Morgunblaðið - 05.01.2019, Side 10

Morgunblaðið - 05.01.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2019 Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið upplysingar@reykjavik.is eða í síma 411 1111. www.reykjavik.is Á vef Reykjavíkurborgar undir „mínar síður“ geta fasteignaeigendur: • skoðað álagningarseðil fasteignagjalda (eftir 28. janúar 2019) og alla breytingarseðla þar á eftir • skráð sig í boðgreiðslu fasteignagjalda • gefið upp reikningsnúmer ef til endurgreiðslu kemur • óskað eftir að fá senda greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum þar sem þeir verða, líkt og áður, ekki sendir út til greiðenda, 18-76 ára • sent inn erindi vegna fasteignagjalda Fasteignagjöld ársins 2019, yfir 25.000 kr., greiðast með níu jöfnum greiðslum á gjalddögum 2. febrúar, 2. mars, 2. apríl, 4. maí, 1. júní, 2. júlí, 3. ágúst, 1. september og 2. október. Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 2. febrúar. Fasteignagjöld í Reykjavík verða innheimt í netbönkum. Fasteignaeigendum er jafnframt bent á boðgreiðslur af greiðslukortum og á beingreiðslur hjá öllum bankastofnunum. Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2019 verða birtir á vefsíðunni island.is og á Rafrænni Reykjavik á árinu 2019. Álagningar- og breytingarseðlarnir verða ekki sendir í pósti í samræmi við breytingu sem gerð var á lögum nr. 4/1995 sem tók gildi 1. janúar 2019, en þá er sveitarstjórn heimilt að senda tilkynningu um álagningu fasteignaskatts rafrænt. Mínar síður á www.reykjavik.is Baldur Arnarson baldura@mbl.is Íbúar við Furugerði í Reykjavík skil- uðu undirskriftalista til borgarinnar í fyrradag vegna fyrirhugaðrar upp- byggingar við Bústaðaveg. Um 140 íbúar skrifuðu nafn sitt á listann. Guðrún S. Gröndal, íbúi í Espi- gerði, hefur að undanförnu verið í for- svari fyrir íbúa Espigerðis og Furu- gerðis vegna mótmælanna. Hún segir umhverfis- og skipulags- ráð munu taka málið til umfjöllunar næstkomandi föstudag. Vísa í ummæli borgarstjóra Íbúar horfi til þeirra ummæla Dags B. Eggertssonar borgarstjóra, í Morgunblaðinu í nóvember, að hlust- að verði á sjónarmið íbúa. Hvatti Dagur alla til að skila athugasemdum. Það yrði „auðvitað farið málefnalega yfir það í þessu tilviki eins og öðrum“. Áformin varða lóðina Furugerði 23 og aðliggjandi lóð við Espigerði. Þarna var um árabil, frá 1944 til 2002, starfrækt gróðrarstöðin Grænahlíð. Samkvæmt drögum að nýju deili- skipulagi verður heimilt að byggja 32 íbúðir á lóðunum. Göturnar Espi- gerði og Furu- gerði liggja að austur- og suður- enda fyrirhugaðra húsa. Gert er ráð fyrir 22 bílastæð- um í kjallara, auk tveggja bílastæða fyrir fatlaða. Guðrún rifjar upp þá umsögn heilbrigðiseftirlitsins að það „væri æskilegra að fyrirhuguð íbúðarhús stæðu fjær Bústaðavegi vegna loftmengunar frá umferð, eink- um svifryksmengunar“. Þá væri einn- ig æskilegra að staðsetja íbúðarhús fjær veginum m.t.t. hljóðvistar. Mikil umferð sé við götuna. Skapar skort á bílastæðum Fram kemur í bréfi íbúanna til borgarinnar að í núverandi aðalskipu- lagi sé gert ráð fyrir 4-6 íbúðum á reitnum. Fyrirhuguð uppbygging sé langt umfram það. Áformuð hús muni valda skuggavarpi. Þá muni færri bílastæði en íbúðir ýta undir skort á bílastæðum í aðliggjandi götum. Teikning/ARKÍS Drög Fyrirhuguð hús yrðu meðfram Bústaðavegi við Furugerði. Skiluðu mótmæla- lista til borgarinnar  Íbúar í Furugerði gegn uppbyggingu Guðrún S. Gröndal Guðni Einarsson gudni@mbl.is Tryggingastofnun (TR) mun endur- reikna og leiðrétta greiðslur til ör- orkulífeyrisþega sem urðu fyrir skerðingu vegna búsetu erlendis. Þetta á við um þá sem fengið hafa hlutfallslega reiknuð framtíðartíma- bil vegna búsetu í öðrum aðildarríkj- um að samningnum um EES. Gert verður upp við þetta fólk fjögur ár aftur í tímann. Þetta kemur fram í bréfi vel- ferðarráðuneytis- ins til velferðar- nefndar Alþingis. Þar kemur einnig fram að samkvæmt upp- lýsingum frá TR muni 1.024 ör- orkulífeyrisþegar eiga rétt á hærri greiðslum eftir að túlkun á reglum um útreikning framtíðartímabils var breytt þannig að jafnræðis gætti milli fólks. Áætlaður kostnaður vegna þessa er um 546 milljónir á árinu 2018. Lífeyrisþegarnir sem um ræðir voru 1.014 á árinu 2017 og er kostn- aður vegna þess áætlaður um 529 milljónir. Gert er ráð fyrir sambæri- legum kostnaði vegna leiðréttingar fyrir árin 2016 og 2015. Alls nema þessar leiðréttingar því um tveimur milljörðum króna fyrir öll fjögur ár- in. Samkvæmt lögum um almanna- tryggingar á TR að borga 5,5% árs- vexti á þá bótafjárhæð sem van- greidd var. „Við erum himinlifandi yfir þess- ari niðurstöðu. Þetta hefur verið löng og ströng barátta og okkur finnst við hafa unnið stóran sigur fyrir hönd mjög margra,“ sagði Þur- íður Harpa Sigurðardóttir, formað- ur Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ). Hún sagði að álit umboðsmanns Alþingis, sem fór í saumana á málinu á sínum tíma, hefði bent afdráttar- laust á að fólkið sem í hlut átti hefði verið hlunnfarið. Velferðarráðuneyt- ið færi eftir áliti umboðsmanns. Þuríður sagði að ÖBÍ ætti eftir að fá upplýsingar um hvað lægi ná- kvæmlega að baki þessum tölum. Hún taldi að flestir í hópnum sem fá leiðréttingu væru Íslendingar sem hefðu búið erlendis um lengri eða skemmri tíma. Einnig væri þar fólk sem flutti erlendis frá, settist hér að og var á vinnumarkaði en missti svo heilsuna vegna veikinda eða slysa og varð óvinnufært. Þuríður sagði ljóst að TR hefðir eiknað örorkulífeyri þessa hóps rangt út í líklega aldarfjórðung. Hins vegar verði einungis leiðrétt fjögur ár til baka vegna fyrningará- kvæða. „Við lítum svo á að nú hafi verið viðurkennt að TR hafi haft um 500 milljónir af þessum hópi á hverju ári í mörg ár. Mér finnst það vera sið- ferðileg skylda stjórnvalda að leið- rétta það,“ sagði Þuríður. Vinnan mun taka tíma Hjá TR fengust þær upplýsingar að ekki væri búið að taka endanlega ákvörðun um útfærsluna vegna álits umboðsmanns Alþingis (8955/2016). Unnið væri að málinu með velferð- arráðuneytinu. Tillaga að breyttu verklagi yrði væntanlega tilbúin nú í janúar og upplýsingar um breytta framkvæmd yrðu birtar á heimasíðu stofnunarinnar (tr.is). Í framhaldinu yrði farið í að vinna hvert einstakt mál en sú vinna myndi taka einhvern tíma. Öryrkjar fá milljarða til baka  Rúmlega 1.000 örorkulífeyrisþegar eiga von á leiðréttingu  Bjuggu erlendis um lengri eða skemmri tíma  Leiðrétting vegna fjögurra ára um tveir milljarðar  ÖBÍ telur rangt reiknað í aldarfjórðung Morgunblaðið/Árni Torfason Tryggingastofnun Öryrkjabandalagið hefur lengi bent á að öryrkjar hafi verið hlunnfarnir í greiðslum frá TR. Þuríður Harpa Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.