur dregur Eyrún upp mynd af leikhúsi, sem ýmist er hul- ið myrkri eða stendur í ljósum log- um. „Ég var í Madrid í skiptinámi úr leiklistarháskólanum mínum [í London] 2004, og þegar ég er þar er ég að gera það sem ég elska mest og dreymir um í lífinu: að leika, vera á sviði og skapa. Þar set ég upp sýningu á El público eftir Lorca, og á sama tíma verður hryðjuverkaárás þarna, nánast á næstu lestarstöð við okkur. Yfir borginni er ofboðsleg sorg … Þegar ég fer frá Madrid hafði ég upplifað eina stórkostlegustu sköpunartíma í mínu lífi, en á sama tíma ofboðs- legan sársauka.“ – Þú vilt í ljóðunum kveikja í leik- húsinu, en er það ekki alveg eins leikhúsið sem kveikir í þér sköp- unarkraftinn? „Maður losnar ekki undan því og það er algerlega stórkostlegt, en maður brennir sig líka á sköpunar- kraftinum. Ég lifi mig alveg ofboðs- lega inn í það sem ég er að gera. Eitt ljóðið spyr: Hvað gerir skáld/ sem framið hefur/þvílíkt voðaverk? Ég skrifaði leikrit í Englandi þar sem aðalhetjan var búin að drepa tunglið, fannst tunglið vera að njósna um sig. Með því hafði hann tortímt heiminum af því jörðin hafði dottið af sporbaugnum. Ég hringdi í mömmu og var alveg miður mín. Fannst ég vera búin að tortíma heiminum og vissi ekki hvernig ég ætti að leysa þetta.“ Táknmynd fyrir tabú Í bókinni verður Eyrúnu tíðrætt um dauðann. „Þegar maður er að kanna lífið verður þessi partur að vera með. Búddískur fræðimaður sem ég held mikið upp á, Nichiren Daishonin, sagði: „Þú getur ekki skilið lífið fyrr en þú ert búinn að skilja dauðann.“ Ég upplifi líka að dauðinn er oft táknmynd fyrir alls konar tabú. Það er svo mikið tabú í kringum dauð- ann. Að hluta til er þetta líka tákn í skáldskap um hvað við megum tala um af tilfinningum okkar, hvað á að fela. Til dæmis eftir Me Too- byltinguna hefur allt í einu breyst hvað má tala um og hvað ekki. Það er búið að opna fyrir það. Ég upplifi að leikhús og ljóð séu oft það sem leyfir okkur að opna á það sem má ekki tala um.“ Í bókinni vísar Eyrún í mörg fræg leikrit. Hún notar leiklistar- söguna til þess að endurspegla eða tengja saman minningar sínar. „Leikrit, ljóð og málverk hjálpa mér að skilja veruleika minn. Mað- ur finnur tengingu í einhverju sam- mannlegu. Fyrir mér er það að skapa grunnurinn að því að vera mannlegur. Hvort sem þú titlar þig listamann eða ekki, þá erum við alltaf að finna leiðir til þess að skapa eitthvað, hvort sem það er með því að segja sögur sem við heyrðum af einhverjum, segja hvað okkur dreymdi eða prjóna. Við er- um alltaf að finna leiðir til þess að taka þátt í sköpuninni.“ – Þú fjallar í bókinni um jafnrétt- isbaráttu kvenna. Hvaða hlutverki geta ljóð og leikhús gegnt í þeim efnum? „Eitt af því sem ég sá þegar ég fór í leiklistarháskólann var hve lít- ið er til af stórum hlutverkum fyrir konur. Sagan er svo mikið sögð frá sjónarhóli karla, en þetta er líka í skáldverkunum og ég held að með því að breyta þessu þá breytist mik- ið í heiminum, með því að sögur kvenna fái að heyrast. Ég hef verið meðvituð um það í bókunum mínum að það séu margar kvenpersónur og þær séu að tala saman.“ Eyrún heldur áfram að yrkja. Fyrr á þessu ári skrifaði hún ljóða- bálk um frið og kærleika, sem hún mun lesa upp í Ásvallakirkju 19. desember. Markmiðið er að gefa ljóðin út á næsta ári. „Ljóðin ráðast á mig“  Í nýrri ljóðabók yrkir Eyrún Ósk Jónsdóttir um leiklist, líf og dauða Morgunblaðið/Árni Sæberg Persónuleg Skáldkonan og kvikmyndasmiðurinn Eyrún Ósk Jónsdóttir. Svik er svo sannarlega rétt-nefni yfir pólitískanspennutrylli Lilju Sigurð-ardóttur. Svikin byrja smátt en áður en lesandinn veit af verða þau svæsnari, umfangsmeiri og ótrúlegri. Atburðarásin er einnig afar hröð sem er mikill kostur, biðin eftir því sem gerist næst er lítil sem engin, svo lengi sem lestrinum er haldið áfram. Persónurnar eru margar, liggur við of margar til að byrja með, en þegar lesandinn kemst á skrið kem- ur þetta allt heim og saman. Aðal- persónan, innanríkisráðherrann Úr- súla, er áhugaverð persóna og þó svo að Svik séu ekki hluti af nýrri seríu skilur Úrsúla ýmislegt eftir sem væri fróðlegt að kanna betur. Í heildina fléttast þrjár frásagnir saman við ráðherratíð Úrsúlu og þar kemur saga bílstjórans, eða lífvarð- arins, einna mest á óvart og setur hann sinn svip á framvinduna þó svo að sagan úr fortíðinni sé stærst. Mexíkóska nornin sem starfar í ráðuneytinu passar hins vegar ekki alveg inn í myndina og galdrarnir, ef svo má kalla, hefðu alveg mátt missa sín eftir allt saman. Hraðinn í stíl Lilju passar vel inn í þann raunveruleika sem hún skrifar, sem er eftir allt saman alls ekki ólík- ur þeim raunveruleika sem við búum við í dag. Samspil stjórnmála, fjöl- miðla, samfélagsmiðla og atburða sem finna má tengingu við í raun- heimum fléttast saman í spennandi frásögn, öðruvísi spennusögu en maður er vanur og koma tenging- arnar á óvart. Svik er sannfærandi, kraftmikil og áhugaverð spennusaga sem tekur á málefnum líðandi stundar og ætti ekki að svíkja lesendur sem vilja ef til vill hvíla hina hefðbundnu krimma en á sama tíma ekki segja alveg skilið við spennuna. Morgunblaðið/Hari Spenna „Svik er sannfærandi, kraftmikil og áhugaverð spennusaga sem tekur á málefnum líðandi stundar,“ segir í umsögninni. Öðruvísi spennutryllir Spennusaga Svik bbbmn Eftir Lilju Sigurðardóttur JPV, 2018. Innbundin, 390 bls. ERLA MARÍA MARKÚSDÓTTIR BÆKUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.